Morgunblaðið - 17.09.2012, Page 1
M Á N U D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 217. tölublað 100. árgangur
SMURBRAUÐ AÐ
HÆTTI DANSKRA
BREGST EKKI
EINN ÞEKKTASTI
RITHÖFUNDUR
MEXÍKÓ
FÉ REKIÐ AF
FJALLI OG
DREGIÐ Í DILKA
ELENA PONIATOWSKA 36 FJÖR Í RÉTTUM 12-13MATGÆÐINGAR 11
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Fjárrekstur Fé sem bjargað var af Þeista-
reykjum var rekið til byggða á laugardag.
„Það eru afföll víða, sums staðar
mjög mikil,“ sagði Þórarinn Ingi
Pétursson, formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda, um fjár-
skaða af völdum óveðursins í síð-
ustu viku. Hann sagði vitað að
einhver hundruð fjár hefðu tapast
og taldi að sú tala ætti eftir að
hækka. Svo virðist sem snjó sé ekki
að taka upp til fjalla.
Þórarinn sagði að fjárskaðar
hefðu orðið allt frá Kelduhverfi í
austri og vestur í Húnavatnssýslu.
Hann taldi líklegt að afföll yrðu
einna mest í Mývatnssveit, á Þeista-
reykjum, Reykjaheiði og í aust-
anverðum Bárðardal. Hann hafði
einnig heyrt af afföllum í Húna-
vatnssýslu og Skagafirði og á 1-2
bæjum í Vaðlaheiði í Eyjafirði. Þá
hefði fé tapast á Flateyjardal.
„Við eigum allir eftir að fara í
aðrar göngur. Ætli veruleikinn
blasi ekki við okkur þá,“ sagði Þór-
arinn. „Þá held ég að margir verði
raunsæir á hvað er í gangi. Ég held
að það sé alveg ljóst að afföll verði
óumflýjanleg.“ gudni@mbl.is »6
Veruleikinn mun
blasa við eftir
aðrar fjárleitir
Stjórn fiskveiða
» Greinargerð trúnaðar-
mannahóps um breytingar á
fiskveiðistjórnarfrumvarpinu
var lögð fram í atvinnuvega-
nefnd sl. fimmtudag.
» Björn Valur Gíslason, Einar
K. Guðfinnsson, Kristján L.
Möller og Sigurður Ingi Jó-
hannsson skipuðu hópinn.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra, telur
að niðurstaða trúnaðarmannahóps
stjórnmálaflokka um stjórn fiskveiða
sé ekki bindandi við endurskoðun
fiskveiðifrumvarpsins. Fara þurfi yfir
niðurstöðuna en mikið vanti á að
heildarsamkomulag hafi náðst í hópn-
um. Magnús Orri Schram, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
sagði í samtali við RÚV á laugardag
að greinargerðin væri ekki grundvöll-
ur að samkomulagi á milli flokkanna
um breytingar á fiskveiðistjórn.
Einar K. Guðfinnsson alþingismað-
ur, sem sat í trúnaðarmannahópnum,
sagði oddvita stjórnarflokkanna hafa
gefið afdráttarlausa yfirlýsingu í
sumar um að það sem næðist sam-
komulag um í hópnum yrði lagt til
grundvallar frumvarpi um stjórn fisk-
veiða í haust.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
átt við heildarsamkomulag sagði Ein-
ar að það hefði verið borin von að ná
því. „Markmið vinnunnar í vor var að
sjá hvort hægt væri að fækka ágrein-
ingsefnunum sem uppi voru um
stjórn fiskveiða. Það tókst með þess-
ari vinnu,“ sagði Einar. „Við náðum
ekki saman um ýmsa veigamikla efn-
isþætti, en það breytir ekki því að það
sem við náðum saman um er ríkis-
stjórnin, samkvæmt yfirlýsingu for-
ystumanna hennar, skuldbundin til að
leggja til grundvallar nýju fiskveiði-
stjórnunarfrumvarpi.“
Ágreiningur um gildi álits
Atvinnuvegaráðherra telur að niðurstaða trúnaðarmannahóps stjórnmálaflokk-
anna sé ekki bindandi við endurskoðun frumvarpsins um stjórn fiskveiða
MSegir álit ekki bindandi »6
Morgunblaðið/Kristinn
Sprenging Krafturinn í sprengingunni var svo mikill að hlutir úr íbúðinni,
sem er á jarðhæð, þeyttust tugi metra og milliveggur í henni hrundi.
Maður liggur þungt haldinn og í lífs-
hættu á gjörgæsludeild Landspítal-
ans eftir að mjög öflug sprenging
varð í íbúð hans á jarðhæð við Of-
anleiti um klukkan 11 í gærmorgun.
Skv. heimildum Morgunblaðsins er
talið að um gassprengingu hafi verið
að ræða en þetta hefur ekki fengist
staðfest hjá lögreglu. Ósprunginn
gaskútur fannst í íbúðinni en talið er
að gas hafi sloppið úr kútnum og
rannsakar lögregla með hvaða hætti
það bar að.
Haukur Þorgeirsson var heima
með sjö mánaða gömlum syni sínum
í gærmorgun. Hann býr á þriðju hæð
í húsinu, beint fyrir ofan íbúðina þar
sem sprengingin varð. „Ég hafði
ekki orðið var við neitt, lykt eða eld
eða hljóð, þegar ég allt í einu heyri
rosalegar drunur og finn titring sem
stendur í kannski 2-3 sekúndur,“
segir Haukur. Sprengingin var svo
öflug að glerbrot og innanstokks-
munir dreifðust í um 50-60 metra
radíus umhverfis húsið, m.a. yfir
leikvöll þar sem börn höfðu verið að
leik skömmu áður. »2
Í lífshættu eftir
kröftuga sprengingu
FH-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu karla í gærkvöld með því að gera
2:2 jafntefli við Stjörnumenn á gervigrasinu í
Garðabæ. Þetta er sjötti Íslandsmeistaratitill
Hafnarfjarðarliðsins en liðið fagnaði titlinum
fyrst árið 2004 og varð síðast Íslandsmeistari
fyrir þremur árum. Heimir Guðjónsson er þjálf-
ari FH-liðsins og er þetta í þriðja sinn sem hann
gerir FH að meisturum. » Íþróttir
FH-ingar Íslandsmeistarar í sjötta sinn
Morgunblaðið/Kristinn
Taka á fyrstu skrefin í þá átt að
laga húsaleigubætur að nýju kerfi
húsnæðisbóta í frumvarpi sem
væntanlegt er fyrir aðra umræðu
um fjárlagafrumvarpið. Velferð-
arráðherra segir talað um að veita
allt að 800 milljónir til að styrkja
húsaleigumarkaðinn. Ekki hefur
verið rætt við sveitarfélögin enn
sem komið er. »16
800 millj. framlag
vegna húsaleigu
Rúnar Pálma-
son, blaðamaður
á Morg-
unblaðinu, hlaut
í gær fjölmiðla-
verðlaun um-
hverfis- og
auðlinda-
ráðuneytisins
fyrir umfjöllun
sína um akstur
utan vega og umgengni við nátt-
úru Íslands.
Þetta er í annað sinn sem fjöl-
miðlaverðlaunin eru veitt en í
fyrra hlaut þau Ragnar Ax-
elsson, ljósmyndari Morgunblaðs-
ins. »4
Verðlaun fyrir skrif
um utanvegaakstur
Rúnar
Pálmason