Morgunblaðið - 17.09.2012, Síða 18
18 UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012
Morgunblaðið gefur
út glæsilegt sérblað um
Hannyrðir, föndur og
tómstundir föstudaginn
28.september.
Þetta er tíminn til að huga að
hannyrðum og föndri fyrir jólin
SÉRBLAÐ
Hannyrðir, föndur &
tómstundir
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
24. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
Hannyrðir af ýmsu tagi.•
Skartgripagerð.•
Jólakortagerð.•
Útsaumur.•
Prjón og hekl.•
Vatnslita- og olíumálun.•
Bútasaumur.•
Módelsmíði.•
Rætt við fólk sem kennir föndur.•
Rætt við þá sem sauma og selja•
föndurvörur.
Föndur með börnunum og þeim•
sem eldri eru.
Ásamt fullt af öðru spennandi•
efni um föndur og tómstundir.
MEÐAL EFNIS:
Hanny
rðir, fö
ndur &
tómstu
ndir
Til hamingju Ís-
lendingar með frá-
bæran árangur ís-
lenskra íþróttamanna.
Á Ólympíuleikunum
og Ólympíumóti fatl-
aðra í London, svo
nærtæk dæmi séu
nefnd, kepptu glæsi-
legir fulltrúar Íslands
sem fönguðu athygli
allrar þjóðarinnar og reyndar
margfalt fleiri áhorfenda. Það er
engin tilviljun að við eigum svo
glæsilega íþróttamenn. Aðstaða og
aðbúnaður til íþróttaiðkunar hefur
stórbatnað á undanförnum árum en
þótt það segi ekki alla söguna
skiptir það miklu máli. En oft má
gott bæta og við trúum því að Ís-
lendingar geti átt enn fleiri afreks-
menn – t.d. á Ólympíuleikunum í
Ríó 2016. Meðal þess sem þarf að
endurskoða er aðstoð við ungt fólk
í einstaklingsíþróttum sem er að
stíga sín fyrstu skref á afreka-
brautinni.
Kaflaskipti um tvítugt
Mikil ánægja fylgir því að vera
efnilegur unglingur í íþróttum.
Markvissar æfingar í góðum fé-
lagsskap og kannski ein eða tvær
æfinga- eða keppnisferðir á ári. Þú
ert ung(ur), átt framtíðina fyrir þér
og hefur litlar áhyggjur á meðan
foreldrarnir geta aðstoðað við að
borga þessar fáu æfingaferðir sem
farið er árlega. En um tvítugt
verða ákveðin kaflaskil og það má
segja að veruleikinn ráðist á
íþróttamanninn. Þú ert fullorðinn
og til þess að vera tekinn alvarlega
er nauðsynlegt að leggja allt í söl-
urnar. Gríðarlegur tími fer í æfing-
ar og þú ferð í a.m.k. fjórar til
fimm keppnis- eða æfingaferðir ár-
lega sem hefur mikinn kostnað í
för með sér.
Komast ekki á stórmót
vegna kostnaðar
Á þessum tímamótum upplifa
margir íþróttamenn sig mun-
aðarlausa. Þeir hafa enn ekki
„slegið í gegn“ en hafa þó alla
burði til að gera það á stórmótum
næstu ára. Félagarnir eru hættir
að æfa íþróttir og samfélagið ætl-
ast ekki til þess að þú eyðir of
miklum tíma í eitthvert „sprikl“.
Ekkert fyrirtæki vill styrkja
óþekktan íþróttamann en eftir að
hann hefur náð athygli keppast þau
um að bendla nafn sitt við árang-
urinn. Á tyllidögum keppist svo
hver um annan þveran við að
hampa afrekunum og hrósa
íþróttamönnum fyrir að vera frá-
bærar fyrirmyndir. Allir vildu Lilju
kveðið hafa.
Það er full vinna að vera góður
íþróttamaður. Oftar en ekki geta
íþróttamenn ekki stundað hefð-
bundna vinnu vegna æfinga svo
erfitt getur verið að greiða fyrir
keppnisferðir. Styrkir ÍSÍ duga í
sumum tilvikum aðeins fyrir einni
keppnisferð á ári. Dæmi eru um að
ungir íslenskir íþróttamenn hafi
þurft að hætta við að keppa á
heimsmeistaramótum vegna þess
að það er of kostnaðarsamt! Vert
er að taka fram að samkvæmt fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
eru öllu íþróttastarfi í landinu ætl-
aðar 385,3 milljónir úr ríkissjóði á
næsta ári. Þar af fær ÍSÍ 154,2
milljónir króna sem er skamm-
arlega lág upphæð en til að setja
hana í samhengi fær Sinfón-
íuhljómsveit Íslands 901,1 milljón
árið 2013 samkvæmt frumvarpinu.
En vandinn felst þó ekki aðeins í
litlu fjármagni heldur einnig skorti
á viðurkenningu.
