Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 38
Gucci, Rochas, Givency og Bottega Veneta voru öll með
dökkrauðan varalit í tískusýningum sínum fyrir haust- og
vetrartískuna 2012 til 2013. Þessi áhersla á dökkan rauðan lit
endurspeglast í litavali á snyrtivörum þetta haustið. Haustlitir-
nir virðast koma sterkt fram í hausttískunni, líka í förðun.
Stórstjarnan og Íslandsvinkonan Emma Watson er með
þetta á hreinu og skartaði djúprauðum dökkum vörum á
rauða dreglinum á frumsýningu í Toronto í Kanada fyrr í
mánuðinum.
Takið eftir stílhreinni augnförðuninni á Emmu. Með dökk-
um vörum er fallegt að hafa augnmálninguna létta og nota
jafnvel ljósa og mjúka tóna.
Emma Watson varð að stjörnu eftir leik sinn í Harry Potter-myndunum
og setur nú línurnar í tísku líkt og gjarnan er með stjörnur kvikmyndanna.
AFP
HAUSTLITIRNIR KOMA FRAM Í TÍSKUNNI
YSL Rouge Pur
Couture Vernis à
Lèvres Glossy
Stain nr. 10.
Verð 4990 kr.
Dimmrauðar og
dökkar varir
LANCOM
Rouge in
Love nr. 185
4690 kr.
HELENA
RUBINSTEIN
Rouge 102.
Verð 5290 kr.
Áttu einhverja uppáhaldsflík? Já, Ellukjólinn minn.
Hver eru bestu fatakaupin þín? Ellukjóllinn aftur.
Af hverju er mest í fataskápnum? Bolum og nærbuxum.
Hver er uppáhaldsfylgihluturinn þinn? Ætli það sé ekki fallega silfur-
kúlan mín frá Krista design sem Lína systravinkona mín gaf mér.
Áttu þér uppáhaldshönnuð? Hef hingað til aldrei átt slíkan, en mér
finnst Ellufötin dæmalaust falleg.
Hvar kaupirðu helst föt? Ætli ég hafi ekki einna mest keypt frá H&M,
Gap, Vero Moda og French Connection sem dæmi.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Man ekki eftir
neinni! Kannski af því að ég er ekki mikill sjoppari í eðli mínu, fyndist
eiginlega best ef einhver færi og keypti á mig föt sem pössuðu mér.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Snið og liti. Ég
er lágvaxin og þarf að vera í aðsniðnum fötum sem passa til að líða
ekki eins og lítilli jólakúlu, því ég vil helst alltaf vera í litum.
Af hverju kaupirðu mest? Kjólum og bolum.
Litagleði eða svarthvítt? Litagleði, engin spurning.
Áttu einhverja tískufyrirmynd? Nei, enga eina. En
ég tek eftir þegar mér finnst konur fallega klæddar og
fæ hugmyndir frá þeim. Þær sé ég hér og þar og alls
staðar.
Hefurðu augastað á einhverju fallegu fyrir haust-
ið? Mig langar mikið í peysu frá Farmers market, hún
er grá, þunn og stingur ekki en voða hlý. Ég er að
hugsa málið, mér er alltaf kalt.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt
þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til
að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert
færirðu? Ég er með svakalega krullað hár og liðað,
undarlega liðað finnst mér nú oft. Ég myndi líklega
fitta mjög vel inn í tískuna 1930.
Hvaða flík eða fylgihlut keyptirðu
þér síðast? Ég keypti mér fallegan
bleikan jakka á Ítalíu á útsölu.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á
verðmiðann, hvaða flík eða fylgi-
hlut myndirðu kaupa? Ég myndi
kaupa vandaða, fallega skó og nærföt.
ELSKAR FÖT Í FALLEGUM LITUM
Myndi passa inn
í tískuna 1930*Föt og fylgihlutir Slaufubelti eru það heitasta, þau má nota við kjóla jafnt sem jakka eða síðar kápur
Ella ilmvötn
fást m.a. á
heimasíðu
ellabyel.com
og kosta
12.000 kr.
La perla brjósta-
haldari kostar
29.400 kr. og nær-
buxurnar 22.500 kr.
og fást á Net-a-
porter.com
EBBA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR HEFUR Í NÓGU AÐ SNÚAST EN BÓKIN ELD-
AÐ MEÐ EBBU Í LATABÆ KOM Í HILLUR Í VIKUNNI. SJÁLFA DREYMIR HANA UM
HLÝJA PEYSU OG VANDAÐA SKÓ Í SÍNAR HILLUR FYRIR VETURINN.
Krista Design hálsmen
sem hægt er að skoða á
Facebook síðu hennar.
Fell peysa frá
Farmers
market.