Kjarninn - 31.07.2014, Side 16
08/09 nEytEnduR
minni aðilar hafa áhyggjur
Líkt og áður sagði er tæpur helmingur af áfengissölu tekjum
ÁTVR vegna sölu á bjór. Þorri bjórsins sem keyptur er í
verslunum fyrirtækisins er framleiddur innanlands, eða 72
prósent. Það hlutfall hefur farið ört vaxandi á undanförnum
árum. Árið 2004 var hlutfallið 64 prósent.
Margir neytendur virðast hafa áhyggjur af því að vöru-
úrval minnki ef sala á bjór og léttvíni fer inn í matvöru-
verslanir. Agnes Sigurðardóttir, einn eigenda Bruggverk-
smiðjunnar á Árskógssandi sem bruggar Kalda, sagði við
Fréttablaðið um miðjan júlí að hún væri hrædd um að
Íslendingar myndu taka nokkur skref aftur á bak ef af
þessum breytingum yrði. Litlar bruggverksmiðjur myndu
líklega eiga erfitt að koma vörum sínum að. Í sömu frétt lýsti
Dagbjartur Arilíusson, forstjóri bruggverksmiðjunnar Steðja
í Borgarfirði, andverðri skoðun. Vínbúðir ÁTVR sinni ekki
íslenskri framleiðslu nægilega vel og því hafi minni fram-
leiðendur engu að tapa með breytingunum.
Hafnar því að vöruúrval dragist saman
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segist aðspurður ekki geta útallað sig um það
hvort vöruframboð muni dragast saman verði frumvarpið
að lögum. „Það er markaðsaðila að segja til um það, en ég
þekki rökin og skil sjónarmiðið. Ég veit að innflytjendur
áfengis eru þeirrar skoðunar að framboðið kynni að dragast
saman. En samtökin eru samt sem áður þeirrar skoðunar
að það beri að leggja ÁTVR niður í núverandi mynd og færa
þessa verslun inn í búðir. Við erum á móti því að ríkið stundi
verslun með nauðsynjavörur.“
Andrés telur nauðsynlegt að ráðast í breytingar á fyrir-
komulagi á skattlagningu áfengis samhliða því að einokun
ríkisins á sölu þess yrði aflétt. „Verð á vöru hefur afgerandi
áhrif á ákvarðanir fólks við kaup á vöru. Vegna þess hversu
skattlagningin á áfengi er mikil þá skiptir máli að hún verði
endurskoðuð þannig að vöruúrval þurfi ekki að minnka.“
Finnur Árnason, forstjóri Haga, sem rekur meðal annars