Morgunblaðið - 03.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Full búð
af fallegum
fatnaði á alla
fjölskylduna!
F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M
Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M !
KRINGLUNNISími: 5513200
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Kenningar Ítalans Giancarlo Gianazza, minna
helst á afburða snjallan söguþráð í skáldsögu eða
kvikmynd í líkingu við Da Vinci lykilinn eftir Dan
Brown og aðra áþekka höfunda, sem hafa notið
mikilla vinsælda undanfarið. Eins og segir frá á
baksíðu blaðsins leitar Gianazza nú að ævagöml-
um handritum frá frumkristni í Kerlingarfjöllum,
nánar tiltekið við ána Jökulfall.
Kenningar Gianazza opna alveg nýja nálgun við
rannsókn dulfræða bæði á miðöldum og síðar.
Þær eru umdeildar eins og flest sem tekur á þessu
efni en góð viðbót við fræðin.
Hægt er að lesa allt um efnið í bók hans og Gain
Franco Freguglia, I Custodi Del Messaggio, sem
útleggst á íslensku Gæslumenn skilaboðanna.
Hann reifaði einnig kenningar sínar í viðtali í
tímaritinu Hera Magazine í nóvember 2006.
Stuðst er við þýðingu Gísla Ólafs Péturssonar á
því viðtali og einnig vefsíðu hans Góp-fréttir sem
hefur að geyma ítarlega úttekt á verkefninu. Gísli
er einn leiðangursmanna Gianazza.
Kenningar Gianazza byggja í bland á þekktum
goðsögnum og sögulegum staðreyndum og vísa til
leitarinnar að hinum heilaga kaleik eða gral.
Margar tilgátur eru til um hvað gralið sé í raun og
veru og hefur það fengið yfirbragð samheitis um
leit sem lagt er upp í í nafni kristindómsins. Leit
að sannleikanum. Gralið vísar meðal annars til
reglu musterisriddara en oftast fyrst og síðast til
upphafs kristindómsins.
Dante og Sturlunga
Upphaf kenninga Gianazza má rekja til ársins
1125. Þá fundu fyrstu musterisriddararnir eitt-
hvað mikilvægt í Jerúsalem. Hann telur að það
hafi verið fornir munir og skráðar heimildir sem
tengdust viðfangsefnum og sögu elstu kristni.
Í hundrað ár voru þessir hlutir í suðurhluta
Frakklands. Þá var heilagur Bernard frá Clair-
vaux andlegur leiðtogi musterisriddaranna og
Gianazza telur hann hafa verið gæslumaður þess-
ara muna. Mikil leynd hvíldi yfir þeim því þeir
voru áþreifanleg sönnunargögn. Þeirra var því
gætt vel og faldir þar sem erfitt var að finna þá.
Árið 1209 varð Frakkland ekki öruggur felu-
staður og þá var ákveðið að best væri að færa
munina til Íslands.
Til sönnunar fyrir því vísar Gianazza til Sturl-
ungu frá 1216 sem segir: „Snorri reið upp með sex
hundruð manna og voru átta tigir Austmanna í
flokki hans alskjaldaðir.“ Jafnframt gerir hann
ráð fyrir að þeir hafi notið aðstoðar Snorra til að
finna hentugan felustað á Kili.
Um hundrað árum síðar var skáldið Dante
(1265-1321) fengið til að skrifa í ljóði leiðarvísi fyr-
ir komandi kynslóðir til að finna hina földu muni á
Íslandi. Leiðarvísirinn er Guðdómlegi gleðileik-
urinn. Á árunum 1490-1520 settu listamennirnir
Botticelli, Leonardo da Vinci og Rafael sömu upp-
lýsingar inn í verk sín. Tilgangurinn var að gefa
fleirum tækifæri til að nema þessar sömu upplýs-
ingar um leyndardóminn. Nú þarf einungis að
finna munina til að staðfesta tilgátuna.
Þetta fullyrðir Gianazza. Tengsl séu milli Ís-
lands og merkustu vísinda- og listamanna ald-
arinnar, umfram aðra gegni Leonardo Da Vinci
lykilhlutverki og málverk hans af Síðustu kvöld-
máltíðinni.
Ferðalag Dante til Íslands
Jafnframt les hann þau skilaboð út úr Guð-
dómlega gamanleiknum að Dante hafi sjálfur far-
ið til Íslands. Hann vísar til þess að pílagrímar frá
Íslandi fóru til Rómar og til landsins helga að
minnsta kosti frá 12. öld. Það er því ekkert sem
mælir gegn því að Dante hafi getað farið hina leið-
ina, frá Róm til Íslands. Hann tímasetur förina
nákvæmlega, sennilega árið 1319.
