Morgunblaðið - 03.08.2012, Side 38
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Nikhil Nathan Kirsh hefur vakið at-
hygli gangandi vegfarenda í Austur-
stræti með olíumálverkum sínum
sem undanfarna mánuði hafa prýtt
gluggana í húsnæði sem áður hýsti
Subway. Kirsh fæddist í London,
lærði myndlist og ljósmyndun í Man-
chester og Brighton. Eftir að hafa
starfað á vettvangi myndlistar í rúm-
an áratug víðs vegar um Bretland
flutti hann til Íslands í fyrra.
„Hvernig endaði ég á Íslandi? Það
er gullna spurningin,“ segir Nathan
þegar blaðamaður spyr hann um
flutningana. „Ég kom upprunalega
hingað til lands til að kenna hug-
leiðslu og varð yfir mig ástfanginn af
einni af hinum íslensku drottning-
um.Við erum enn ástfangin og höfum
nú eignast son,“ segir Nikhil en kona
hans starfar sem jógakennari hér á
landi. Nikhil vann áfram að myndlist-
inni eftir að hann flutti hingað til
lands og hélt sýningu í Gallerí Fold í
ágúst á síðasta ári.
Verk hans eru pólitísk og færa ým-
ist ákveðinn boðskap eða takast á við
táknmyndir stjórnmálaátaka sam-
tímans. Stærstur hluti verkanna er
portrettmyndir, en umfangsmesta
verkið af þeirri tegund sem Kirsh
hefur unnið hér á landi er olíu-
málverk af meðlimum stjórnlaga-
þings auk þess sem hann málaði
brennandi Alþingi. „Ég hafði mikinn
áhuga á framgangi íslenskra stjórn-
mála um það leyti sem ég flutti hing-
að. Þá sérstaklega vinnuna sem átti
sér stað við stjórnarskrárbreytingar
og upprisu alþýðuflokka,“ segir hann.
Að mati Kirsh gegna listamenn
ábyrgðarhlutverki í samfélaginu.
„Ég vil veita fólki innblástur með list
minni. Lífið er öllum erfitt og við
þurfum öll á einhvers konar drif-
krafti að halda. Í augnablikinu er
menningin sem stýrir orku okkar í
ákveðinn farveg byggð á falsi, hún er
í raun andmenning sem stíar okkur í
sundur frekar en að færa okkur nær
hvert öðru,“ segir Nikhil. „Við höfum
þörf fyrir aðra endurreisn, aðra teg-
und menningar sem rýfur núverandi
ástand,“ bætir hann við. „Ég vil
gegna hlutverki í hugarfarsbreytingu
fólks gagnvart því hvernig það skynj-
ar sjálft sig og aðra,“ segir Kirsh.
„Að mínu mati vantar sameining-
arafl. Öllum líður best þegar eining
ríkir og við þurfum að vinna gegn
sundrung og standa þess í stað sam-
an, mynda fjölskyldu,“ segir Nikhil.
„Stundum geng ég nánast af göfl-
unum þegar mér finnst mig vanta
nógu öflugt tól til að koma þessum
skilaboðum áleiðis.“
Skortur á samkennd
Að hans sögn er eitt af mikilvæg-
ustu hlutverkum listamanna að sam-
eina fólk. „Menning á að beina okkur
í átt að sameiginlegu markmiði en
eins og málum er háttað í dag vinnur
menning frekar að því að beina orku
burt frá okkur sjálfum. Manneskjur
finna til einmanaleikakenndar, þrátt
fyrir að vera umkringdar öðru fólki
alla daga. Það er engin þörf fyrir það,
við ættum að vera til staðar hvert
fyrir annað,“ segir Nikhil.
Hann notast við óvenjulegt áhald
þegar hann málar en Nikhil beitir
kreditkortum í stað pensla. Að-
spurður hvaða ástæða liggi þar að
baki segir hann það hið fullkomna
verkfæri. „Hvaða betri not eru fyrir
kreditkort en að mála með þeim? Ég
byrjaði að nota aðgangskort í neðan-
jarðarlestir og málaði um 20 málverk
með því og hef notast við kortin
síðan,“ segir hann.
Verk Nikhils verða til sýnis í Gall-
erí Fold á menningarnótt þann 18.
ágúst næstkomandi. Næsta einka-
sýning hans í Gallerí Fold fer fram í
desember nk. en verk hans má einnig
sjá í Gallerí Verðandi, Laugavegi 51
og á Restaurant Reykjavík við Ing-
ólfstorg.
Málar myndir með kreditkortum
Vinnur pólitísk
verk og boðar
endurreisn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Pólitík Nikhil Nathan Kirsh með eitt málverka sinna. Alþingishúsið logar og fólk fylgist með brunanum.
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Beint framhald sumardjasstón-
leikaraðar Jómfrúarinnar fer fram
annað árið í röð alla laugardaga í
ágúst og september kl. 15 til 17 á
veitingastaðnum Munnhörpunni í
Hörpunni. Á fyrstu djasstónleik-
unum í Munnhörpunni þetta sumar,
sem fara fram á morgun, laugar-
daginn 4. ágúst, kemur fram tríó
gítarleikarans Björns Thoroddsen,
sem Róbert Þórhallsson á rafbassa
og Jóhann Hjörleifsson skipa ásamt
Björni.
Djasstónleikaröð Jómfrúarinnar
hefur verið við lýði undanfarin
sautján ár. Flytjendur á dagskrá
djasstónleikanna í Munnhörpunni
eru m.a. Ragnheiður Gröndal, tríó
Sigurðar Flosasonar og Björn Jör-
undur, kvartett Helgu Laufeyjar,
ASA tríó, Óskar og Ife Tolentino og
Catherine Legardh.
