Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 36
M
argir hafa beðið spenntir
eftir iPhone 5 frá Apple
sem kominn er á mark-
að í Ameríku og nú ný-
verið í Bretlandi. Þrjár gerðir voru
kynntar til sögunnar. Þeir sem kaupa
símann erlendis þurfa að athuga að
eingöngu einn af þeim getur tengst
4G kerfinu á Íslandi eða í Evrópu: þ.e.
A1429. Sá sími styður Evrópukerfið
svokallaða, en munurinn á því og
bandaríska kerfinu liggur í tíðniband-
inu sem notað er. Evrópski iPhone 5
notar t.d. tíðnir á 1800 MHz fyrir 4G.
Hinar iPhone 5 gerðirnar nota aðrar
tíðnir sem ekki eru notaðar í Evrópu.
Þegar iPhone 5 kemur til Íslands get-
ur hann eingöngu notað 3G- og GSM-
farsímakerfin. Ástæðan er sú að sím-
kerfið á Íslandi er enn ekki komið inn
á 4G-kerfið sem þessir símar fara inn
á. Nova hefur hafið innreið 4G-
kerfisins á Íslandi með tilraunaleyfi
frá Póst- og fjarskiptastofnun á Ís-
landi og hefur sett upp tilraunasenda.
Enn er ekki búið að bjóða út 4G-tíðnina á Íslandi en það verður gert í haust.
Ólík kerfi eru í gangi í heiminum, sá sími sem virkar í Ameríku gengur ekki
inn á Evrópukerfið og öfugt. Harald Pétursson sem er yfir viðskiptaþróun
hjá Nova líkir þessu við „þegar GSM fór af stað í byrjun þá þurfti sérsíma
fyrir Ameríku. Fljótlega fóru svo að koma símar sem studdu mörg tíðnibönd
og gátu virkað í Evrópu og Ameríku. Nú er þetta að gerast aftur því tíðni-
böndin eru svo mörg að það er hreinlega mjög erfitt að koma allri þessari
tækni inn í eitt og sama tækið, sem má ekki vera of stórt. Þegar líður á og
næsti iPhone kemur þá mun hann líklega styðja allar tíðnirnar, vegna þess
að þá verða komnir nýir örgjörvar sem eru minni en miklu öflugri og opna
ennþá fleiri möguleika í þessi tæki, sem þó eru orðin algjör undratæki í dag
og geta gert ótrúlegustu hluti fyrir okkur.“ thorunn@mbl.is
NÝR IPHONE 5 FRÁ APPLE KOMINN Á MARKAÐ
iPhone 5 tengist
inn á GSM og 3G
kerfið á Íslandi
4G-KERFIÐ EKKI ORÐIÐ VIRKT Á ÍSLANDI OG ÞVÍ TENGIST
NÝI SÍMINN INN Á GSM- OG 3G-KERFIÐ. EIN AF ÞREMUR
GERÐUM AF IPHONE 5 FRÁ APPLE GETUR TENGST 4G
KERFINU Á ÍSLANDI ÞEGAR ÞAÐ KEMST Í GAGNIÐ.
Apple-áhangendur biðu spenntir þegar nýr iPhone 5 var kynntur til
sögunnar. Hann er mun þynnri, léttari og stærri en sá eldri.
AFP
iPhone 5 þrjár gerðir
1 GSM týpa A1428
UMTS/HSPA+/DC-HSDPA
(850, 900, 1900, 2100 MHz)
GSM/EDGE (850, 900, 1800,
1900 MHz)
LTE (Bands 4 and 17)
2 CDMA týpa A1429
CDMA EV-DO Rev.A and Rev.
B (800, 1900, 2100 MHz)
UMTS/HSPA+/DC-HSDPA
(850, 900, 1900, 2100 MHz)
GSM/EDGE (850, 900, 1800,
1900 MHz)
LTE (Bands 1,3,5,13,25)
3 GSM týpa A1429
UMTS/HSPA+/DC-HSDPA
(850, 900, 1900, 2100 MHz)
GSM/EDGE (850, 900, 1800,
1900 MHz)
LTE (Bands 1, 3, 5)
Þennan er hægt
að nota á Íslandi
T
veir ungir drengir sem báðir stunda greinar
sem flokka má undir jaðarsport hafa notað
GoPro vélarnar sem hafa gefið góða raun.
Þær hafa hjálpað þeim að verða betri í grein
sinni, komið þeim á framfæri og varpað upp nýju sjón-
arhorni.
