Morgunblaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 261. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Vaknaði ekki þrátt fyrir grát
2. Sprenging í fjölbýlishúsi
3. Sveinn Andri og Kristrún Ösp…
4. Ekki vitað hvað gerðist
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bítlamyndin Magical Mystery Tour
frá 1967 með nýjum viðtölum og áður
óbirtu myndefni verður sýnd í Há-
skólabíói miðvikudaginn 26. sept-
ember. Aðeins verður ein sýning og
hefst hún klukkan 20.00.
AFP
Magical Mystery
Tour í Háskólabíói
Kira Kira eða
Kristín Björk
Kristjánsdóttir
verður með út-
gáfutónleika
vegna plötunnar
Feathermagnetik í
Hörpu 29. sept-
ember og eru þeir
hluti af kvik-
myndahátíðinni RIFF. Með henni leika
Skúli Sverrisson, Úlfur Hansson og
Pétur Hallgrímsson við kvikun
(animation) Söru Gunnarsdóttur.
Útgáfutónleikar Kira
Kira hluti af RIFF
Uppselt er á útgáfutónleika Ás-
geirs Trausta og hljómsveitar á Fakt-
orý þriðjudaginn 18.
september. Af því
tilefni verða
aukatónleikar
haldnir á sama
stað í kvöld. Miða-
sala á þá tónleika er
hafin á miði.is.
Hljómsveitin Eldar
kemur einnig
fram á tón-
leikunum.
Aukatónleikar
Ásgeirs Trausta
Á þriðjudag Norðvestan 10-18 m/s, hvassast við norðaust-
urströndina, en mun hægari vindur V-lands. Yfirleitt léttskýjað á S-
og V-landi, en skúrir eða slydduél NA-lands. Hiti 1 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning á N- og NA-landi, en slydda eða
snjókoma í innsveitum. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt í öðr-
um landshlutum. Hiti 0 til 10 stig, hlýjast syðst.
VEÐUR
Grindvíkingar, undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar, leika í
1. deildinni á næstu leiktíð.
Grindvíkingar sóttu Eyja-
menn heim í Pepsideildinni í
gær þar sem þeir töpuðu,
2:1, og þar með er ljóst að
Suðurnesjaliðið er fallið úr
deildinni. Eyjamenn eru
hins vegar í bullandi bar-
áttu um Evrópusæti en
þrjár umferðir eru eftir af
Pepsideildinni. »3
Grindvíkingar
féllu í Eyjum
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu vann afar sannfærandi sigur á
N-Írum í undankeppni EM og nægir
þar með jafntefli í
lokaumferðinni
gegn Norð-
mönnum á Ulle-
vaalleikvang-
inum í Osló
á miðviku-
daginn
til að
tryggja
sér far-
seðilinn
á EM í
Svíþjóð
á næsta
ári. »2
Stelpurnar einu skrefi
frá EM-sætinu
Það var stór stund hjá knatt-
spyrnuliði Víkings Ólafsvík í gær
en þá tryggði liðið sér sæti í efstu
deild í knattspyrnu karla í fyrsta
skipti í sögu félagsins. Víkingar
gerðu það með glæsibrag en þeir
skelltu KA-mönnum á Akureyr-
arvelli, 4:0, og fylgja þar með
Þórsurum upp í deild þeirra
bestu. »7
Víkingur Ólafsvík verð-
ur í deild þeirra bestu
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Daninn Rikke Poulsen útskrifaðist
með háa 1. einkunn úr BS-námi í
lífefnafræði frá Háskóla Íslands
nú í vor. Lokaeinkunn Rikke var
8,8 en hún var ein af fimm nem-
endum sem í ár hlutu viðurkenn-
ingu úr verðlaunasjóði Guðmundar
P. Bjarnasonar frá Akranesi.
Hlaut Rikke 500 þúsund krónur
úr sjóðnum.
