Morgunblaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012
Fyrr á árinu útskýrði Einar ÖrnBenediktsson, borgarfulltrúi
Besta flokksins, að hann væri aðeins
borgarfulltrúi á milli níu á morgn-
ana og fimm síðdeg-
is og þess vegna
þyrfti hann ekki að
fara að siðareglum
borgarinnar á öðr-
um tímum dags.
Með þessarióvenjulegu
röksemdafærslu var
að hans mati greið
leið í boðsferð til
Parísar sem hefði
ekki verið innan
fyrrgreindra tíma-
marka.
Annar borgarfulltrúi Bestaflokksins, Óttarr Proppé, er
ekki síður óviss en Einar Örn um
það hvenær hann er borgarfulltrúi
og olli það misskilningi á dögunum.
Þegar blaðamaður hringdi í hanngerði hann að eigin sögn „þau
mistök að gleyma því að blaðamað-
urinn væri að tala við mig sem borg-
arfulltrúa meirihlutans í borginni“.
Vissulega getur verið snúið fyrirmargbrotna menn að vita hvers
vegna blaðamaður hringir í þá og
ræðir atvinnuástandið í borginni.
Ekki var síður líklegt að blaða-maður væri að hringja til að fá
álit tónlistarmannsins, handritshöf-
undarins eða leikarans Óttars
Proppé á stöðu og þróun atvinnu-
mála í borginni.
Þess vegna er mjög trúlegt aðþegar Óttarr hallmælti árangri
yfirvalda í atvinnumálum hafi hann í
raun ekki verið að hallmæla árangri
yfirvalda heldur verið að tala um
eitthvað allt annað.
Óttarr Proppé
Hvenær er ég ég og
hvenær ekki ég?
STAKSTEINAR
Einar Örn
Benediktsson
Veður víða um heim 16.9., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 4 rigning
Kirkjubæjarkl. 7 léttskýjað
Vestmannaeyjar 8 heiðskírt
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 13 léttskýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 21 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 20 léttskýjað
Berlín 21 heiðskírt
Vín 18 léttskýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 23 skýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 15 léttskýjað
New York 21 léttskýjað
Chicago 22 skýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:59 19:47
ÍSAFJÖRÐUR 7:01 19:54
SIGLUFJÖRÐUR 6:44 19:37
DJÚPIVOGUR 6:27 19:17
Spriklandi fiskbúð
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
17 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar-
flokksins og Hreyfingarinnar eru flutningsmenn
frumvarps til stjórnarskipunarlaga sem lagt hefur
verið fram á Alþingi. Pétur H. Blöndal Sjálfstæð-
isflokki er fyrsti flutningsmaður.
Frumvarpið, sem fjallar um hvernig stjórnar-
skrá verði breytt, hefur áður verið lagt fram en er
nú lagt fram með breytingum. Þar er nú gert ráð
fyrir að 40 þingmenn þurfi að samþykkja breyt-
inguna í stað 2/3 þingmanna áður. Þá er gert ráð
fyrir að helmingur atkvæðisbærra kjósenda þurfi
að samþykkja breytinguna þannig að hún taki
gildi. Í greinargerð kemur fram að það sé skoðun
flutningsmanna að breytingar á stjórnarskrá eða
ný stjórnarskrá eigi að njóta mikillar samstöðu
meðal alþingismanna og ekki síður meðal þjóð-
arinnar sem grundvallarlög samfélagsins. Benda
flutningsmenn á að mjög litlar kröfur séu nú gerð-
ar til samstöðu á Alþingi, einfaldur meirihluti
nægi. Þá telja þeir að þjóðin eigi að greiða atkvæði
um stjórnarskrárbreytingar beint og bindandi og
setja sér þannig sína stjórnarskrá. Telja flutnings-
menn það horfa undarlega við að fyrirhugaðar
breytingar á stjórnarskrá verði ekki bornar undir
þjóðina.
Þjóðin komi beint að breytingum
Frumvarpið
» Breytingar á stjórnarskrá eða ný stjórn-
arskrá eigi að njóta mikillar samstöðu meðal
alþingismanna.
» 40 þingmenn þurfi að samþykkja breyt-
inguna og helmingur kosningabærra manna
» Flutningsmennirnir telja það horfa und-
arlega við að fyrirhugaðar breytingar á
stjórnarskrá verði ekki bornar undir þjóðina.
„Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk er eft-
irsóttir starfskraftar. Læknar koma
seinna heim úr sérnámi en áður var
vegna kjara og margir okkar hafa
farið úr landi,“ segir Ómar Sigurvin,
formaður Félags almennra lækna.
Félaginu er misboðið vegna þeirrar
ákvörðunar velferðarráðherra að
hækka laun forstjóra Landspítalans.
Í félaginu eru um 200 læknar, sem
eru með lækningaleyfi en eru ekki
með sérfræðiréttindi. Þetta eru 15-
20% af öllum læknum á landinu. Fé-
lagið hélt aðalfund fyrir helgi og
sendi frá sér ályktun þar sem því er
fagnað að velferðarráðherra hafi átt-
að sig á samkeppnisstöðu íslenskra
heilbrigðisstétta og launi vel unnin
störf.
Um leið segja félagsmenn sér mis-
boðið vegna þess að gengið sé fram
hjá öllu því starfsfólki sem hefur tek-
ist á við aukið álag og skert kjör.
„Það er forkastanlegt að hækka
einungis laun eins manns,“ segir í yf-
irlýsingunni. Spurður hvort þar sé
átt við hækkun á launum forstjóra
Landspítalans segir Ómar svo vera.
Mikið álag á læknum
Hann segir mikið álag vera á
læknum. „Margar heilbrigðisstofn-
anir eru undirmannaðar og mönn-
unarþörf er illa skilgreind. Að auki
fá læknar ekki nauðsynlegan aðlög-
unartíma þegar þeir hefja störf á
sjúkahúsunum. Það getur hreinlega
ógnað öryggi sjúklinga.“
Forkastan-
leg hækkun