Morgunblaðið - 26.07.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 26.07.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012 Fáðu garðsláttinn í áskrift og slakaðu á í sumar Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Eftir því sem bloggskrif samfylk-ingarprófessorsins Stefáns Ólafssonar verða flokkspólitískari eru margir farnir að velta því fyrir sér hvort að hann sé nú í sömu hugleið- ingum og annar samfylkingar- prófessor fyrir nokkrum árum.    Svanur Kristjánssonhefur frá upphafi verið áhugasamur um Samfylkinguna og studdi stofnun þess flokks með ráðum og dáð.    Og hann lét sér ekkinægja ráðlegg- ingar og þátttöku hins almenna flokksmanns, heldur dreymdi hann stóra drauma um að leiða flokkinn til sigra í íslenskum stjórnmálum.    Sterkir þræðir liggja á milli hans ogHrannars Arnarssonar, eins af aðstoðarmönnum Jóhönnu Sigurðar- dóttur, og er ekki að efa að Hrannar hefði einnig hlotið upphefð ef honum hefði lánast að koma Svani í for- mannsstólinn.    Svo fór þó ekki og Samfylkinginþurfti að sætta sig við minni spá- menn í nokkur ár.    Nú virðist flokkurinn hins vegaraftur hafa fengið tækifæri til að leiða til forystu einn margra samfylk- ingarprófessora.    Ekki er verra að sá hefur náintengsl við núverandi formann, þegið marga mola og jafnan verið trúr og tryggur.    Hann hefur allt til að bera semprýtt getur formann í slíkum flokki. Svanur Kristjánsson Prófessorar til forystu fallnir STAKSTEINAR Stefán Ólafsson Veður víða um heim 25.7., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 13 skýjað Akureyri 13 alskýjað Kirkjubæjarkl. 13 skýjað Vestmannaeyjar 14 skýjað Nuuk 13 léttskýjað Þórshöfn 12 alskýjað Ósló 18 skýjað Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 21 heiðskírt Lúxemborg 30 heiðskírt Brussel 27 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 20 léttskýjað London 28 heiðskírt París 30 heiðskírt Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 28 heiðskírt Berlín 32 heiðskírt Vín 23 skýjað Moskva 25 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 36 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 27 heiðskírt Róm 28 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 23 alskýjað Montreal 22 léttskýjað New York 23 heiðskírt Chicago 27 skýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:18 22:52 ÍSAFJÖRÐUR 3:57 23:23 SIGLUFJÖRÐUR 3:39 23:07 DJÚPIVOGUR 3:41 22:28 Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Breytingarnar, sem nú hafa verið gerðar á reglugerð um slysatrygg- ingar við heimilisstörf, má rekja til þess, að á síðasta ári leitaði kona til umboðsmanns Alþingis, ósátt við niðurstöðu úrskurðarnefndar almannatrygginga. Konan datt á heimili sínu og slas- aðist og taldi sig eiga rétt á bótum í samræmi við skilmála slysatrygg- ingar. Umsókn hennar var synjað á þeirri forsendu, að ekki yrði séð að slysið mætti rekja til heimilisstarfa. Málavextir voru þeir, að konan var að elda mat þegar síminn hringdi. Þegar símtalinu lauk hrað- aði konan sér að eldavélinni þar sem hafði soðið upp úr í potti. Á leiðinni datt hún og slasaðist. Konan tók fram að þegar hún gekk frá símanum hefði símtalinu verið lokið og þar með lokið þeirri athöfn, sem var að svara í símann, og um leið aftur hafin athöfn, sem var matseld, er hún sneri sér að, þegar hún datt og slasaðist. Því hafi engin dagleg athöfn átt sér stað milli framangreindra athafna. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar var lagt til grundvallar, að áverki sem hún hlaut við fall að afloknu símtali gæti ekki talist til heimilis- starfa í skilningi reglugerðar um slysatryggingar við heimilisstörf. Um hefði verið að ræða daglega at- höfn sem undanskilin væri slysa- tryggingu við heimilisstörf, en í reglugerðinni er sá atburður að svara í síma sérstaklega tilgreindur. Umboðsmaður Alþingis taldi hins vegar, að þegar slysið varð hafi konan verið við matseld og hefði tímabundið vikið frá til að svara í síma. Slysið hefði átt sér stað í beinu framhaldi þegar hún hugðist halda áfram matseldinni. Atvikið, sem olli slysinu, hefði því verið í beinu og órjúfanlegu sambandi við ástundun heimilisstarfa í merkingu almanna- trygginga og félli því undir gildissvið slysatryggingarinnar eins og atvik- um væri háttað. Það var því niður- staða umboðsmanns að úrskurður úrskurðarnefndarinnar hefði ekki verið í samræmi við lög. Óhætt er að svara símtölum  Breytingarnar má meðal annars rekja til álits umboðsmanns Alþingis Í kjölfarið af niðurstöðu um- boðsmanns Alþingis lét vel- ferðarráðherra endurskoða reglugerðina. Niðurstaðan er umtalsverð réttarbót og aukin vernd fyrir tryggða ein- staklinga við störf og fram- kvæmdir á heimili og í sumarbústað. Slysatrygging við heimilis- störf er valkvæð og sótt er um hana með því að haka í þar til gerðan reit við útfyllingu á skattframtali. Kostnaður við trygginguna var 450 kr. á árinu 2012. Umtalsverð réttarbót SLYSATRYGGINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.