„Þetta er mjög þægileg lítil vel sem hægt er að taka
með sér hvert sem er. Það fylgir henni mikið af fest-
ingum og hægt er að festa hana hvar sem er t.d. á hjól-
ið og hjálminn. Með því móti er hægt að ná sjónarhorni
sem annars er ekki væri hægt að ná. Mest nota ég vél-
ina með því að festa hana á prik, þá er hægt að elta
mann á hjólinu og ná flottu vídeó. Það góða við þær er
að þær eru höggheldar og maður er því ekki hræddur
við að missa þær og eyðileggja. Ef festingin dettur af
er oftast í góðu lagi með þær,“ segir Sindri Hauksson
sem stundar BMX hjólreiðar, snjóbretti og skíði.
„Með myndavélunum er hægt að auglýsa sig úti í
heimi sérstaklega þar sem Ísland er svona lítið og það
hefur heppnast,“ segir Sindri en hann er kominn á
samning hjá GoPro. Allt vegna þess að hann notaði
slíka vél og setti út myndband af sér á netið.
Eyþór Reynisson er fimmfaldur motorcross-meistari
og notar sína myndavél mikið. „Myndavélin hjálpar
sportinu mikið og hefur nýst mér vel. Ég festi hana oft-
ast við mig á hjálminn þegar ég er að æfa mig, sér-
staklega þegar ég hjóla í 30 mínútur „straight“. Eftir
það er gott að skoða vídeóið vel og sjá hvar maður get-
ur bætt sig, hvar hinir eru að græða á manni, skoðað
mistökin og annað slíkt,“ segir Eyþór. Jafnframt telur
hann kostina við vélina ótvíræða því hann fylgist vel
með þeim bestu í heimi sem nota vélarnar í ríkum
mæli. Þeir setja myndbönd af sér á netið og af því lærir
hann töluvert.
Þeir sjá báðir að fleiri í sportinu þeirra eru farnir að
nota slíkar vélar. Þegar flett er á netinu má sjá fjölda
myndbanda þar sem vélarnar eru notaðar hvort sem
um er að ræða iðkun fallhlífastökks, hjólabretta eða
greina sem sýna hraða og oftar en ekki ótrúlega
dirfsku.
OFURHUGAR FESTA SJÁLFA SIG OG FÉLAGANA Á FILMU
Festa vélina á prik
og elta mann á hjóli
GOPRO MYNDAVÉLAR NJÓTA VINSÆLDA MEÐAL OFURHUGA SEM STUNDA JAÐARSPORT.
ÞÆR ERU SMÁGERÐAR, HÖGGÞOLNAR OG HÆGT AÐ FESTA ÞÆR Á SIG HVAR SEM ER.
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is
Sindri svífur um
loftið á BMX hjóli.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012
Græjur og tækni
Fyrir þá snjallsíma- og spjaldtölvunotendur sem hafa ávallt
dreymt um að kunna skil á himintunglunum kemur Star
Walk smáforritið án vafa í góðar þarfir.
Getur forritið greint yfir 20 þúsund fyrirbrigði á næt-
urhimninum og notandinn þannig fræðst um hvaða stjörnur
eru á lofti fyrir ofan hann, plánetur, gervitungl, vetrarbrautir
og þaðan af fleira.
Vinnur framleiðandinn, Vito Technology, náið með vís-
indamönnum og geimferðastofnunum að því að gera for-
ritið sem best úr garði og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir.
Hefur forritið m.a. verið verðlaunað af Apple fyrir hönnun
þess. Hægt er að nálgast Star Walk forritið í gegnum iTunes.
STAR WALK SMÁFORRITIÐ
Himintunglin
í símanum
Apple kynnir ekki bara nýjan síma um þessar mundir, og
selur í bílförmum, heldur birtist nýtt farsíma- og
smátölvustýrikerfi um líkt leyti, iOS 6. Í því eru fjölmargar
breytingar til hins betra, en einhverjar til hins verra ef
marka má umsagnir og þá helst kortaþjónustan sem þykir
skelfileg, svo skelfileg að það sé Apple til minnkunar.
Í fyrri gerðum iOS hefur kortaþjónustan verið frá Go-
ogle, en Apple-stjórum fannst víst rétt að fyrirtækið sæi
sjálft um þá þjónustu framvegis og hafa því keypt ýmis
fyrirtæki til að ná tökum á tækninni með þessum árangri.
Notendur gæti sín því á því að lítið eða ekkert getur verið
að marka forritið og fluvöllurinn gæti verið kornakur.
HVAR ERTU?
Kortaþjónusta í
iPhone 5 úti í móa