Morgunblaðið - 17.09.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012
www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 •
Budapest
27. september eða 19. október í 4 nætur
frá kr. 79.900.-
Heimsferðir bjóða frábær sértilboð í tvær 4 nátta ferðir til
Budapest. Budapest er ein fegursta borg Evrópu. Haustið er
einstakur tími til að heimsækja borgina. Bjóðum örfá herbergi
á völdum gististöðum á frábærum sértilboðum. Fararstjórar
Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og
heillandi menningu.
Kr. 79.900.-
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Marriot Courtyard
**** í 4 nætur með morgunverði. Sértilboð 27. september.
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við vorum að finna hóp í skúta,
flestar dauðar,“ sagði Haraldur
Helgason, bóndi á Grænavatni við
Mývatn síðdegis í gær. Hann var
ásamt fleirum við leit að fé í Sellönd-
um sunnan við Mývatn. „Það voru
allavega 15 dauðar og sex eða sjö lif-
andi.“ Haraldur sagði tvísýnt um líf
einnar ærinnar. Hinar virtust vera í
lagi. Allt var þetta fullorðið. Kind-
urnar höfðu leitað vars í skúta undir
kletti, síðan hafði fennt yfir og flest-
ar kindurnar kafnað. Hundar þef-
uðu uppi kindurnar undir snjónum.
Í gær var verið að leita að full-
orðnum ám í Sellöndum sem hafði
verið sleppt eftir fyrstu göngur.
Svæðið var smalað á laugardag og
vantaði um 150 fjár eftir það. Í gær
var verið að svipast um eftir fénu.
Haraldur sagði veðrið sæmilegt,
smá hríðarmugga af og til en ekki
sérstakt skyggni.
Svolítið að skríða upp
„Við fundum lítið og skyggnið var
ekkert sérstakt, gekk á með dimm-
um éljum,“ sagði Birgir V. Hauks-
son, bóndi á Hellu við Mývatn. Hann
var ásamt fleirum að leita að fé við
Gæsafjöll norðan við Mývatn í gær.
Þeir fundu átta kindur og fluttu þær
til byggða. Birgir sagði áherslu
lagða á að finna fé sem væri á ferli.
Þeir hafa fundið bæli í fönninni sem
kindur hafa skriðið úr. „Sem betur
fer er það svolítið að skríða upp. En
það er klárlega eitthvað undir fönn,“
sagði Birgir. Hann sagði að kindur
gætu lifað lengi undir fönn og tæki
upp gæti féð skriðið úr fönninni. Í
svonefndum Dölum er skógur og
eru kindur að spretta undan hrísl-
unum þegar þær rétta sig við.
Ekki var búið að smala svæðið og
áttu fyrstu göngur að vera á laug-
ardag. Birgir sagði erfitt að áætla
hvað margt fé hefði verið á svæðinu
þegar óveðrið brast á. Búið er að
fækka mikið á stærsta búinu sem
venjulega átti þarna fé. Hann taldi
að hann hefði átt að eiga þarna um
200 fjár en óvíst hve mikið hefði
gengið þarna af aðkomufé.
Birgir sagði búið að skanna allt
svæðið og hefur töluverður mann-
skapur farið daglega þar um síðan á
miðvikudag og flutt rúmlega 200
fjár til byggða. Búið var að finna
tvær dauðar ær. Birgir kvaðst vona
að meira en helmingurinn af fé á
svæðinu væri kominn niður. Hann
kvaðst vona að ekki vantaði nema
um 20 ær en óvíst hvað vantaði mik-
ið af lömbum.
Bæjarbúar brugðust vel við
Liðsmenn úr Björgunarsveitinni
Stefáni í Mývatnssveit aðstoðuðu
bændur við leitir að fé bæði sunnan
og norðan við Mývatn í gær. Þeir
notuðu snjóbíl til leitar í Sellöndum
og jeppa með stórri kerru til leitar
við Gæsafjöll. Ekki viðraði sérstak-
lega vel til leitar í gær, að sögn
Kristjáns Steingrímssonar, for-
manns Björgunarsveitarinnar Stef-
áns.
„Bæjarbúar brugðust vel við
þótt þetta kæmi seint,“ sagði Guð-
bergur Ægisson, formaður Björg-
unarsveitarinnar Garðars á Húsa-
vík. Þeir auglýstu á laugardag eftir
fólki til fjárleitar í gær og fóru 18
manns. Leitarsvæðið var efst í
Geldingadal, sem liggur niður frá
Höskuldsvatni á Reykjaheiði og í
átt að bænum Skarðaborg.
Guðbergur sagði að bændur og
aðrir heimamenn hefðu verið við
leit í Geldingadal á laugardag og
náð um 70 kindum upp úr sköflum
á svæðinu. Ummerki sáust um all-
ar þær kindur. Bændurnir óskuðu
eftir aðstoð við að fínkemba alla
skafla með snjóflóðaleitarstöng-
um.
