Morgunblaðið - 03.08.2012, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Við fylgjum eftir stelpu sem heit-
ir Hrafnhildur en hét áður Halldór
Hrafn,“ segir Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir dagskrárgerðarkona.
Síðastliðin fimm ár hefur hún unn-
ið að heimildamynd um karlmann
sem fer í kynleiðréttingu og lætur
breyta sér í konu. Myndin heitir
Hrafnhildur og markar hún upp-
haf Hinsegin daga sem hefjast í
næstu viku.
Vala Grand vakti forvitni
„Forvitni mín kviknaði fyrir
nokkrum árum þegar ég var að
þjálfa fimleika. Í hópnum mínum
var strákur sem
sagðist vera
stelpa. Það var
Vala Grand. Mér
fannst hún for-
vitnileg og hún
kynnti mig fyrir
Hrafnhildi,“ seg-
ir Ragnhildur.
Hún segir
mikið álag fylgja
því að fara í
kynleiðréttingu.
„Þetta er búið að vera rosalega
erfitt. Hún er búin að fara í gegn-
um miklar tilfinningasveiflur og
það er ekki auðvelt að hafa
myndavél á sér þegar maður fer í
gegnum svona mikilvægt ferli í lífi
sínu. Hún hefur margoft viljað
hætta við. Jafnframt hefur sam-
band okkar farið í gegnum ým-
islegt; á tímabili var hún óviss um
hvort hún væri tilbúin að láta okk-
ur fylgja sér til enda. Þó fór allt
vel að lokum og ég er henni af-
skaplega þakklát fyrir að leyfa
okkur að fá sögu sína,“ segir
Ragnhildur.
Eins og siður er í heimild-
armyndum fylgir Ragnhildur
Steinunn Hrafnhildi „líkt og fluga
á vegg“. Samhliða því eru tekin
viðtöl við fagfólk sem þekkir til
þess ferlis sem kynleiðrétting er.
„Þetta er búið að vera afar lær-
dómsríkt ferli og líka erfitt. Sér-
staklega fyrir Hrafnhildi. Hún er
ekki búin að sjá myndina og á
næstu dögum verður hún opinber
persóna. Það kostar mikið hug-
rekki að hleypa öllum svo nærri
sér og í upphafi áttaði hún sig
kannski ekki á því hversu nær-
göngult þetta ferli er. Því var hún
í vafa um það hvort hún ætti að
mæta á frumsýninguna.“
Önnnur mynd á leiðinni
Myndin er frumraun Ragnhildar
sem heimildamyndagerðarmanns.
Hún segir spennandi að sjá við-
tökur myndarinnar. „Ég var stað-
ráðin í því undir lok vinnunnar að
þessari mynd að ég ætlaði ekki að
fara í þetta aftur í bráð. En ein-
hverra hluta vegna er ég komin
aftur í djúpu laugina og er að
vinna að annarri mynd,“ segir
Ragnhildur og hlær við en vill
ekkert gefa upp um efni þeirrar
myndar.
Hrafnhildur fer í sýningar næst-
komandi miðvikudag í Bíó paradís.
Miðasala verður opnuð í dag á
midi.is.
Halldór verður Hrafnhildur
Heimildarmynd um kynleiðréttingu verður frumsýnd í næstu viku Fimm
ára vinnu að ljúka Frumraun Ragnhildar sem heimildarmyndagerðarmanns
Hrafnhildur Guðmundssdóttir Fylgst er með kynleiðréttingu í heimildarmyndinni Hrafnhildur.
Ragnhildur Stein-
unn Jónsdóttir
Danska gamanmyndin Klovn: The
Movie er nú í sýningum í Bandaríkj-
unum. Myndin fær almennt nokkuð
jákvæða umfjöllun þótt sumir gagn-
rýnendur telji nokkur atriði heldur
óviðeigandi. Sérstaklega fer nekt
12 ára gamals drengs fyrir brjóstið
á sumum þeirra. Skríbent New
York Times telur t.a.m. hluta
myndarinnar jaðra við barnaklám.
Todd Phillips, leikstjóri Hangover-
myndanna, stefnir að því að endur-
gera myndina í Hollywood.
Trúðar Frank og Casper með fíflalæti.
Klovn á jaðri
velsæmismarka
Bareigendur í
Gautaborg í Svíþjóð
vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þeg-
ar allir barir fyllt-
ust á augabragði af
brjáluðum Bruce
Springsteen-
aðdáendum. Fólkið
var á leið á tónleika
með rokkgoðinu þegar himnarnir
opnuðust skyndilega. Svo mikil var
rigningin að víða flæddi inn í versl-
anir. Um tíma leit út fyrir að hætta
þyrfti við tónleikana en Springsteen
tók það ekki í mál. Fyrir tónleikana
stytti upp og Springsteen rokkaði
sem aldrei fyrr.
Brjálaðir aðdá-
endur fylltu barina
Bruce
Springsteen