Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 33
Kveðja frá
Thorvaldsensfélaginu
Með þakklæti og virðingu
kveðjum við nú í dag eina af
okkar ágætu félagskonum,
Sigurlaugu Auði Eggertsdótt-
ur, sem lést mánudaginn 23.
júlí sl., 98 ára að aldri.
Hún gekk í Thorvaldsens-
félagið 1957 og var því búin að
vera í félaginu í 55 ár. Það má
því nærri geta að mörg stór
verkefni hefur verið við að
glíma hjá félaginu á þessum
langa tíma.
Sigurlaugu voru falin ýmis
trúnaðarstörf fyrir félagið.
Hún sat í stjórn Thorvaldsens-
félagsins frá 1962 til 1978.
Einnig sat hún í stjórn Barna-
uppeldissjóðs um árabil. Hún
Sigurlaug Auður
Eggertsdóttir
✝ Sigurlaug Auð-ur Eggerts-
dóttir fæddist á
Vindheimum í Lýt-
ingsstaðahreppi í
Skagafirði 9. júní
1914. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi 23. júlí
2012.
Útför Sigur-
laugar fór fram frá
Fossvogskirkju 1. ágúst 2012.
var ávallt jákvæð
og framtakssöm
við þau verkefni
sem hún tók að
sér. Hún var ein-
staklega dagfar-
sprúð kona og
gædd fáguðum
þokka.
Sigurlaug tók
þátt í mörgum
stórum verkefnum
sem félagið hrinti í
framkvæmd eins og byggingu
á Vöggustofu Thorvaldsens-
félagsins sem var reist við
Dyngjuveg 18 í Reykjavík. Það
var á afmælisdegi félagsins 19.
nóvember 1963 sem Thorvald-
sensfélagið afhenti Reykjavík-
urborg vöggustofuna með öll-
um innanstokksmunum að
gjöf. Já þær eru margar góðar
minningarnar sem forverur
okkar í félaginu kalla fram
þegar saga þeirra er rifjuð
upp.
Við þökkum Sigurlaugu fyr-
ir ljúfa samfylgd á liðnum ár-
um og öll hennar góðu verk
sem hún innti af hendi fyrir
félagið okkar.
Að leiðarlokum sendum við í
Thorvaldsensfélaginu fjöl-
skyldu hennar og öðrum að-
standendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kristín Zoëga, formaður.
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
"
# !
$% & '#%((
!
)& '( #
* & +
,
-+
!! (
. / $#%(
(
!
& !%& '#
"
! " ( 0
1 $#%((
!
! !
"
2(
) 3! !
)
# $
% $% &
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Erum með yndislega Cavalier til
sölu. Frábærir fjölskylduhundar
Upplýsingar í síma 566 8417.
www.dalsmynni.is. Bjóðum rað-
greiðslur Visa og Mastercard.
Hundaræktun með leyfi.
Cavalier-rakkar til sölu
Til sölu ótrúlega sætir cavalier
blenheim-hvolpar með ættbók frá
HRFÍ, örmerking, ein bólusetning (við
parvo og lifrarbólgu), ormahreinsun
og heilsufarsskoðun ,lyf- og sjúkra-
trygging í eitt ár og hægt að sækja
hvolpinn eftir 11 ágúst. Endilega
hafðu samband við okkur i e-mail:
laudia92@hotmail.com eða í sima
846 4221 Kveðja,Teresa og Klaudia.
www.teresajo.com
Gisting
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell
Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar.
Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting.
Sími 456 1600.
gisting@hotelsandafell.com
Húsnæði íboði
ÍBÚÐ Á ARNARNESI - GARÐABÆ
Ca. 100 fm 3ja herbergja glæsileg
íbúð á jarðhæð við sjávarsíðuna.
Sérinngangur og bílastæði. Leigist
rólegum og reyklausum einstaklingi
eða pari (ekki börn). Gæludýr ekki
leyfð. Leigist á 155 þús. kr. á mán.,
rafmagn og hiti innifalið. Húsgögn
geta fylgt.
Uppl. í síma 867 4822 og 554 5545.
Sumarhús
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
PARhús, Ásabraut 10 Keflavík,
skipti, ath. Til sölu um 140 fm sex
herb. parhús á 2 hæðum. Hús klætt
Steni-klæðningu. Ýmis skipti athug-
andi, t.d. sumarhús/bíll. Uppl. hjá:
jonas@heimsnet.is - sími: 691 2361.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Hafið þið séð Snúð ?
Snúður er loðinn, grár og hvítur högni
sem hefur ekki komið heim á Einimel
8 síðan 30. júlí. Ef einhver hefur séð
Snúð þá vinsamlegast hringið í Sigur-
björgu, í síma 858 1504.
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Vandaðir ökklaskór úr leðri, fóðraðir.
Stakar stærðir.
Tilboðsverð: 9.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Bátar
Zodiac seria 1, mjög meðfæri-
legur og léttur, hentugur í veiði,
kerra ekki nauðsynleg. Með 400 kg
burðargetu. Með bátnum er Merkuri
10 hestafla utanborðsmótor með
löngum legg. Mjög góður, lítið not-
aður. Seljast saman eða hvor í sínu
lagi. Verð fyrir heila pakkann kr.
