Morgunblaðið - 26.07.2012, Síða 31
ner Tribute sem hún skrifaði
handritið að og setti á svið á
Broadway haustið 2006, en sýn-
ingin gekk fyrir fullu húsi út vorið
2007.
Þrisvar í Eurovisionkeppnina
Sigga hóf að syngja með Stjórn-
inni í ársbyrjun 1989. Þau unnu
keppnina Landslagið 1989 með
laginu Við eigum samleið.
Hljómsveitin tók þátt í for-
keppni Eurovision 1990 og vann
hana með laginu Eitt lag enn, en í
Eurovisionkeppninni í Zagreb
lentu þau í fjórða sæti. Þau kepptu
aftur í Eurovision fyrir Íslands
hönd 1992, með lagið Nei eða já en
það lenti í sjöunda sæti í Malmö í
Svíþjóð. Þá söng Sigga fyrir Ís-
lands hönd lagið Nætur í Eurovisi-
onkeppninni í Dublin, 1994, og
lenti það lag í 12. sæti.
Stjórnin starfaði af fullum krafti
í fimmtán ár og starfar enn með
mislöngum hléum þó.
Stjórnin gaf út sjö stórar plötur
á árunum 1990-97: Eitt lag enn,
1990; Tvö líf, 1991; Stjórnin, 1992;
Rigg, 1993; Stjórnarlögin 1989-95,
1995; Sumar nætur, 1996, og
Stjórnin@2000, 1997.
Sólóplötur Siggu: Desember,
1993; Sigga, 1997; Flikk flakk,
1998; Sigga fyrir þig, 2003; Allt
eða ekkert, 2005; Til eru fræ, 2007,
og Jólalögin mín, 2009. Auk þess
smáskífurnar Nætur, 1994, og
Jörð, 2003.
Söngvaborg og Söngskólinn
Sigga er annar af eigendum og
höfundum eins vinsælasta og mest
selda barnaefnis á Íslandi síðustu
árin, Söngvaborg. Alls hafa komið
út sex mynddiskar með Söngva-
borgunum en hver þeirra hefur
selst í yfir 10.000 eintökum. Sigga
skrifaði handritin að öllum Söngva-
borgunum en Helga Braga kom að
skrifum á leiknum atriðum.
Sigga hefur starfrækt söngskól-
ann ToneArt Sangskole í Asker í
Noregi frá 2003 (toneartsang.com).
Nemendur sem sækja námskeið
skólans eru frá 9 ára aldri. Í Tone-
Art er boðið upp á einkatíma, hóp-
tíma og söngleikjalínu, þar sem
nemendurnir æfa allan veturinn
fyrir söngleik sem settur er upp að
vori á ári hverju.
Einnig rak Sigga söngskóla á Ís-
landi um árabil ásamt Maríu
Björk Sverrisdóttur.
Sigga verður með tónleika í Há-
skólabíói í dag í tilefni afmælisins
en uppselt er á tónleikana fyrir
löngu.
Fjölskylda
Sambýliskona Sigríðar er Birna
María Björnsdóttir, f. 3.12. 1974,
markaðs- og kynningarstjóri. Hún
er dóttir Björns Viggóssonar,
fyrrv. framkvæmdastjóra, og Hall-
veigar Björnsdóttur sjúkraliða.
Börn Sigríðar og Birnu Maríu
eru Viktor Beinteinn Birnuson, f.
24.4. 2011, og Alexandra Líf
Birnudóttir, f. 24.4. 2011.
Systkini Sigríðar eru Ásgeir, f.
27.7. 1953, skólastjóri Háteigs-
skóla, búsettur í Reykjavík; Hall-
dóra Hall, f. 29.7. 1956, hjúkr-
unarfræðingur í Osló; Einar, f.
30.5. 1959, veggfóðrarameistari í
Reykjavík; Jóhanna, f. 12.1. 1964,
verslunarmaður, búsett í Reykja-
vík; Markús Þorkell, f. 10.6. 1970,
veggfóðrari í Reykjavík; Berglind
Guðrún, f. 11.8. 1976, skrif-
stofumaður, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Sigríðar eru Bein-
teinn Ásgeirsson, f. 28.11. 1932,
veggfóðrara- og dúklagningar-
meistari, búsettur í Reykjavík, og
Svava Jóna Markúsdóttir, f. 28.6.