Snjókoma var á leitarsvæðinu í
gær í Geldingadal. Guðbergur
sagði að engin kind hefði fundist í
sköflunum á leitarsvæðinu, hins
vegar fannst ein kind í skafli í hlíð-
inni gegnt leitarsvæðinu. Leitar-
mennirnir gengu þar um en fundu
ekki fleiri kindur.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Af fjalli Fé af Þeistareykjum á leið í Hraunsrétt á laugardag. Ryðja þurfti fénu braut af afrétti vegna fannfergis.
Kindur köfnuðu í skúta
Leitað var að fé á afréttum í Mývatnssveit í gær Vont skyggni auðveldaði
ekki leitina Kindur hafa náð að brjótast úr fönn þegar snjó tekur upp
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðraði ís-
lensku þátttakendurna á Ólympíumóti fatlaðra með
sérstakri móttöku á Bessastöðum í gær. Tóku forseta-
hjónin vel á móti íþróttafólkinu, fjölskyldum þess og
þjálfurum en fyrri gullverðlaunahöfum og forystu
Íþróttasambands fatlaðra og ÍSÍ var einnig boðið.
Íþróttagarpar á Bessastöðum
Morgunblaðið/Kristinn
„Það liggur held ég alveg fyrir að
þarna hefur orðið bótaskylt tjón
samkvæmt reglum bjargráða-
sjóðs,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon atvinnuvegaráðherra um
afleiðingar óveðursins á Norður-
landi. Umfangið verður ekki ljóst
fyrr en síðar, ekki síst tjón bænda.
Stjórnvöld vinna áfram að öflun
upplýsinga um umfang tjónsins.
„Ég geri ráð fyrir að við förum
með þetta í svipaðan farveg og
fyrri náttúruhamfarir, að það verði
virkjaður ráðuneytisstjórahópur
þannig að ráðuneytin sem að
þessu koma vinni saman. Það hef-
ur gefið mjög góða raun í fyrri
náttúruhamförum.“
Óveðrið olli bótaskyldu tjóni
HÓPUR RÁÐUNEYTISSTJÓRA VIRKJAÐUR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Æskilegt er að leggja endurskoðað
frumvarp um stjórn fiskveiða fyrir
Alþingi sem fyrst vegna þess hvað
málið er viðamik-
ið, að mati Stein-
gríms J. Sigfús-
sonar,
atvinnuvega- og
nýsköp-
unarráðherra.
Hann kveðst hafa
horft til októbers í
því sambandi, en
vill þó ekki nefna
dagsetningar um
hvenær vænta
megi frumvarpsins.
Steingrímur sagði að fara þyrfti yf-
ir niðurstöður trúnaðarmannahóps
stjórnmálaflokka um stjórn fiskveiða,
en hann taldi mikið vanta upp á að
hópurinn hefði náð samstöðu og
þannig mætti segja að staðan væri
dálítið opin aftur. Í yfirlýsingu odd-
vita stjórnarflokkanna við þinglok 18.
júní s.l. var talað um að næðist sam-
komulag í trúnaðarmannahópnum
yrði það lagt til grundvallar nýju
frumvarpi. Finnst Steingrími álit
hópsins þess eðlis að hægt sé að
styðjast við það?
„Það felur í sér ákveðna kortlagn-
ingu á þeim ágreiningsatriðum sem
út af standa í þessum hópi. En því
miður er langt í land að hægt sé að
tala þar um heildarsamkomulag,“
sagði Steingrímur. Hann taldi
ómögulegt að túlka orðalagið öðru
vísi en svo að það væri ekki bindandi.
„Þú getur ekki verið sammála um
annan helminginn af máli ef þú ert
svo fullkomlega ósammála um hinn
helminginn. Það er ekkert hægt að
líta svo á, því miður, að það sé einhver
samkomulagsgrundvöllur sem hægt
sé að byggja frumvarp á eða bindandi
eins og hefði kannski verið í ríkari
mæli ef menn hefðu náð utan um allt
saman. Meðan er algjör andstaða eða
fyrirvari af hálfu sumra þarna við
stærð pottanna, kvótaþing o.s.frv. þá
geta menn ekki bundið sig gagnvart
öðru sem spilar saman við það.“
Steingrímur taldi að það yrði gagn-
legt að fara yfir niðurstöðuna og nú
væri hún komin á prent og lægi ljós
fyrir. Málið hefði þroskast frekar en
hitt, en talsvert væri enn eftir.
Segir álit
ekki
bindandi
Of skiptar skoðanir
í trúnaðarmannahópi
Steingrímur J.
Sigfússon.