„Það er frábært að fá svona
stuðning sem námsmaður og í
fyrsta skipti sem það hefur borgað
sig fjárhagslega að vera duglegur
við námið,“ segir Rikke sem hóf
nám við Háskóla Íslands árið
2009. Áskorun felst í því að hefja
nám á nýju tungumáli en Rikke
segir kennara sína hafa reynst sér
vel. Eins þyki sér Íslendingar góð-
ir í því að búa til ný orð og ís-
lensku orðin í lífefnafræðinni hafi
því flest reynst rökrétt og hægt
að giska á hvað þau þýddu.
Meistaranám í Danmörku
Rikke talar góða íslensku en
hún á íslenskan kærasta sem hún
segir að hafi verið duglegur að
tala við sig íslensku. Hún hóf að
læra íslensku vorið 2009 en settist
þá um haustið á skólabekk og sótti
nokkra íslenskukúrsa í Háskóla
Íslands til að læra grunninn í mál-
inu. Hún segir íslenskuna hafa
verið erfiða til að byrja með en
málfærnin hafi komið smám sam-
an.
Rikke hefur nú hafið meist-
aranám í umhverfisefnafræði og
heilbrigðisfræði í Danmörku. Í
framhaldi af því stefnir hún á
doktorsnám og langar í framtíð-
inni að fást við rannsóknir.
„Þetta er svolítið eins og að
vera í eldhúsi þar sem maður
prófar sig áfram við að blanda
saman hlutum nema þetta er
meira spennandi þar sem hlutir
geta sprungið og slíkt. Ég hef lent
í slíku af og til,“ segir Rikke í létt-
um dúr.
Spilar öðru hvoru á trompet
Í lokaverkefni sínu kannaði
Rikke hvaða áhrif flúor sem fer út
í jarðveginn eftir eldgos hefur á
umhverfið og lífríkið og þá sér-
staklega örverur í jarðvegi. Hún
segist gjarnan vilja nýta nám sitt
frekar á þennan hátt í framtíðinni
með því að færa vísindin meira
inn í daglegt líf fólks. T.a.m. með
því að skoða áhrif ýmissa efna á
matinn sem fólk neytir. Þá um-
ræðu mætti auka hér á landi og
sér Rikke jafnvel fyrir sér að geta
tekið þátt í slíku hérlendis í fram-
tíðinni. Rikke hefur lítinn tíma af-
lögu fyrir utan námið en hún spil-
ar þó öðru hvoru á trompet og lék
í Lúðrasveitinni Svani meðfram
náminu.
„Það er gaman að hafa eitthvað
annað að gera með náminu. Það er
alltaf smáheppni að verða hæst en
ég held að ég sé góð í að vinna
mikið og reyni að gera mitt
besta,“ segir Rikke.
Í líkingu
við tilrauna-
eldhús
Rikke Poulsen útskrifaðist með 8,8
úr BS-námi í lífefnafræði
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Lífefnafræðingur Hin danska Rikke Poulsen stefnir á doktorsnám
og langar í framtíðinni að fást við frekari rannsóknir á sínu sviði.
Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi var stofnaður
árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar. Tilgangur sjóðsins er að
verðlauna efnilega útskriftarnemendur í eðlisfræði og efnafræði við Há-
skóla Íslands. Verðlaunin miðast við BS-nemendur í eðlisfræði, efnafræði
og lífefnafræði. Guðmundur fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og átti
þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðarmaður
og fiskmatsmaður á Akranesi. Verðlaunahafar í ár voru Tómas Örn Ros-
dahl, Kristinn Kristinsson og Sveinbjörn Finnsson, allir úr eðlisfræði,
sem útskrifuðust með ágætiseinkunn. Hlutu þeir hver um sig eina millj-
ón króna en auk Rikke hlaut einnig verðlaun Sara Björg Sigurðardóttir
sem útskrifaðist úr efnafræði með háa 1. einkunn og hlaut hún 500 þús-
und.
Fimm nemendur verðlaunaðir
VERÐLAUNASJÓÐUR