1933, d. 20.1. 2007, húsfreyja.
Úr frændgarði Siggu Beinteins
Kristján Árnason
húsmaður í Súðavík
Kristín Steinunn Ólafsdóttir
húsfr. í Súðavík
Jón Halldórsson
landpóstur í Djúpi
Jóhanna G. Kristjánsdóttir
í Gjörfudal
Gunnvör Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík.
Beinteinn Bjarnason
söðlasm. í Rvík.
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfr. og vkk. í Rvík.Sigríður
Beinteinsdóttir
Beinteinn Ásgeirsson
dúklagninga- og veggfóðraram. í Rvík.
Svava Jóna Markúsdóttir
húsfr. í Rvík.
Halldóra Jónsdóttir
húsfr. í Súðavík
Markús Kristjánsson
fiskmatsm. í Súðavík
Sigríður Beinteinsdóttir
húsfr. í Rvík.
Ásgeir V. Einarsson
dúklagninga- og
veggfóðraram. í Rvík.
Einar Jónsson
sjóm. í Rvík.
Árni Markússon
vélsmiður
Halldóra Árnadóttir
leirlistakona
Ólafur Beinteinsson
trúbador í Kátum félögum
Guðrún Beinteinsdóttir
píanóleikari í Rvík.
Sigurður Jónsson
í Görðum viðÆgissíðu
Einar Gunnar
forstjóri
Ólafur
fyrrv. gítarleikari í Sóló
Ómar Einarsson
gítarleikari
María Th. Ólafsdóttir
búningahönnuður
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012
Haraldur Guðmundsson ráð-herra fæddist 26.7. 1892.Hann var sonur Guð-
mundar Guðmundssonar, prests í
Gufudal og síðar ritstjóra á Ísafirði,
og k.h. Rebekku, systur ráðherr-
anna Kristjáns og Péturs. Faðir
þeirra systkina var
Jón Sigurðsson, alþm. og héraðs-
höfðingi á Gautlöndum
en móðir Rebekku var Sólveig,
dóttir Jóns Þorsteinssonar, ættföður
Reykjahlíðarættar, sem státar af
fleiri ráðherrum en nokkur önnur.
Haraldur lauk prófi frá Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri, stundaði
síðan kennslu, vegavinnu og blaða-
mennsku.
Haraldur var einn Ísafjarðar-
kratanna en bróðir hans, Sigurður,
bakarameistari á Ísafirði, var faðir
Jóns, fyrrv. ráðherra og síðar aðal-
bankastjóra Norræna fjárfestingar-
bankans.
Haraldur var ritstjóri Alþýðu-
blaðsins 1928-31 og bankastjóri á
Seyðisfirði 1931-34. Hann var alþm. í
þrjá áratugi, frá 1927-57 að und-
anskildum árunum 1947-48. Þá var
hann formaður Alþýðuflokksins
1954-56 en honum hafði þá verið
stefnt fram gegn sitjandi formanni,
gömlum félaga, Hannibal Valdi-
marssyni, árið 1954.
Haraldur varð atvinnumálaráð-
herra í Stjórn hinna vinnandi stétta
1934 og gegndi því embætti til 1938
er hann sagði af sér í mótmælaskyni
við frumvarp forsætisráðherrans um
gerðardóm í kjaradeilu útgerðar-
manna og togarasjómanna. Hann
mun hafa verið fremur atkvæðalítill í
þessari draumastjórn þeirra Her-
manns Jónassonar og Eysteins
Jónssonar.
Haraldur var ekki fríður maður en
á myndum minnir hann nokkuð á
Humphrey Bogart. Hann bjó yfir
persónutöfrum, var vel gefinn, prúð-
ur og fyrirmannlegur í framkomu og
líklega í hópi mælskustu þingmanna
Alþýðuflokksins.
Haraldur átti síðar eftir að verða
sendiherra en hans verður líklega
lengst af minnst fyrir störf sín í þágu
almannatrygginga hér á landi.
Haraldur lést 23. október 1971.
