Morgunblaðið - 25.09.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 25.09.2012, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012 ✝ Fanney Hjart-ardóttir fædd- ist á Vaðli í Vestur- Barðastrand- arsýslu 18. febrúar 1919. Hún lést í Víðihlíð, hjúkr- unardeild Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja, hinn 17. september síð- astliðinn. Foreldrar henn- ar voru Gísli Hjörtur Lárusson, bóndi í Neðri-Rauðsdal í Barða- strandarhr. f. á Berjadalsá í Snæfjallahreppi 6. ágúst 1894, d. 18. júlí 1964, og Bjarnfríður Jóna Bjarnadóttir, húsmóðir f. á Siglunesi í Barðastrandarhr. 1. des. 1892, d. 4. febr. 1979. Systkini Fanneyjar eru Sigrún Lilja, f. 17. maí 1915, d. 7. mars, 1999; Halldóra, f. 7. okt. 1916, Keflavík 1. nóv. 1892, d. 7. nóv. 1976. Börn: 1) Karl Taylor, f. 29. des. 1943, k. Ása Skúladótt- ir. Börn: Karl Taylor, f. 1964, d. 1964, Anna, f. 1968, og Jón Fannar, f. 1976. 2) Eðvarð Tay- lor Jónsson, f. 29. des. 1943. K.1 Steinunn Ólafsdóttir. Barn: Knútur Steinar, f. 1970, d. 2000. K. 2 Ólafía K. Ólafsdóttir. Börn: Eskil Daði, f. 1977, Ólafur Böðvar, f. 1980, Jakob Regin, f. 1983, Dagur Nabíl, f. 1982, d. 1982, Dagbjartur Ágúst, f. 1988, og Linda Rós, f. 1989. 3) Sigurborg, f. 7. des. 1948, d. 15 janúar 2002, m. Ægir Guð- laugsson. Þau slitu samvistum. Börn: Stefán Hannes, f. 1967, og Jón, f. 1969, d. 3. janúar 2007. 4) Bjarnfríður Jóna, f. 7. des. 1948, m. Pétur Vilbergs- son. Börn: Fanney, f. 1967, Elí- as Þór, f. 1971, Hulda, f. 1977, og Eygló, f. 1977. Lang- ömmubörnin voru 25 og langalangömmubörnin tvö Útförin fer fram að Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag, 25. september 2012, og hefst at- höfnin kl. 13. d. 26. desember 2010; Sigríður, f. 6. ágúst 1921, d. 12. des. 1987; Jónína, f. 8. des. 1923; Inga, f. 19. jan. 1925 d. 2. apríl 2008; Reynir, f. 30. júlí 1926, d. 7. jan- úar 2009; Sigvaldi, f. 23. sept. 1928; Lára, f. 24. apríl 1930; Kristjana, f. 16. júlí 1931; og Björg, f. 8. ágúst 1937, d. 6. maí 2012. Fanney giftist 1. nóvember 1947 Jóni Benjamínssyni Hann- essyni frá Keflavík f. 3. apríl 1920, d. 29. maí 2009. Foreldrar hans voru: Hannes Jónsson, verkamaður og hagyrðingur, f. í Svartárdal í Húnavatnssýslu 1. júlí 1882, d. 17. júní 1960, og Sigurborg Sigurðardóttir, f. í Móðir okkar elskuleg andað- ist á hjúkrunar- og dvalarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík á ní- tugasta og fjórða aldursári eftir alllanga sjúkdómslegu. Með henni er gengin góð og grand- vör alþýðukona sem vann sitt á tíðum erfiða dagsverk af stakri natni og trúmennsku. Mamma var af þeirri kynslóð sem lifði meiri umskipti á hög- um lands og þjóðar en nokkur önnur kynslóð Íslendinga. Hún ólst upp á bláfátæku og barn- mörgu sveitaheimili, Neðri- Rauðsdal á Barðaströnd. Þótt ekki væri ríkidæmið á þeim bæ var þar eindrægni, samlyndi og foreldrahlýja sem bætti upp skortinn og varð heilladrjúgt veganesti þeim ellefu börnum sem þar komust til manns. Lífs- baráttan var oft óvægin og allir á bænum urðu að taka þátt í hversdagsstritinu strax á barns- aldri. Rétt rúmlega tvítug hleypti mamma heimdraganum og hélt til borgarinnar þar sem allt ið- aði af lífi og fjöri. Í fyrstu bjó hún hjá Sigrúnu systur sinni og Gunnari Jónssyni manni hennar á Lindargötunni og vann meðal annars í Kexverksmiðjunni Esju og Hótel Borg. Gestkvæmt var á hótelinu á stríðsárunum og heimsborgarabragur að færast yfir höfuðborgina. Meðan