Morgunblaðið - 03.08.2012, Qupperneq 11
UMF Selfoss Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í heimabæ þessara ungu stúlkna í ár.
arvert fyrir samböndin að fá að
halda þau. Næstu tveimur mótum
hefur þegar verið úthlutað en það
verður haldið á Hornafirði árið 2013
og á Sauðárkróki 2014. Þá verður
tilkynnt núna á mótinu hver sér um
mótið 2015 en það voru UMFS í
Borgarnesi og Ungmennafélag Ak-
ureyrar sem sóttu um. Ómar Bragi
samsinnir því í léttum dúr að mótið
sé eins og litlir Ólympíuleikar þar
sem virkilega sé sóst eftir að halda
það. Til að umsókn sé samþykkt
segir Ómar Bragi að þurfi stuðning
sveitarfélaganna og heimamanna
enda sé gífurlegt átak fyrir mörg
samfélög að halda slík mót en á
móti skili það gríðarlega miklu.
Prófa sem flestar greinar
Landsmót sem þetta skapar
góðan vettvang fyrir fjölskylduna til
að eiga samverustund auk þess sem
ungmennunum gefst kostur á að
prófa ýmsar íþróttir.
„Krakkarnir geta skráð sig í
fótbolta og sund eða fóltbolta og
frjálsar, körfubolta og hestaíþróttir
eða hvað það er. Þau keppa oft í
fleiri en einni grein og þá ekkert
endilega því sem þau eru að æfa.
Við hvetjum þau til að prófa aðrar
greinar og nú er að bætast við staf-
setningar- og upplestrarkeppni líka.
Ég held að flest félög geri sér grein
fyrir því að brottfall úr íþróttum á
unglingsaldri hefur alltaf verið til
staðar og við viljum reyna að stuðla
að því að þau stundi íþróttir lengur.
Það er staðreynd að íþróttaiðkun
skiptir máli sem forvarnaþáttur
gegn vímuefnum. Þau sem eru orð-
in eldri en 18 ára hafa líka sóst eftir
því að vera með og hafa sent okkur
póst um hvort ekki sé hægt að
hækka aldurinn í 19 eða 20 ár. Þá
er aldursbilið orðið öllu breiðara en
það er alltaf í umræðunni hjá okkur
hvort þessu megi breyta,“ segir
Ómar Bragi.
Dugnaður og jákvæðni
Hann segir sömu fjölskyldurn-
ar koma á mótið ár eftir ár en tjald-
stæði er ókeypis fyrir utan raf-
magn. Þátttökugjald fyrir
ungmenni sem ætla að keppa er
6.000 krónur og fyrir það geta þau
keppt í einni grein eða öllum. Þá
ættu systkini að geta haft nóg fyrir
stafni en dagskrá hefur verið sett
saman fyrir þau með sögustund,
leiktækjum og fleiru. Þá verður nóg
annað um að vera á Selfossi yfir
helgina, t.d. handverksmarkaður.
Ómar Bragi segir ástæðu til að taka
það fram að gott hafi verið að vinna
með sveitarfélaginu að undirbúningi
mótsins og hafi menn þar verið ein-
staklega duglegir og jákvæðir.
„Því miður er umræðan um
unglinga oft frekar í neikvæðari
kantinum í samfélaginu en okkur
finnst svo mikið til af flottum börn-
um og unglingum. Auðvitað eru
alltaf til svartir sauðir inni á mili en
þau eru upp til hópa frábær og for-
réttindi fyrir okkur að fá að vinna
með þeim í kringum þessi mót. Þau
eru full af lífi og hugmyndum um
hvernig þau vilja hafa mótin sem
við hlustum á og tökum tillit til. Það
er hluti af undirbúningnum að fá til
okkar hóp krakka, bæði sem hafa
farið áður og eru að fara í fyrsta
sinn á slíkt mót, til að deila með
okkur hugmyndum sínum og reyn-
um við að framkvæma sem flestar.
Enda er þetta þeirra mót og hátíð
fyrst og fremst,“ segir Ómar Bragi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
GOTT AÐ GRILLA
Fjölbreytt úrval fiskrétta
Margt verður á dagskrá á unglingalandsmóti UMFÍ um helgina. Í dag,
föstudag, verður keppt í frjálsíþróttum, knattspyrnu, körfubolta og golfi.
Þá verður barna-hæfileikakeppni klukkan 13 á útisviði og eftir það, klukk-
an 13:30, tekur við gönguferð um Þrastaskóg undir leiðsögn Björns B.
Jónssonar.
Á Selfossvelli verða leiktæki fyrir yngstu börnin og skemmtidagskrá á
útisviði kl. 15. Þá er aðeins fátt eitt upp talið en um kvöldið verður kvöld-
vaka þar sem Ingó og Veðurguðirnir
sjá um að skemmta gestum.