Íþróttamenn í
námi fái stuðning
Fjölmargir stunda nám jafnhliða
íþróttaiðkun. Eins og gefur að
skilja fylgir því ekki mikill pen-
ingur og til þess að eiga rétt á full-
um námslánum þarf að vera í fullu
námi. Það er ekki í öllum tilvikum
hægt að ætlast til þess að íþrótta-
maður sem t.d. æfir af kappi fyrir
heimsmeistaramót klári 30 einingar
á önn til að fá fullt lán frá LÍN.
Íþróttamenn eiga ekki að þurfa að
fórna námi fyrir íþróttaafrek eða
öfugt. Slík skammsýni á ekki
heima í háþróuðu samfélagi á 21.
öld. Íþróttamenn eiga að fá stuðn-
ing til að sinna námi og keppni. ÍSÍ
ætti t.d. að hafa heimild til að votta
um að tiltekinn einstaklingur sé
keppnisíþróttamaður og slíkt vott-
orð gæfi handhafanum heimild til
að stunda hálft háskólanám en þó á
fullum námslánum hjá LÍN. Slíka
tilhögun mætti útfæra þannig að
aðeins þeir sem keppa fyrir Ísland
á stórmótum fengju þannig passa
og aðeins til eins árs í einu. Það
yrði hvetjandi fyrir íþróttamennina
og skólana.
Sérsamböndin og ÍSÍ reyna af
veikum mætti að styðja við bakið á
íþróttamönnum en strúktúrinn
virðist veikur og samböndin standa
mörg hver höllum fæti fjárhags-
lega. Þá gerist það að kostnaður
við keppnisferðir lendir á sjálfum
íþróttamönnunum, sem þó keppa
fyrir hönd allrar þjóðarinnar, og
það er algjörlega óásættanlegt.
Hvers virði er það fyrir hróður,
ímynd og hagsmuni Íslands að eiga
afreksfólk sem vekur athygli á
landi og þjóð alþjóðlegum vettvangi
með glæsilegri framgöngu? Afreks-
menn í íþróttum gefa þjóðinni svo
mikið að það ætti að vera for-
gangsatriði að standa við bakið á
þeim!
Atfylgi er forsenda afreka
Eftir Davíð Ingason
og Hjalta Geir
Erlendsson
»En um tvítugt verða
ákveðin kaflaskil og
það má segja að veru-
leikinn ráðist á íþrótta-
manninn. Þú ert fullorð-
inn og til þess að vera
tekinn alvarlega er
nauðsynlegt að leggja
allt í sölurnar.
Davíð Ingason
Höfundar hafa báðir starfað innan
íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.
Hjalti Geir Erlendsson
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að
nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í
samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið
birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for-
síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn
"Senda inn grein" er valinn.
Græðgi og sjálfs-
elska eru orð sem ærið
oft hafa komið fyrir í
umræðunni hérlendis
undanfarin ár og það
því miður ekki að
ósekju. Það er því sér-
stakt fagnaðarefni
þegar andstæður þess,
örlæti og gjafmildi, líta
dagsins ljós. Dæmi um
það eru tvær veglegar
gjafir frá Frakklandi sem brátt bæt-
ast í safnkost sýningarinnar „Heim-
skautin heilla“ í Háskólasetri Suð-
urnesja í Fræðasetrinu í Sandgerði.
Annars vegar er það líkan úr sel-
skinni af kajak úr eigu Charcots,
sennilega frá því um 1920. Hins vegar
forláta líkan og nákvæm eftirlíking af
rannsóknaskipinu Pourquoi Pas?
smíðað af miklum völundi, Claude
Acard, en hann hóf að smíða það árið
1947 og lauk við það skömmu áður en
hann lést, árið 1988.
Jean-Baptiste Charcot
Franski heimskautafarinn, leið-
angursstjórinn og læknirinn Jean-
Baptiste Charcot (1867-1936) var
einn þeirra merkismanna sem fyrstir
könnuðu og kortlögðu haf- og land-
svæðin umhverfis heimskautin í byrj-
un síðustu aldar, en meðal annarra
þekktra heimskautafara þessa tíma
má nefna Amundsen, Scott, Norden-
skjöld, Peary og Vilhjálm Stefánsson.
Þekktasta skip hans var Pourquoi-
Pas? – sérútbúið rannsóknaskip með
þremur rannsóknastofum og bóka-
safni. Í ferðum þess voru gerðar
margvíslegar vísindarannsóknir sem
þykja stórmerkar enn þann dag í dag.
Þann 16. september 1936 lenti skip
hans Pourquoi pas? í miklu og
óvæntu óveðri út af Garðskaga,
hraktist upp í Borgarfjörð og fórst á
Hnokka út af Álftanesi á Mýrum. Alls
létust 40 manns, 23 fundust látnir, 17
var saknað og fundust aldrei og einn
skipverji komst lífs af.
