Morgunblaðið - 03.08.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sú mikla styrking sem hefur verið á
gengi krónunnar undanfarið er þeg-
ar farin að koma fram í verðlagi á bíl-
um, þó að pöntunartími þeirra sé yf-
irleitt mun lengri en á flestum öðrum
innfluttum vörum. Þannig lækkaði
Toyota á Íslandi gjaldskrá sína um
3% núna um mánaðamótin á flestum
bíltegundum. Hekla hyggst einnig
lækka og önnur umboð fylgjast sem
fyrr vel með gengisþróuninni.
„Ef gengið styrkist enn frekar þá
lækkum við en það er alltaf töf á
þessu þar sem afhendingartími á bíl-
um er yfirleitt um sex mánuðir,“ seg-
ir Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar. Hann segir skammt síðan
meðalgengi evru gagnvart krónu
hafi farið að lækka verulega.
„Við hækkum ekki strax ef krónan
veikist og lækkum að sama skapi
ekki um leið ef krónan styrkist. Það
líður þarna alltaf einhver tími,“ segir
Egill og bætir við að það sé ekki rétt
sem ASÍ og Neytendasamtökin hafi
haldið fram í Morgunblaðinu að inn-
flutningsfyrirtæki hækki verð mun
hraðar ef krónan veikist og lækki
hægar ef hún styrkist.
„Samkeppnin tryggir að menn
verða að lækka og hækka hægar
heldur en þarf ef gengið veikist,“
segir Egill.
„Verðlisti mánaðarins er að lækka
aðeins,“ segir Björn Snædal Hólm-
steinsson, fjármálastjóri Heklu, en
gefur ekki upp um hve mikið. Það sé
mismunandi eftir bíltegundum.
Hann segir lækkunina fyrst og
fremst viðbrögð við samkeppninni
frekar en að skýringin liggi ein-
göngu í styrkingu krónunnar. Hekla
hafi í tvígang ekki tekið á sig gengis-
sveiflu og látið vera að hækka verðið
þó að krónan hafi veikst gagnvart
myntum eins og evru og dollar sl.
vetur.
Þó að gengið sé að styrkjast núna
bendir Björn á að kostnaður bíla-
framleiðendanna hefur aukist sem
og flutningskostnaður. Hann segir
Heklu hafa verið að taka á móti
stórum bílasendingum í þessari og
næstu viku og þeir bílar séu klárlega
fluttir inn á lægra gengi en var fyrir
mánuði.
Rúnar H. Bridde, sölustjóri nýrra
bíla hjá BL, segir umboðið ekki hafa
ákveðið verðbreytingar. Til sé lager
sem hafi verið greiddur fyrir margt
löngu á mun hærra gengi en er í dag.
„Þegar evran fór í 170 krónur í
apríl þá tókum við það á okkur og
hækkuðum ekki verð. Ef þessi styrk-
ing heldur áfram þá munum við end-
urmeta stöðuna,“ segir Rúnar.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, segir
sölu nýrra bíla hafa gengið vel það
sem af er ári. Hefur verið viðvarandi
um 50% aukning milli mánaða, borið
saman við síðasta ár. Frá áramótum
fram til 13. júlí sl. höfðu verið fluttir
inn 5.188 bílar, miðað við 3.056 fyrstu
sjö mánuðina í fyrra.
Bílaumboðin bregðast við
Sterkari króna að skila sér í bílainnflutningi Toyota á Íslandi lækkaði nýja bíla um 3% 1. ágúst
Hekla hyggst einnig lækka Brimborg og BL meta stöðuna Viðvarandi söluaukning á árinu
Morgunblaðið/RAX
Bílainnflutningur Dágott safn af nýjum bílum er núna við Sundahöfn og von er á enn fleirum á næstunni.
„Þetta er mikill innflutningur og
verð breytist í hverri sendingu,
til hækkunar eða lækkunar.
Helst eru það raftæki sem hafa
lækkað í verði,“ segir Gestur
Hjaltason, framkvæmdastjóri
Elko, spurður hvort styrking
krónunnar hafi skilað sér und-
anfarið í verðlagi raftækja.
Gestur segir Elko og fleiri fyr-
irtæki hafa haldið aftur af sér í
hækkunum þegar krónan var
hvað veikust og framlegðin ver-
ið í lágmarki. Framleiðsluverð
hafi einnig hækkað þannig að
gengisbreytingar á Íslandi segi
ekki alla söguna. Bendir Gestur
á að raftæki hafi á síðasta ári
lækkað í verði um 10%. Hægt
hefur á þeim lækkunum á þessu
ári en samkvæmt nýjustu mæl-
ingu Rannsóknaseturs versl-
unarinnar jókst velta í raftækj-
um um 10,6% í júní sl. og verðið
var 0,1% lægra en í júní árið
2011. Verð á öðrum vörum eins
og dagvöru, áfengi, fötum og
húsgögnum hækkaði milli ára.
Lægra verð
á raftækjum
SALA HEIMILISTÆKJA
Sigdæld myndaðist á yfirborði Mýrdalsjökuls
í fyrra þegar hljóp úr katlinum þar undir með
miklum látum. Hlaupið tók af brúna yfir
Múlakvísl sem kunnugt er.
Vatn safnaðist í sigdældina og ljós rönd
sýnir hvað vatnið náði hátt einhvern tíma í
vor, að sögn Odds Sigurðssonar, jökla-
sérfræðings hjá Veðurstofunni.
Lækur hefur myndast á jöklinum og renn-
ur hann inn í tjörnina. Við upptök lækjarins
má sjá mynstur sem minnir á trjágreinar.
Oddur sagði svona mynstur vera dæmigert
fyrir stað þar sem vatn sprettur fram og rýf-
ur snjóinn. Skjannahvítt hrímið meðfram
læknum hefur líklega myndast í nætur-
frostum á jöklinum. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Lækur sprettur upp á miðjum Mýrdalsjökli