hún starfaði á hótelinu kynntist hún geðþekkum sveitapilti frá Ten- nessee sem hingað var kominn með ameríska hernum. Með þeim tókust kærleikar en tím- arnir voru viðsjárverðir og um samband þeirra fór eins og seg- ir í kvæðinu „þeim var ekki skapað nema skilja“. Pilturinn ungi var sendur til vígstöðvanna í Evrópu í maí 1943 og örlögin höguðu því þannig til að hann komst ekki aftur til Íslands til að sækja heitkonu sína. Í des- ember sama ár ól mamma tví- burana, syni sína tvo sem hún af trygglyndi sínu gaf nafn föð- urins. Nú fóru í hönd erfiðir tímar hjá mömmu en hún naut dyggrar aðstoðar foreldra sinna á Barðaströnd og Sigvalda bróð- ur síns. Hún fór vestur með strákana sína nýfædda til for- eldra sinna á Barðaströnd og flutti síðan suður með þeim aft- ur 1946 þegar Hjörtur faðir hennar þurfti að hverfa frá bú- skap. Þá kynntist hún Jóni Hannessyni, miklum mann- kostamanni sem síðar varð eig- inmaður hennar. Með honum átti hún tvíburana Bjarnfríði og Sigurborgu, en Sigurborg lést langt fyrir aldur fram af ill- vígum sjúkdómi. Jón lést árið 2009 og þá hafði mamma unað samvistum við hann í blíðu og stríðu í 62 ár. Mamma var þriðja í röð ell- efu systkina, níu systra og tveggja bræðra. Systkinin komu saman reglulega og mamma hlakkaði alltaf mikið til sam- fundanna. Þar var mikið spjall- að og hlegið, systkinin ferðuðust saman utanlands og innan og komu saman um allar verslun- armannahelgar. Fyrir nokkrum árum tóku þau sig til og héldu saman á æskuslóðirnar, fóru víða um sveitir og yljuðu sér við ljúfar minningar um æskuna og uppvöxtinn. Mömmu var lýst sem glað- lyndri og glettinni stúlku með ríka þjónustulund sem öllum vildi vel. Við minnumst hennar sem hæglátrar og hógværrar konu. Hún var fremur hlédræg en þó alls ekki fáskiptin heldur full umhyggju og forvitni um hagi sinna nánustu allt fram í andlátið. Guð blessi minningu hennar. Karl Taylor, Eðvarð Taylor Jónsson, Bjarnfríður J. Jónsdóttir. Ég man fyrst eftir ömmu og afa á Garðaveginum í Keflavík og þar var ég oft í heimsókn hjá þeim, man eftir að hafa fengið að gista þar einu sinni og þótti mjög vænt um það. Svo fluttu þau á Kirkjuveginn og þangað kom ég stundum með vinkonur með mér þegar ég var í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, allir voru velkomnir. Ég fór ekki til Keflavíkur öðruvísi en að koma við hjá ömmu og afa, og seinna bara ömmu, í leiðinni. Hún tók alltaf vel á móti mér og þótti vænt um að fá gesti í heimsókn, fá fréttir af öllum hvort sem það voru fjölskyldumeðlimir eða vin- ir mínir og kunningjar. Ófáar voru líka ferðirnar í bústaðinn á Kirkjubæjar- klaustri, þar kenndi amma mér að spila rommí og leggja kapal. Einhvern tímann fór ég líka með ömmu að hitta systkini hennar í bústaðnum hjá Sig- valda og Lillu við Gíslholtsvatn um verslunarmannahelgi, þá sátu þau öll saman að hlusta á brekkusönginn í útvarpinu. Hún hélt góðu sambandi við systkini sín og þótti mjög vænt um sím- tölin frá þeim þegar hún var komin á hjúkrunarheimili og ekki í standi til að heimsækja þau. Við fórum saman til New- castle í Englandi eitt haustið, amma, mamma, Bogga heitin, ég og Hulda systir. Þar skemmtum við okkur konung- lega í búðarápi og er ein ferðin á kínverskan veitingastað mér mjög minnisstæð þar sem við misskildum þjóninn og enduðum með mörg box af mat heima á hótelherberginu. Það voru nokkrar tilviljanir sem tengdu okkur enn meira, eins og þegar ég réð mig