Morgunblaðið - 03.08.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Nú þegar styttist í kosningarfelst hluti af spuna ríkis-
stjórninnar í því að saka þá um „böl-
móð“ sem segja satt um efnahags-
ástandið.
Eina slíka greineftir spuna-
menn sína birti for-
sætisráðherra í Við-
skiptablaðinu í gær.
Svo óheppilega vildi
til að í sama blaði
var frétt um þróun
skatta hér og í þeim
löndum sem við ber-
um okkur helst sam-
an við.
Þar kom fram aðnúverandi rík-
isstjórn státar af meti í skattahækk-
unum og er það ekki árangur sem
ástæða er til að gera lítið úr.
Hér hafa skattar á fyrirtæki tildæmis hækkað um þriðjung en
ekkert annað af þessum ríkjum
hafði hækkað skatta á fyrirtæki og
sum lækkað þessa skatta.
Svipaða sögu er að segja um skattaá einstaklinga. Þeir hafa hækk-
að mikið hér á landi í tíð ríkisstjórnar
Jóhönnu og Steingríms en annars
staðar hafa litlar breytingar orðið.
Nú er svo komið að í stað þess aðskattaumhverfi á Íslandi sé
tiltölulega hagfellt og styðji fremur
við uppbyggingu atvinnulífsins en
dragi úr henni er umhverfið nei-
kvætt.
Það er ekki aðeins neikvætt vegnaþess að skattar eru hér orðnir
jafnir eða hærri en annars staðar,
heldur ekki síður vegna þess að
stjórnvöld hafa sýnt að hér er til-
hneiging til að hækka skatta sem
mest og hræra í sífellu í skattkerf-
inu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Skattamethafar
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 2.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 heiðskírt
Bolungarvík 13 heiðskírt
Akureyri 12 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 14 alskýjað
Vestmannaeyjar 13 skýjað
Nuuk 12 súld
Þórshöfn 9 alskýjað
Ósló 15 skúrir
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 20 skýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 20 léttskýjað
London 20 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 21 skúrir
Berlín 27 skýjað
Vín 30 léttskýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 31 heiðskírt
Róm 32 léttskýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 28 heiðskírt
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:44 22:25
ÍSAFJÖRÐUR 4:28 22:50
SIGLUFJÖRÐUR 4:10 22:34
DJÚPIVOGUR 4:08 21:59
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga frá 11-16
SÍÐASTI DAGUR ÚTSÖLU
ER LAUGARDAGINN 4. ÁGÚST
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Þristurinn bandaríski, Douglas
DC3, hefur lengi verið goðsögn
og snert viðkvæma taug hjá flug-
áhugamönnum enda tímamóta-
smíð þegar vélin kom fram á
sjónarsviðið um miðjan fjórða
áratug síðustu aldar. Hraði og
flugdrægi Þristsins var svo mikill
að innreið hans gerbreytti far-
þegaflugi. Fyrsta gerðin tók 21
farþega. Hönnunin reyndist af-
burðasnjöll og endingargóð og
varð fyrirmynd margra annarra.
Vél Þristavinafélagsins var
smíðuð árið 1943, hún hefur ver-
ið í eigu Íslendinga frá 1946 og
verið í notkun nær óslitið frá
þeim tíma. Hún var lengi notuð í
farþegaflugi hjá Flugfélagi Ís-
lands en síðar til að dreifa fræi
og áburði fyrir Landgræðsluna.
Ætlunin er að breyta henni
núna, taka úr henni frætankana
þannig að hægt verði að fljúga
útsýnisflug fyrir liðsmenn fé-
lagsins og þannig afla tekna.
Hvert flug kostar um 260 þús-
und krónur, að sögn Tómasar
Dags en þess má geta að fé-
lagsmenn eru um 600. Ice-
landair hefur veitt fjárstuðning
til þess að hægt sé að fljúga vél-
inni við sérstök tækifæri.
Flogið með
farþega og
fræ frá 1943
GOÐSÖGN MEÐ VÆNGI
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Þristurinn Páll Sveinsson, hin gamla DC-3 flugvél
Þristavinafélagsins, fer ekki í loftið á næstunni.
Hún fékk að þessu sinni ekki endurnýjað árlegt
lofthæfiskírteini sitt hjá Flugmálastjórn áður en
lokafrestur rann út 31. júlí. Formaður Þristavina-
félagsins, Tómas Dagur Helgason, segir að ekki
hafi tekst að safna saman þeim gögnum sem kraf-
ist hefði verið um allar breytingar á vélinni í
gegnum tíðina.
Ekki fengust svör hjá Flugmálastjórn í gær-
kvöld við því hvort reglum um lofthæfi hefði verið
breytt og því ekki ljóst hvers vegna skírteinið
fékkst ekki endurnýjað. Tómas leggur áherslu á
að ekki sé um að ræða deilur við Flugmálastjórn,
félagið hafi ávallt átt gott samstarf við hana en
ágreiningur sé þó um túlkun á reglum. Hann seg-
ist sannfærður um að lausn finnist á málinu.
„Við erum einfaldlega ekki búnir með þennan
lista,“ sagði Tómas. Eitt af því sem geri verkið
snúið sé að ýmis gögn um vélina hafi glatast í
eldsvoða á áttunda áratugnum.
Þristurinn fer ekki á loft í bili
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
DC3 Páll Sveinsson flýgur síðasta áburðarflugið.
Lofthæfisskírteinið fékkst ekki endurnýjað hjá Flugmálastjórn í tæka tíð