Heimskautin hella
Sýningin „Heimskautin hella“ var
opnuð í Háskólasetri Suðurnesja í
Sandgerði 25. febrúar
2007. Sýningunni er
ætlað er að varpa ljósi á
ævi og starf þessa
merka manns. Þar hef-
ur verið leitast við að
endurskapa það magn-
aða andrúmsloft sem
ríkti um borð í rann-
sóknaskipunum á sínum
tíma, en auk þess hefur
verið safnað saman
margvíslegum fróðleik í
máli og myndum um
ævi Charcots og störf. Sjá:http://
www.heimskautinheilla.is/
Tveir dýrgripir
Þriðjudaginn 18. september bætast
tveir dýrgripir við sýningarkostinn.
Annars vegar afhendir dótturdóttir
Charcots, frú Anne-Marie Vallin-
Charcot, líkan af kajak sem innfæddir
gáfu Charcot í einum af rann-
sóknaleiðöngrunum til Grænlands á
fyrri hluta 20. aldarinnar. Hins vegar
verður sýningunni gefið veglegt líkan
af rannsóknaskipinu Pourquoi pas?
Líkanið gerði maður að nafni Claude
Acard (1922–1988) sem bjó í Le
Havre í Norður-Frakklandi. Eftirlif-
andi eiginkona hans gefur líkanið í
minningu eiginmanns síns og áhafn-
arinnar á Pourquoi pas?
Charcot kom margoft hingað til
lands á sínum tíma, einkum á árunum
1918 til 1936, eignaðist hér fjölmarga
vini og hélt góðu sambandi við þá allt
þar til yfir lauk. Það er í anda þess-
arar vináttu sem afkomendur hans og
áhugafólk um að halda minningu hans
á lofti gefa okkur Íslendinga þessa
dýrgripi.
Fádæma
örlæti Frakka
Eftir Friðrik
Rafnsson
Friðrik Rafnsson
» Charcot kom marg-
oft hingað til lands á
sínum tíma, eignaðist
hér fjölmarga vini og
hélt góðu sambandi við
þá allt til hinstu stund-
ar.
Höfundur er þýðandi
Á því sögulega
augnabliki sem við
lifum höfum við
engan til þess að
reiða okkur á nema
hvern einasta
mann. Þess vegna
þurfum við frelsi
allra manna og
kvenna undan
áþján fámenn-
isvalds þ.e. því
feðraveldi fáfræði og kúgunar sem
ógnar framtíðinni; framtíð okkar
sjálfra og komandi kynslóða.
Viskan er hjá hinum mörgu
Allt er undir hverjum og einum komið
því framtíð okkar er sameiginleg hvort
sem okkur líkar það betur eða verr.
En framtíðin er björt vegna þess að
sameiginlega eru okkur allir vegir
færir. Það eina sem við getum misst er
fáfræðin því viskan og þekkingin ligg-
ur ekki hjá hinum fáu og valdamiklu
heldur hjá hinum mörgu sem sjá til
þess að heimurinn hreyfist frá degi til
dags.
Fólkið krefst öðruvísi heims
Það sem til þarf er lítils háttar, en
verður að óstöðvandi afli þegar það
gerist hjá hverjum og einum samtímis.
Við þurfum aðeins að vakna…… Þetta
gerist ekki í einu vetfangi, þetta gerist
af því að við höfum verið að rumska af
svefni um alllanga hríð. Þessi svefnrof
hafa birst á öllum breiddargráðum þar
sem fólkið fer í gegnum óttamúrinn út
á götur og torg til þess að krefjast
öðruvísi heims.
Fyrir allt fólkið 100%
Öðruvísi heimur er mögulegur, engin
völd, ekkert fyrirkomulag er sterk-
ara sameinuðum vilja hinna mörgu.
Þannig getur opnast ný framtíð án
ofbeldis, fyrir fólkið, já en fyrir allt
fólkið 100%.
Einnig í þágu ráðamanna
Það er ekkert sem ráðandi öfl óttast
meira en að svona þróun eigi sér stað.
Þess vegna mæta þau fólkinu grá fyr-
ir járnum. Ráðamennirnir ættu hins
vegar að geta skilið að uppreisn
fólksins er líka í þeirra þágu. Núver-
andi kerfi og sú einstaklingshyggja
og hagvaxtarstefna sem það byggist
á ógnar vistkerfinu og þar með til-
veru jarðarbúa, ekki síst komandi
kynslóða. Þar eru ráðamennirnir og
afkomendur þeirra taldir með.
Við þurfum að vakna
Það er ekkert annað en jákvætt og
skemmtilegt að vakna til vitundar um
möguleika okkar til að umbreyta
heiminum og gera hann að stað þar
sem allir geta átt gott líf. Umbreyt-
ing mun hins vegar ekki eiga sér stað
á sama vitundarstigi og bjó til vanda-
málið. Þess vegna þurfum við að
vakna.
JÚLÍUS VALDIMARSSON,
í landsráði Húmanistaflokksins.
Vöknum
Frá Júlíusi Valdimarssyni
Júlíus
Valdimarsson