Morgunblaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með matvæli. Ársvelta um 300 mkr.
• Allt að 100% hlutur í rótgrónu fyrirtæki með einkennisfatnað. Góð afkoma og
vaxtamöguleikar.
• Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði. Ársvelta 60 mkr. og
yfir 100% álagning.
• Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði. Stöðug velta allt
árið.
• Meðeigandi óskast að innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í
loftkælingu. Viðkomandi þarf að mikla þekkingu á þessu sviði og hafa
stjórnunarhæfileika. Fyrirtækið er mjög arðbært og mun skila eigendum góðri
ávöxtun.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með vinsæla fjárfestingavöru fyrir heimili.
Stærsta fyrirtækið á þessu sviði og hefur verið með stöðuga veltu (um 130
mkr.) síðustu árin. Góður hagnaður og hagstæðar skuldir sem hægt er að
yfirtaka.
• Óvenjulegt matvælafyrirtæki í smásölugeiranum sem hægt er að þróa mjög
skemmtilega. Ársvelta 150 mkr., stöðugt vaxandi frá 2004. EBITDA 24 mkr.
sem auðvelt er að auka í 40 mkr. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Réttað var í mörgum sveitum landsins
um helgina og því víða mikill atgangur
þegar bændur og búalið drógu fé sitt í
dilka. Eftir umhleypinga í veðri í síð-
ustu viku fyrir norðan virðist sem víð-
ast hvar hafi viðrað ágætlega nú um
helgina þegar fé kom af fjalli. Samein-
uðust kynslóðir við það verk að finna fé
sitt í vænum hópi sauðfjár.
Í Hrunaréttum í Hrunamanna-
hreppi var margt um manninn og hátt
á sjötta þúsund fjár komið til rétta.
Lentu fjallmenn í miklu illviðri í Kerl-
ingarfjöllum og nágrenni en með mikl-
um dugnaði og skipulagi tókst að
smala svæði á einum degi sem venju-
laga er smalað á tveim dögum og kom
því ekki til að fresta þyrfti réttunum. Í
Hraunsrétt í Aðaldal var fjöldi fólks
samankominn til þess að draga það fé í
dilka sem verið hafði úti í hretinu á
Þeistareykjum á dögunum. Yfir þrjú
þúsund fjár voru í réttinni og töldu
margir að unnist hefði varnarsigur í
þessum erfiðleikum, en leitum á
Þeistareykjum er þó ekki lokið. Í
Tungnaréttum í Bláskógabyggð og
Skeiðaréttum í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi var einnig margt um manninn
um helgina.
Fé rekið af fjalli
og dregið í dilka
Víða réttað í
sveitum landsins
um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjárhaf Skeiðarétt er afrétt Flóa- og Skeiðamanna og var þar margt um mann og fé um helgina enda gjarnan margir sem vilja fylgjast með réttum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bóndi Markús á Vorsabæjarhóli.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Í réttum Margrét Hauksdóttir, Gísli Guðmundsson og Guðni Ágústsson.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Mannfjöldi Í Hrunaréttum var margmenni eins og víðar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Vinafundir Anna María í Haukholtum ásamt forystusauðnum Laufa.