Merkir Íslendingar
Haraldur
Guðmundsson
95 ára
Ragnheiður Hallgrímsdóttir
90 ára
Sigurbjörg Erlendsdóttir
85 ára
Agnar Jónsson
Bjarni Helgason
Jóhanna Kjartansdóttir
Jón Aðalsteinn Vilbergsson
Ólafur Sveinbjörn
Vilhjálmsson
80 ára
Guðmundur H. Pálmason
Kristján Ásgeirsson
Ólafur Einar Magnússon
75 ára
Lilja Sigurðardóttir
Sigrún Óskarsdóttir
Vilborg Nikulásdóttir
70 ára
Gunnhildur Kristjánsdóttir
Hólmfríður Þórarinsdóttir
Ólöf Eyjólfsdóttir
Sigríður Gunnarsdóttir
Valdimar Valdimarsson
60 ára
Guðný Guðmundsdóttir
Helga María Bragadóttir
Hugrún Stefnisdóttir
Jóhanna Karlsdóttir
Jóna Kristjánsdóttir
Leifur Dagmann Björnsson
Sólveig Magnúsdóttir
50 ára
Anna Björk Ágústsdóttir
Bára Björnsdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Jónas Jónasson
Karólína Valtýsdóttir
Lesley Cynthia Wales
Lóa Steinunn
Kristjánsdóttir
Sigríður Guðlaug
Ólafsdóttir
Sigurður Jóhann Lövdal
Snjólaug Jónína
Brjánsdóttir
Vignir Guðjónsson
Þóra Kristrún
Guðbjartsdóttir
40 ára
Anna Maria Frontczak
Dagný Ósk Hermannsdóttir
Eybjörg Drífa Flosadóttir
Guðlaug Kristjánsdóttir
Guðrún Magnea
Guðmundsdóttir
Guðrún Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Smáradóttir
Jónmundur Gunnar
Guðmundsson
Óðinn Örn Jóhannsson
Selma Stefánsdóttir
Sigurður Jónsson
Sigurjón Atli Sigurðsson
Stefanía Björk Sigfúsdóttir
30 ára
Ana Maria Brasoveanu
Álfheiður Eva Óladóttir
Ásta B. Orellana
Björnsdóttir
Bjarki Þór Aðalsteinsson
Björn Ísberg Björnsson
Eggert Gíslason
Þorsteinsson
Gunnþórunn Elíasdóttir
Hildur Guðjónsdóttir
Jóhann Örn Sigmundsson
Katharina Sommermeier
Kristín Bjarnveig
Böðvarsdóttir
Marteinn Arnar Olsen
Heimisson
Marteinn Guðjónsson
Ólöf Kolbrún Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Pétur ólst upp á
Þorvaldsstöðum í Breið-
dal en er nú búsettur á
Stöðvarfirði þar sem
hann gerir út trillu.
Maki: Agnes Klara Jóns-
dóttir, f. 1989, nemi við
ME og hundaræktandi.
Foreldrar: Viðar Péturs-
son, f. 1961, bóndi á Þor-
valdsstöðum í Breiðdal,
og Marta Rut Sigurð-
ardóttir, f. 1963, sauma-
kona og heilsunuddari í
Noregi.
Pétur
Viðarsson
30 ára Hafný lauk próf-
um á skristofubraut við
MK, og starfar hjá Ice-
landair Technical Service.
Marki: Freyr Vilhjálms-
son, f. 1971, sölumaður.
Börn: Sigurdís, f. 2004;
Aðalsteinn, f. 2008.
Foreldrar: Herdís Þórð-
ardóttir, f. 1958, við Heil-
brigðisst. og Hafsteinn
Hafsteinsson, f. 1957,
verktaki. Stjúpfaðir: Sig-
urður Egilsson, f. 1956,
bílstjóri.
Heiðrún Hafný
Hafsteinsdóttir
30 ára María ólst upp á
Björnskoti á Skeiðum,
lauk kennaraprófi frá HA
2006, lauk diplomaprófi í
sérkennslufræðum og er
nú kennari í Grundarfirði.
Maki: Hlynur Sigurðsson,
f. 1987, stýrimaður.
Sonur: Ólafur Geir Hlyns-
son, f. 2012.
Foreldrar: Anna Gísla-
dóttir, f. 1961, bóndi í
Eyði-Sandvík, og Ólafur
Ingi Sigurmundsson, f.
1961, bóndi þar.
María Ósk
Ólafsdóttir
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is