Morgunblaðið - 17.09.2012, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.09.2012, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012 Hátíð Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá um allt land í gær í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Hátíðarsamkoma var í Árbæjarsafni og Ljótikór lét ekki sitt eftir liggja. Kristinn Íslendingar tóku kristna trú fyrir þúsund árum í góðri sátt. Mörg önnur sam- félög hafa búið við ófrið um aldir vegna trúardeilna en á Íslandi tókst okkur að ná sátt á alþingi um trúmál sem hefur haldið síðan, að slepptum fáeinum árum við lok miðalda þegar landlæg andúð Íslendinga á yf- irgangssömu erlendu yf- irvaldi blandaðist inn í siða- skiptin. Þjóðkirkjan er miklu meira en söguleg arfleifð okkar. Hún er lifandi veruleiki sem snertir líf okkar flestra með einum eða öðrum hætti alla ævigönguna. Ekki aðeins þiggjum við þjónustu kirkjunnar á tímamótum við skírn, fermingu, giftingu og jarðafarir heldur sinnir kirkjan verð- mætu starfi á sviði æskulýðsstarfs, hjálp- arstarfs og í þágu eldri borgara. Sóknir landsins eru um 270 talsins og án þeirra væri þjóðfélag samkenndar og velferðar algjörlega ólíkt því sem við þekkjum í dag. Þá er ótalið mikilsvert starf kirkj- unnar í þágu lista og menningarlífs. Sóknargjöld eru hluti af sáttmála ríkis og kirkju Þjóðkirkjan starfar á grundvelli laga og samninga við ríkisvaldið. Sóknargjöld eru einu föstu tekjur kirkjunnar til að fjármagna allt starf sitt. Allir eldri en 16 ára greiða sóknargjöld. Í samningi ríkis og kirkju frá 1998 segir: „auk þess inn- heimtir ríkissjóður eins og verið hefur sóknar- og kirkjugarðsgjöld fyrir þjóð- kirkju Íslands og innir af hendi lög- bundnar greiðslur í Kirkjumálasjóð, Jöfnunarsjóð sókna og Kirkjugarðasjóð“. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ákvað að lækka þennan eina tekjustofn þjóðkirkjunnar. Framsóknarflokkurinn vildi standa vörð um sóknargjöldin en ríkisstjórnarflokkarnir stóðu á því fastar en fótunum að skerða ætti framlög til kirkjustarfsins. Vinstriflokk- arnir eru ekki þekktir fyrir örlæti gagnvart þjóðkirkj- unni. Órjúfanlegur hluti af grunnstoðum þjóðarinnar Í fyrstu málsgrein 62. gr. stjórnarskrár lýðveldisins segir um þjóðkirkjuna: „Hin evangelísk lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.“ Þarna undirstrika grunnlög þjóðarinnar mikilvægi þjóðkirkjunnar og boða að ríkisvaldið skuli styðja og vernda kirkjuna. Tilburðir eru í þá átt að veikja stöðu kirkjunnar með því að fá þjóðkirkju- ákvæðið afnumið úr stjórnarskránni. Framsóknarflokkurinn leggst eindregið gegn því að hróflað sé við stöðu kirkj- unnar í stjórnarskrá lýðveldisins. Þjóð- kirkjan og íslenskt samfélag eru banda- menn. Í þúsund ára sögu kristni á Íslandi hefur trúin verið kynslóðunum styrkur og kirkjustarfið samfélagsstoð. Við eigum að sýna þjóðkirkjunni þá virðingu sem henni ber og getum kinnroðalaust gert það án þess að í nokkru sé hallað á þá sem búa að annarri sannfæringu en þeirri kristnu. Eftir Ásmund Einar Daðason » Þjóðkirkjan er meira en söguleg arfleifð okkar, hún er lifandi veruleiki sem snertir líf okkar flestra með einum eða öðrum hætti alla ævigönguna. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er alþingismaður Framsóknarflokksins. Bandalag þjóðkirkju og íslensks samfélags Formaður VG missti sig í um- ræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra í síðustu viku þegar hann vék skyndilega frá skrifuðum og æfðum texta ræðu sinnar og opinberaði draum sinn um að takast mætti að einangra Sjálfstæðisflokkinn eftir næstu kosningar. Þar lýsti hann því að allir flokkar og flokksbrot ættu að taka höndum saman um að halda Sjálfstæðis- flokknum frá völdum á næsta kjör- tímabili hvað sem það kostaði því flokkurinn þyrfti á enn frekari pólitískri end- urhæfingu að halda. Ófyrirleitni Um þessar mundir mælist Sjálfstæðisflokk- urinn með upp undir 40% fylgi í skoðanakönn- unum á meðan VG er kringum 10% og aðrir með á bilinu 3% til 20%. Með afstöðu sinni afhjúpaði for- maðurinn grímulaust virðingarleysi sitt gagnvart lýðræðinu og viðurkenndi það að valdagræðgi er hreyfiaflið í pólitískri sýn hans. Vert er að vekja athygli fólks á þeim ófyrirleitnu viðhorfum for- manns VG að rétt sé að einangra þann flokk sem langflestir kjósendur vilja. Ef lýðræði virkar, þá á að mynda ríkisstjórnir í samræmi við það fylgi sem fellur á flokka og framboð. Engin önnur leið er boðleg. Verði niðurstöður næstu kosninga í samræmi við skoðanakannanir nú blasir við hvernig eðlilegt væri að standa að stjórn- armyndun. En valdasókn þessa fólks er með þeim hætti að það getur ekki leynt þessum andlýðræðislegu kenndum sínum eins og fram kom þegar Stein- grímur J. Sigfússon missti sig í sjónvarpsumræð- unum í síðustu viku. Var 18 ár úti í kuldanum Hann sagði þá að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti á pólitískri endurhæfingu að halda á næsta kjör- tímabili utan ríkisstjórnar enda nægði honum yfirstandandi kjörtímabil ekki til þess. Nú er rétt að staldra við því enginn núverandi stjórnmálamaður á Íslandi hefur aðra eins reynslu á því sviði og einmitt Steingrímur J. Sigfús- son. Hann var úti í kuldanum í heil 18 ár! Hann var í samfelldri stjórnarand- stöðu frá árinu 1991 til 2009 – og það þurfti efnahagskreppu á Vestur- löndum sem leiddi til bankakreppu og hruns á Íslandi til þess að hann kæm- ist að nýju í ráðherrastól. Eftir 18 ár úti í nepjunni komst hann inn eftir að hrunið hafði dunið yfir. Hann hafði 18 ár til að fara í gegnum pólitíska endurhæfingu. Hvernig tókst til? Dæmi nú hver fyrir sig. En ég tel að sporin hræði. Hann kom til baka inn í ríkisstjórn pólitískt kalinn á hjarta og það hefur sett svip sinn á störf hans. Nokkrum dögum síðar sagði Björn Valur Gísla- son, þingmaður VG, það í óspurðum fréttum að hann myndi alls ekki ljá máls á því að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum eftir næstu kosn- ingar. Ef niðurstaða kosninganna verður í líkingu við skoðanakannanir bendir margt til þess að um- ræddur Björn þurfi alls ekki að hafa áhyggjur af þessu. Það muni ekki koma til hans kasta að mynda ríkisstjórn með einum eða neinum enda eru ágætar líkur á því að hann nái ekki endur- kjöri. Flest bendir til þess að Alþingi mundi lifa þann missi af. Eftir Helga Magnússon » Steingrímur hafði 18 ár til að fara í gegnum pólitíska end- urhæfingu. Hvernig tókst til? Dæmi nú hver fyrir sig. En ég tel að sporin hræði. Helgi Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri. Þegar pólitísk endurhæfing snýst upp í andhverfu sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.