Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 18
*Heilsa og hreyfingListin að húla getur verið heilsubætandi og við getum sjálf komið í veg fyrir kvef
F
ólk vill í auknum mæli upplifa stemninguna sem fæst með því að æfa
saman í hóp, frekar en hver fari einn í ræktina. Þróunin virðist vera sú
að boðið sé upp á námskeið út um allt, annaðhvort utandyra eða í söl-
um hér og þar. Þessi þróun, að líkamsræktarstöðvarnar séu að stækka
og þeim fjölgi, held ég að sé að verða búin,“ segir Fannar Karvel Steindórsson.
Hann segir að þróunin í Bandaríkjunum og víðar hafi verið í þessa átt und-
anfarin fjögur til fimm ár. „Stóru stöðvarnar í Bandaríkjunum eru miklu minni
en þær voru og á móti eru litlu stöðvarnar á uppleið. Þá erum við að tala um
litlar stöðvar sem taka kannski 50-100 manns og fólk kemur þangað til að æfa
saman í hópum. Þetta eru hráar stöðvar, eins konar „vöruhúsa“-stöðvar, þar
sem menn eru ekki með þessi dýru og stóru tæki heldur er einfaldleikinn látinn
ráða.“
Íþróttahúsin tóm á morgnana
Hópþjálfun þar sem æft er eftir tilteknu kerfi hefur verið að ryðja sér til rúms
en Fannar Karvel þjálfar hópa samkvæmt svokölluðu metabolic æfingakerfi,
sem þróað var af Helga Jónasi Guðfinnssyni, fyrrverandi atvinnumanni í körfu-
bolta. Liðlega 500 iðkendur æfa nú eftir þessu kerfi í smærri hópum víða um
landið, en Fannar nýtir lítinn æfingasal í húsnæði HK í Digranesi fyrir tímana.
Það er enginn skortur á íþróttahúsum hér á landi og eins og Fannar bendir
á eru þau oftar en ekki í lítilli notkun á þeim tíma sem vinnandi fólk kýs jafnan
að stunda sína líkamsrækt. „Ég komst að því þegar ég fór að leita að aðstöðu
fyrir mína þjálfun að íþróttahúsin eru meira og minna tóm klukkan sex og sjö á
morgnana, en þeir tímar eru mjög vinsælir.“
Hann segir stærri líkamsræktartæki vel geta átt rétt á sér, einkum ef fólk
þarf að gera sérhæfðar æfingar, t.d. hjá sjúkraþjálfara.
„En svona almennt þarftu í raun ekki annað en góðan sal eða grasflöt og
tæki sem komast fyrir í einu horni eða svo,“ segir Fannar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
YFIR 500 MANNS ÆFA METABOLIC UM ALLT LAND
Meiri
stemning að
æfa í hóp
HÓPTÍMAR ÞAR SEM ÆFT ER EFTIR HVERS KONAR ÆFINGA-
KERFUM NJÓTA VAXANDI VINSÆLDA. FANNAR KARVEL STEIN-
DÓRSSON, ÍÞRÓTTAFRÆÐINGUR OG METABOLICÞJÁLFARI,
SEGIR AÐ Í BANDARÍKJUNUM VIRÐIST ÞRÓUNIN STEFNA ÚT
ÚR HEFÐBUNDNUM LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVUM OG Í MINNI
STÖÐVAR OG HÓPA SEM ÆFA JAFNT UTANDYRA SEM INNAN.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Fannar Karvel segir stemninguna skipta máli í þjálfun. Fólk verði að hafa gaman af þessu til að ná árangri.
Allt sem þarf
FÁTT JAFNAST Á VIÐ AÐ TAKA VEL Á
ÞVÍ. GRÆJURNAR ÞURFA EKKI AÐ VERA
FLÓKNAR OG RAUNAR ER ALLRA BEST
AÐ NOTA EIGIN ÞYNGD.
HANDLÓÐASETT
Hægt er að fá handlóðasett með
þremur þyngdum af handlóðum í
Rúmfatalagernum á 4.995 kr.
KETILBJÖLLUR
Fást í ýmsum þyngdum, frá 4 upp í 48 kíló og
kosta frá 2.000 kr. til 24.000 kr. og fást m.a. í
Sportvörum, GÁP og Hagkaupum.
ÆFINGATEYGJUR
Teygjur er hægt að
kaupa misstífar. Þær
kosta frá 3.490 til
3.690 kr. í Útilífi.