200-250 þús. Uppl. í s. 849 3136.
Bílar óskast
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
BLACKLION SUMARDEKK,
tilboðsverð
175/65 R 14 kr. 10.900
195/65 R 15 kr. 12.500
205/55 R 16 kr. 13.900
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
(á móti Kosti),
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Tjaldvagnar
Tjaldvagn, Combi camp, árg. 1990
Er með til sölu tjaldvagn, Combi
camp, árgerð 1990, upphækkaðan,
tilvalinn til fjallaferða.
Verð kr. 110.000.
Upplýsingar: María, s. 617-6089
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - sími 551 6488.
Elsku Svana mín er fallin frá
langt um aldur fram. Kynni okk-
ar Svönu og Valda hafa varað í
nokkur ár og er ég mun ríkari
að hafa kynnst þessum öðlingum
á lífsleiðinni, svo einlæg, ljúf og
heilsteypt. Margra ljúfra sam-
verustunda er að minnast og
góðar minningar fara um hug-
ann, en þær eru það dýrmæt-
asta sem við eigum og enginn
tekur frá okkur. Skemmtileg
voru spilakvöldin í Húsafelli, þar
sem mikil keppni var í spila-
mennskunni og öll stig talin.
Þarna var verið að njóta stund-
arinnar með góðum mat, mikið
Jóhanna Svanlaug
Sigurvinsdóttir
✝ Jóhanna Svan-laug Sigurvins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 25. apríl
1954. Hún andaðist
á kvennadeild Land-
spítalans föstudag-
inn 20. júlí 2012.
Útför Jóhönnu
Svanlaugar fór fram
frá Keflavík-
urkirkju 27. júlí
2012.
sprellað og hlegið.
Ferðirnar á Sól-
heima voru
skemmtilegar og
alltaf innilegar
móttökur hjá þeim
hjónum. Toppurinn
á öllu var frábær
ferð í Karabíska
hafið, Svana svo
dugleg og gaf okk-
ur hinum ekkert
eftir þótt hennar
veikindastríð hafi verið hafið.
Hún var brött allan tímann og
naut ferðalagsins í botn. Henni
þótti nú ekki leiðinlegt þegar við
skelltum okkur í verslunarleið-
angur að siglingu lokinni, þá lék
mín á als oddi.
Á lífsleiðinni hittum við ein-
stakar persónur sem eru sannir
vinir og skilja eftir spor í hjarta
okkar. Það gerði Svana svo
sannarlega og hennar verður
sárt saknað.
Elsku Valdi og fjölskylda,
sönn hetja er fallin frá, missir
ykkar er mikill. Guð gefi ykkur
styrk á þessum erfiðu tímum.
Birna Guðjónsdóttir.
Tilfinningar, vilji og áræði
Margrétar færðu Íslendingum
þann trausta og góða borgara
sem falleg ung kona frá Aust-
urríki reyndist.
Hún var auk þess öllum
þeim kostum búin sem bestir
teljast, enda var Kristján
örugglega öfundaður þegar
hún varð hans.
Væntumþykja og virðing
fyrir landi og þjóð var alltaf
ofarlega í huga hennar og
gjörðum, enda var þessi aust-
urríska stúlka hinni nýju þjóð
sinni til mikils sóma.
Eigi einhverjir Íslendingar
skilið að verða settir á stall
vegna mannkosta sem þjóðinni
urðu að ánægju og gagni yrði
hún örugglega valin í hópinn.
Hún endurgalt allt ríkulega
sem henni veittist og varð
meira að segja betur að sér í
ástkæru, ylhýru tungunni en
Margrét Sveins-
dóttir Zúber
✝ MargrétSveinsdóttir,
fædd Margarete
Zúber, fæddist í
Kliening, Lav-
anttal í Austurríki
5. júlí 1927.
Útför Mar-
grétar fór fram
frá Grafarvogs-
kirkju 1. ágúst
2012.
margir þeir sem
fæddir eru og upp-
aldir á Íslandi,
enda upplifði hún
oft að viðmælend-
ur trúðu því ekki
að hún hefði ekki
svo mikið sem
heyrt íslensku fyrr
en um 25 ára að
aldri.
Íslenskan var
auk annarra kosta
það sem eftirtektarvert var í
fari hennar og með öllu öðru
er það ofarlega í huga, hvað
hún var lítillát. Ekki er langt
síðan ég ræddi við hana um
hjálpsemi hennar og dugnað.
Hún kannaðist ekki við að hafa
gert neitt annað en það sem
hún sjálf hafði ánægju af og
gerði lítið úr öllu því sem ég
veit og þakka.
Hún naut væntumþykju og
virðingar allra sem umgengust
hana og átti það svo sannar-
lega skilið.
Við söknum hennar sárt og
munum gera allt sem við get-
um til að lifa í anda hennar og
henni til sóma. Ég vona og
trúi að hin fámenna fjölskylda
verði henni alltaf til sóma og
sorgin víki fyrir góðum minn-
ingum um gegnheila og frá-
bæra ættmóður.
Leó E. Löve.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins á mbl.is
Minningargreinar
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.