Ferðalýsingin er fólgin í kafla XXVII í Hreins-
unareldinum. Dante fer um Luni, Sarzane, Stura-
dalinn, og Colle della Maddalena. Hann fer inn á
umráðasvæði Frakkakonungs við Macon, fer um
Reims og Amiens, um borð í skip í Strouanne og
siglir til Dover. Þar fer hann áfram til Stirling
kastala í Skotlandi, þaðan til Inverness þar sem
hann fer á báti til Hjaltlandseyja og loks þaðan til
Íslands.
Önnur ástæða er sú að meðal hinna níu must-
erisriddara sem fundu gripina í musterinu í Jerú-
salem var einn meðlimur Sinclair-fjölskyldunnar
sem átti ættir að rekja til Skotlands. Sú fjölskylda
hafi séð Ísland sem heppilegan felustað.
Í Gamanleiknum er mikilvæg staðfesting á því
að Ísland sé hið forna Tule. Í versinu um Hreins-
unareldinn XXXIII má lesa stafina TU LE nærri
versinu. Þar segir Gianazza að Dante gefi gráðu-
hnit eyjunnar við heimskautsbauginn.
Dante heimsótti Ísland á miðöldum
Frjóar kenningar Giancarlo Gianazza um leitina að hinu helga grali Byggja á málverkum
Botticelli, Leonardo og Rafaels og Guðdómlega gleðileiknum eftir Dante Fjöldi leiðangra til Íslands
Ljósmynd/Gísli Ólafur Pétursson
Kort Búið er að tengja saman leynilegan boðskap Síðustu kvöldmáltíðar
da Vinci við hnit og punkta sem reiknuð hafa verið út frá Gleðileiknum. Ferðalag Dante hefur farið þessa leið til að skrifa um gralið.
Punktar og mynstur
» Áhugi Gianazza kviknaði
þegar hann skoðaði málverkið
Vorið eftir Botticelli. Þar las
hann í talnatákn og fann út
hvað tölurnar táknuðu, 14.
mars árið 1319. Allt sem hann
las út úr myndum og öðru vís-
aði til Gleðileiksins eftir Dante.
» Í Kerlingarfjöllum hefur
hann fundið út enn fleiri teikn í
landslaginu sem vísa jafnt til
Gleðileiksins og málverka end-
urreisnartímabilsins. Hann
hefur reiknað út punkta og
teiknað upp mynstur sem eiga
að segja til um hvar gersem-
arnar eru geymdar.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Nýtt flugfélag, Eyjaflug, býður upp á
ferðir milli Vestmannaeyja og Bakka-
flugvallar um verslunarmannahelgina
og mun félagið starfa allt árið. Hefur
það keypt þrjár flugvélar sem Flug-
félag Vestmannaeyja átti en það fór í
þrot fyrir tveim árum. Bækistöðin
fyrir vélarnar verður í Eyjum þar
sem félagið hefur keypt flugskýli.
Félagið notar heitið Eyjaflug á
heimasíðunni en kallast annars Air
Arctic. Forstjórinn, Bergur Axelsson,
er með aðsetur á aðalskrifstofunni við
Stórhöfða í Reykjavík. Hann hefur
verið flugmaður í 27 ár og starfar hjá
Atlanta. Hann segir nýja félagið enn
fyrst og fremst fjölskyldufyrirtæki
sem njóti einnig góðrar hjálpar frá
kunningjum.
„Uppistaðan verður túristaflug á
sumrin en einnig munum við fljúga
milli Eyja og Bakkafjöru þegar Herj-
ólfur þarf að sigla lengri leiðina,“ seg-
ir Bergur. „Auk þess munum við
stunda leiguflug innanlands til að
nýta vélarnar sem best. Sú stærsta er
10 sæta, amerísk og af Piper Chief-
tain-gerð, hinar eru sex sæta, ítalskar
Partanavia-vélar.“ Hann segir að
stóra vélin sé 47 milljóna króna virði
en hinar minna, slíkar vélar kosti þó
um 25 milljónir ef þær séu í góðu
standi. Arctic Maintenance á Akur-
eyri annast viðhaldið.
-Eruð þið í samkeppni við Ernir?
„Nei þeir fljúga milli Reykjavíkur og
Eyja. Þegar Flugfélag Vestmanna-
eyja var við lýði voru þeir að flytja allt
að 30 þúsund farþega árlega upp á
Bakka. Og túrisminn hefur aukist
gríðarlega í Vestmannaeyjum. Nú
vonum við bara að Landeyjahöfn fyll-
ist sem fyrst af sandi!“ sagði Bergur
glettnislega að lokum.
Bjóða flug milli
lands og eyja
Nýtt lógó Eigendurnir, Bergur Ax-
elsson (t.v.) og Einar Aðalsteinsson,
við eina vélina. Lógó á stéli er teikn-
ing af Árna Johnsen!
Eyjaflug hefur rekstur á þjóðhátíð