Djasstónleikaröð í
Munnhörpunni
Morgunblaðið/Ernir
Djass Sigurður Flosason er umsjón-
armaður tónleikaraðarinnar.
Sýningin Ég var verður opnuð
í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á
Akureyri á morgun, laug-
ardaginn 4. ágúst, kl. 15.
Listakonurnar Brynhildur
Kristinsdóttir og Laufey Mar-
grét Pálsdóttir sýna þar inn-
setningu sem fjallar um það
sem var og er, heim kvíðasleg-
innar gardínukonu sem felur
sig bak við gluggatjöldin og
óttast að hún fái brátt heim-
sókn í heim sinn.
Sýningin stendur til 12. ágúst og er opin laug-
ardaga og sunnudaga milli kl. 14. og 17 og eftir
samkomulagi.
Myndlist
„Ég var“ um það
sem var og er
Úr innsetningunni
Ég var.
Nú fer hver að verða síðastur
til þess að sjá sýningu sænsku
hönnuðanna Olle & Stephan í
Spark Design Space, en síðasti
sýningardagur er á morgun,
laugardaginn 4. ágúst.
Olle & Stephan útskrifuðust
úr Carl Malmsten-húsgagna-
hönnunarskólanum árið 2008.
Einkenni hönnuðanna er að
þeir smíða alla sína muni sjálf-
ir, ólíkt flestum samtíma-
hönnuðum sem láta framleiða munina, húsgögn
eða annað, fyrir sig.
Verkið Hringsól eftir Gunnar Jónsson er einnig
á sýningunni.
Hönnun
Handsmíðuð
hönnun heillar
Eitt af verkum Oll-
es og Stephans
Hljóðfærasmiðurinn Jón Mar-
inó Jónsson opnar sýninguna
Frá tré til tóna á morgun, laug-
ardaginn 4. ágúst, kl. 14 í list-
munahorni Árbæjarsafns. Á
sýningunni er fjallað um
hvernig fiðla er smíðuð í hönd-
unum. Hljóðfæri Jóns Marinós
á mismunandi vinnslustigum,
fullþurrkað timbur og ýmis
verkfæri verða til sýnis. Jón
Marinó útskrifaðist sem hljóð-
færasmiður á Englandi árið 2000 og hefur lagt
stund á smíði strokhljóðfæra á vinnustofu sinni í
Reykjavík síðan. Opið er á sýninguna á afgreiðslu-
tíma safnsins og stendur hún til 31. ágúst.
Handverk
Sýning Jóns Mar-
inós hljóðfærasmiðs
Jón Marinó
Jónsson
Þýsku listamennirnir Susanna
Brenner og Felix Ritter sýna mynd-
bandsinnsetninguna Mapping 12
minutes í Gallerí Dvergi. Sýning-
aropnunin er í dag milli kl. 19 og 21,
þar sem listamennirnir verða við-
staddir. Sýningin er svo aðeins opin í
tvo daga eftir það, laugardag 4.
ágúst og sunnudag 5. ágúst, frá kl.
18 til 20.
Innsetning er tilraun listamann-
anna til þess að rannsaka möguleika
og áhættur innri náttúru mannsins
með því að fylgjast með honum í
samhengi umhverfis síns. Í mynd-
skeiðinu, sem er tekið upp á Merc-
atorplein í Vestur-Amsterdam,
tengja listamennirnir torgið við
land- og heimslýsingarfræðinginn
Geradus Mercator sem á 500 ára af-
mæli á þessu ári. Brenner og Felix
eru bæði búsett í Amsterdam, en
Brenner hefur sýnt bæði í Hollandi
og Þýskalandi og Ritter kennir leik-
húsfræði við Amsterdam School of
Arts.
Kortleggja
12 mínútur
Sýningaropnun í
Gallerí Dvergi
Brenner og Ritter Úr innsetningu
listamannanna í Gallerí Dvergi.
Listaverk Roys
Lichtenstein,
Electric Cord,
sem hvarf 1970 á
leiðinni í hreins-
un, fannst nýlega
í vöruhúsi í New
York-borg.
Verkið er metið
á fjórar milljónir
bandaríkjadoll-
ara en dómstólar vestanhafs hafa
úrskurðað að það skuli ekki flutt úr
vöruhúsinu um sinn og því enn óvíst
hvenær og hvort það verður til sýn-
is.
Snúrur Roys
fundnar
Roy Lichtenstein
Björk og náttúruspekingurinn og dýrafræðingurinn
David Attenborough leiða saman hesta sína í gerð nýrr-
ar heimildarmyndar um sögu og þróun tónlistar. Vinnu-
titill myndarinnar er Björk: The Nature of Music, og
fjallar hún um mót tónlistar, tækni og náttúrulífs. Leik-
stjóri myndarinnar er Louise Hooper og framleiðandi er
Pulse Films.
Í myndinni rannsaka Björk og Attenborough hvers
vegna og hvernig tónlist hefur þróast og hvernig tækni
kemur til með að móta notkun og skynjun fólks á tónlist í
framtíðinni. Innblásturinn að myndinni kemur frá síð-
ustu breiðskífu Bjarkar, Biophilia og iPad snjallforriti
sem hannað var í tengslum við útgáfu plötunnar, en
Attenborough léði forritinu rödd sína.
Samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu bresku sjón-
varpsstöðvarinnar Channel 4 mun David fjalla um
hvernig tónlist birtist í náttúrunni, auk þess sem hann
deilir sinni eigin tónlistarástríðu með áhorfendum.
Björk og David Attenborough
sameina krafta sína
Öflugt teymi Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Björk og
Attenborough efna til samstarfs.
Vinna að heimildarmynd
um þróun tónlistar