Á laugardag heldur keppni áfram í golfi, körfubolta, sundi, skák, frjáls-
íþróttum og fleiri íþróttagreinum. Skemmtidagskrá verður einnig yfir
daginn með sögustund, mínútuþraut og fleiru. Um kvöldið verður kvöld-
vaka þar sem meðal atriða eru DJ Sveppz, Úlfur Úlfur, zumbadans og
Stuðlabandið. Margt fleira verður í boði en ítarlega dagskrá er að finna á
heimasíðu Ungmennafélags Íslands, www.umfi.is.
Keppni og kvöldvaka
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Naglaumhirða þarf ekki að fara norður og
niður þótt maður sé á fullu að keppa á Ól-
ympíuleikunum. Margir þeirra sem nú keppa í
London hafa látið skreyta neglur sínar á
skrautlegan hátt. Lit og skraut er að sjá á
nöglum sundfólks, hjólreiðakappa, kraftlyf-
ingafólks og fleiri en fólk nýtir óspart tæki-
færið til að skreyta neglurnar með þjóðfána
sínum.
Á myndinni má sjá neglur bresku sundkon-
unnar Rebeccu Adlington skreyttar með
breska ríkisfánanum. Sannarlega vel skreytt-
ar neglur sem vekja athygli áhorfenda.
Litríkar neglur
Naglaskraut á Ólympíuleikum
Það eru bölvuð læti í mér. Éger hávær. Það var reyndarskrifað í skýin: Pabbi eróperusöngvari. Það heyrist
duglega í þeim. (Ég var ræktaður til
þess að standa á sviði en formúlan
klikkaði.) Hljóðstyrkurinn kemur
reyndar ýmsum á óvart því ég er
með fisléttan líkama Rons Pauls, 76
ára gamals frjálshyggjumanns, og er
skapgott ljúfmenni.
Ég hef ekki verið sérstaklega
meðvitaður um hve öflugur radd-
styrkur minn er. Um daginn fékk ég
úthlutað verkefni sem átti ekki að
spyrjast út strax og var því bent á að
yfirleitt heyrðu allir í húsinu hvað ég
segði í símann. „Það er lík-
lega best að þú vitir það,“
var sagt. (Mér leið eins og
ég, blessaður sumarræfill-
inn, væri ögn þekktari
fyrir vikið. Þetta litla svið
skrifstofunnar verður víst
að duga fyrst formúlan
klikkaði.) Ég var
því vinsamlegast
beðinn að eiga öll
símtöl sem
tengdust málinu
í þar til gerðum
símaklefa –
fjarri manna-
byggðum. Ekki
úti í Móa þar
sem mikið af
fólki leggur við
hlustir.
Skömmu síðar vor-
um við vinnufélag-
arnir að hlæja saman,
ég man nú ekki af
hverju, en ég hló
manna hæst. Þá var bent á mig og
tautað gapandi hissa yfir kraftmikl-
um hlátrinum: „Heyrðirðu þetta?“ –
Ég heyrði þetta!
Þegar maður hefur eytt stórum
hluta af fullorðinsárum sínum í að
hlusta á upptökur með eigin sam-
tölum, eins og ég hef gert frá árinu
2006, verður maður eiginlega að
kunna vel að meta rausið í sjálfum
sér. Ég
reyndar
bý svo vel,
annað en allir
aðrir, að ég get ein-
faldlega lækkað í upp-
tökutækinu – svona ef ég
gerist of hávær. Aðrir
verða bara að þola þetta.
Ég get ekkert verið að
tóna mig niður. Til þess er
ég of latur og íhalds-
samur. Fólk getur svo
sem huggað sig við það
að ég er ekki marg-
orður.
»Mér leið eins og ég,blessaður sumarræfill-
inn, væri ögn þekktari fyrir
vikið. Þetta litla svið skrif-
stofunnar verður víst að
duga fyrst form-
úlan klikk-
aði.
Heimur Helga Vífils
Helgi Vífill Júlíusson
helgivífill@mbl.is
Laugardaginn 4.
ágúst klukkan 13
verður nýstárlegur
skóli opnaður á Pat-
reksfirði, nánar til-
tekið í Sjóræningja-
húsinu. Um að ræða
skóla fyrir verðandi
sjóræningja og aðra
sem vilja fræðast
um ýmislegt er við-
kemur sjóferðum.
Þar munu nem-
endur þurfa að
leysa verkefni á borð við að velja réttan
kost til sjóferðar, rata eftir stjörn-
unum, hnýta hnúta og ýmislegt fleira.
Um sjálfsnám er að ræða en við komu í
skólann fá nemendur afhenta verk-
efnabók sem þeir þurfa að fylla inn í og
útskrifast þeir þegar öll verkefnin í
bókinni hafa verið leyst.
Sjóræningjaskólinn verður opinn
alla daga til 3. september, frá klukkan
11-18. Skólasetningin stendur yfir frá
klukkan 13-18 og í tilefni opnunarinnar
verður öllum nemendum boðið upp á
hressingu við útskrift.
Menningarráð Vestfjarða styrkir
gerð skólans.
Sjóræningjaskóli á Patreksfirði
Ratað eftir stjörnum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sjóræningjar Hér er ef til vill lagt á ráðin um fjársjóðsleit.