Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 48
Viðtal
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012
degi til sunnudags og vann stíft þar á milli.
Gussi ákvað hins vegar eftir að hann vann
sem dyravörður á Café Óliver mörgum ár-
um síðar að fá sér aldrei meira en einn
drykk framvegis.
Notaði hyggjuvitið í stað krafta
„Dyravarðarstarfið varð mannlegt fyrir mér
en þar sá maður líka hvernig drykkja er
og það verður enginn betri maður eða
skemmtilegri í glasi. Ég drekk í dag mjög
sjaldan brennda drykki og fæ mér einn
bjór í mesta lagi. Það var ekki það að
drykkja hefði verið vandamál, alls ekki, en
mér fannst þetta bara óþarfi.“ Gussi varð
þekktur sem dyravörðurinn sem gat talað
fólk til og notað hyggjuvitið í stað krafta
til að fá fólk út klukkan þrjú eða róa
mannskapinn niður. „Þetta var gott tímabil
og ég kynntist lífsreynslusögum fólks sem
mér þótti oft vænt um að heyra. En þetta
var auðvitað tegund af erfiðisvinnu og
kannski hef ég verið pínulítið ofvirkur og
þurft að fá útrás við líkamleg störf. Ég er
kominn á rólegra skeið núna.“
En dyravarðarstarfið var hinn pólinn á
því að flytja til Súðavíkur þegar hann var
19 ára. Á þeim tíma hafði hann lokið við
að leika í Fóstbræðrum og allir þekktu
hann. Fólk stoppaði hann úti á götu til að
deila með honum hvaða atriði væru í eft-
irlæti úr þáttunum og Gussi segir að sér
hafi þótt skemmtilegast að fólk nefndi aldr-
ei sama atriðið. „Í dyravarðarstarfinu þurfti
ég að standa fyrir framan fjölda fólks á
hverju kvöldi og þetta var eitthvað sem ég
gerði með það fyrir augum að flýja ekki
áhorf heldur takast á við það. En ég vissi
auðvitað ekkert út á hvað dyravarðarstarfið
gekk þegar ég réð mig í það. Hélt það
nægði bara að segja: Jæja, klukkan er þrjú
og það er búið að loka. Auðvitað gekk það
aldrei og það þurfti að tala fólkið til. Að-
eins tvisvar lenti ég samt í að þurfa að
beita afli, en það var í sjálfsvörn. Í 99 pró-
sentum tilvika dugði bara að tala. En starf-
ið gaf mér mikið, að fá að hlusta á hvað
fólk var að tala um og vildi tjá sig um. Ég
hef alltaf verið þakklátur fyrir það að fólk
vilji deila einhverju með mér og mín
reynsla er sú að það eru allar manneskjur
góðar. Þær eru bara mismunandi vel búnar
til að takast á við þær aðstæður í lífinu
sem þær lenda í.“
Ekki ætlað að stofna fjölskyldu
Fjölskyldu hefur Gussi aldrei stofnað og
segist tengja það við þörf sína fyrir frelsið.
Að geta farið út á sjó í þrjá mánuði ef
hann þurfi þess með. „Ég held að mér sé
jafnvel ekki ætlað að verða fjölskyldumaður
en ég er fremur örlagatrúar og tilviljanir
eru eitthvað sem ég hef enga trú á. En
hvað veit maður. Nú er ég að fara að leika
í þessari mynd og ætla að skrifa. Ég ætla
jafnvel að taka skrokkinn á mér í gegn því
ég sé fyrir mér að ég muni þurfa aukna
hreyfingu ef ég ætla að setjast við skriftir.
Kannski verður kona komin inn í myndina
eftir eitt tvö ár, þótt ég sjái það ekki fyrir
mér núna að stofna til fjölskyldu og hafi
ekki þrá eftir því.“
Það kemur ekki á óvart að leikarinn hafi
átt auðvelt með að þróa handrit sitt en
hann hefur býsna gott hugmyndaflug.
Fræg varð hangikjötssúpa sem hann fann
upp og var sett á fastan matseðil Café Óli-
ver og varð réttur sem sló í gegn hjá mat-
argestum. Hugurinn fer víða og hann les
mikið.
Tíminn með Fóstbræðrum var frábær að
sögn Gussa. Hann hafði dreymt um að geta
Gussi var valinn í
Fóstbræður eftir
prufur sem hann fór
í fyrir þættina.
* Ég kom held ég íþetta líf til þess aðhrista upp í óþarfa hefð-
um og gildum. Ég vil
hleypa gleði og kátínu inn
í líf fólks og leyfa því að
lyfta brúnum.
ÚLPU
-
DAG
AR
Í ELL
INGS
EN
Í KULDANUM
ÓMISSANDI
DIDRIKSONS FIONA
Stærðir 36–46. Svartar og rauðar.
18.990 KR.
FULLT VERÐ 23.990 KR.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
26
37
DIDRIKSONS LESTER
Stærðir S–XXL. Grænar og svartar.
19.990 KR.
FULLT VERÐ 24.990 KR.