í sveit á Haga á Barðaströnd en amma hafði unnið þar þegar hún var unglingur, og þegar ég fékk vinnu með skóla á Hótel Borg, þá sagði hún mér að hún hefði unnið þar líka. Þegar hún flutti í Víðihlíð var ég að vinna þar í sumarvinnu og gat kíkt til henn- ar á hverjum degi, ég held að henni hafi líka þótt gott að hafa andlit þarna sem hún þekkti. Ég hef reynt að fara reglu- lega í heimsókn til hennar og þá með eitthvert góðgæti með mér, sérstaklega þegar ég vissi að það var fiskur í matinn í Víðihlíð eða eitthvað annað sem hún var lítt hrifin af. Núna síðustu mán- uðina hef ég fundið meira og meira hvað henni þótti vænt um að fá fólk í heimsókn og ég fékk alltaf þétt faðmlag frá henni þegar ég kvaddi hana. Ef ég ætti að lýsa ömmu minni þá myndi ég líkja henni við engjarósina sem ég fann einu sinni staka í mýri, amma var einstök og falleg persóna sem átti engan sinn líka. Elsku amma, ég kveð þig með söknuði en veit jafnframt að það eru góðar sálir sem taka á móti þér, sálir sem þú hefur elskað og saknað. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Kær kveðja. Þín Eygló. Fanney Hjartardóttir  Fleiri minningargreinar um Fanneyu Hjart- ardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Snyrting Babaria-snyrtivörur loksins á Íslandi. Babaria er fjölbreytt vörulína sem er unnin úr náttúrulegum hráefnum og hentar þörfum allrar fjölskyldunnar fyrir alla daglega umhirðu húðar. Vörurnar fást í netversluninni www.babaria.is Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bæðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is s. 551-6488 KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Þarftu aðstoð við reksturinn ? Við aðstoðum þig við: bókhaldið, launaútreikninga, virðisaukaskattsuppgjör, gerð ársreikninga, skattframtalið, samskipti við RSK. Ókeypis kynningartími. Rekstur og skattskil s.f. Suðurlandsbraut 16. Til sölu TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ Dömuskór úr leðri, stakar stærðir - Tilboðsverð: 3.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Gisting Sveitasetrin Kjós og Grímsá Hópefli - hvatarferðir, fundir - veislur. Hentugt fyrir stóra sem smáa hópa Nánari upplýsingar Júlíus s. 892-9263 www.hreggnasi.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, BERNHARÐ GUÐNASON frá Berserkseyri, Grettisgötu 20A, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 20. september. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 28. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hrönn Bernharðsdóttir, Gunnar Leví Haraldsson, Hjörleifur G. Bernharðsson, Hugrún Þorsteinsdóttir, Ágústa G. Bernharðsdóttir, Hákon A. Sigurbergsson, Bernharð M. Bernharðsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og besti vinur, ÓLÖF HÓLMFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Fríða Sigurðard., Hörgshlíð 8, lést sunnudaginn 16. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 28. september kl. 13.00. Þór Gunnarsson, Sigrún Ása Sturludóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Harpa Másdóttir, Embla Þórsdóttir, Klaus Wallberg Andreasson, Sturla Þórsson, Guðlaug Ýr Þórsdóttir, Magnús Már Guðjónsson, Askur Wallberg Klausson, Ísabella Ýr Klausdóttir. ✝ Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS HELGASONAR húsgagnabólstrara, Lautarsmára 1, áður Laugateigi 8. Guðbjörg Þórarinsdóttir, Helgi Gunnarsson, Linda Ósk Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.