Morgunblaðið - 17.10.2012, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fólk kann að meta hvað þú er laus
við látalæti og fals. Gættu þess að ganga
ekki of langt í hreingerningum. Forðastu
umfram allt árekstra við samstarfsmenn
þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú skalt vera varkár í umferðinni í
dag. Nýttu þér lausar stundir sem gefast til
þess að bæta við þig á sviðum, sem hugur
þinn helst stendur til.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur gefið þér tíma til að
stunda félagslífið, svo framarlega sem þú
hefur afgreitt þau mál er varða heimilið.
Með einni setningu gætir þú látið sár gróa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki alltaf svo að besta
lausnin sé sú sem liggur í augum uppi.
Búðu þig undir að heyra frá vinum þínum og
fá boðskort í veislur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hlutirnir verða bara verri ef þú forðast
þá. Vinur vill hjálpa, eða í það minnsta halda
í höndina á þér. Að gefa af því sem þú átt
kemur margfalt tilbaka.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Forðastu að lenda í samkeppni við
vin þinn eða vinkonu. Þú ert með ýmislegt í
farvatninu sem þú hefur unun af og fleira í
sama dúr er á stefnuskránni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að gefa tilfinningunum smá frí
og velta hlutunum fyrir þér af kaldri skyn-
semi. Vertu á varðbergi, en gefðu öllu sinn
séns. Sýndu þolinmæði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú nýtur góðs af ríkidæmi ann-
arra í dag. Ekki taka að þér fleiri verkefni en
þú ræður við þessar vikurnar. Breytingar
taka tíma.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu afbrýðisemina ekki ná tök-
um á þér því hún getur haft alvarlegar af-
leiðingar. Skoðaðu hugmyndir maka frá öll-
um hliðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú nýtur svo mikillar velgengni í
fjármálunum þessa dagana að þú átt erfitt
með að treysta því að hún sé varanleg. Los-
aðu þig við það sem íþyngir þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki bregðast illa við, þótt sam-
starfsmenn þínir hafi uppi efasemdir um
verklag þitt. Þú átt erfitt með að segja nei.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú kemur í veg fyrir rifrildi af því að
þú kannt tækni sem virkar. Allir gera mistök,
líka ástvinur þinn. Líkamlegt ástand þitt er
gott, enda sinnir þú kroppnum vel.
Í klípu
„ÞAÐ ERU HELMINGSLÍKUR Á AÐ ÞÚ
LIFIR AÐGERÐINA EKKI AF. EKKI HAFA
ÁHYGGJUR SAMT, ÉG FÆ BORGAÐ
HVERNIG SEM FER.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„REYK EÐA REYKLAUST?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... kraumandi.
ALLUR HEIMURINN
ER KLÓRUSTAUR!
MÚHAHA! VEISTU HVERSUMARGIR HAFA
HRINGT ÚT AF
ÞÉR?!
SENNILEGA
37.
JÆJA, ERTU KOM-
INN ÚR GOLFI?
HVERJU
NÁÐIRÐU Í
DAG?
TVEIMUR ÖNDUM
OG ÍKORNA.
HANN VEIÐIR MEIRA MEÐ GOLFKYLFUNUM
EN MEÐ BOGA OG ÖRVUM.
Fréttir af framkvæmdum, sem farafram úr áætlun, eru legíó. Hvort
sem það er Læknaminjasafn á Sel-
tjarnarnesi, Harpa eða Orkuveita
Reykjavíkur – aldrei standast áætl-
anir. Víkverja finnst þetta vera á
skjön við öll líkindi. Þegar kastað er
peningi er undir hælinn lagt hvort
upp kemur fiskur eða skjaldarmerki.
Hins vegar minnist Víkverji þess
aldrei að hafa lesið frétt um opin-
bera framkvæmd, sem var undir
áætlun.
x x x
Víkverji fór nýverið á leikritið Ásama tíma að ári, sem sýnt er í
Borgarleikhúsinu. Leikrit þetta
hlýtur að vera draumur allra leikara.
Leikritið fjallar um karl og konu
sem hittast fyrir tilviljun á hóteli og
eyða nóttinni saman. Bæði eru gift,
en þau ná svo vel saman að eftir
þetta hittast þau á hverju ári á sama
tíma. Áhorfendur fá að fylgjast með
því hvernig þau þroskast, eldast og
breytast. Guðjón Davíð Karlsson og
Nína Dögg Filippusdóttir fara með
aðalhlutverkin og gera það með
miklum bravúr. Leikritið hefst um
miðja síðustu öld og lýkur þegar lið-
ið er á áttunda áratuginn. Verkið er
hin besta skemmtun, textanum lip-
urlega snarað og mörg tilefni til
hláturs. Þá voru dansatriði milli ást-
arfunda vel heppnuð.
x x x
Víkverji velti reyndar fyrir sérhversu margir í salnum myndu
eftir Barry Goldwater, forseta-
frambjóðanda repúblikana árið
1964, þegar þau ræddu pólitík á ein-
um funda sinna í leikritinu, en hugs-
aði með sér að það væri hið besta
mál að leyfa stykkinu að bera merki
síns tíma í stað þess að upp- og stað-
færa það og láta einfaldlega á það
reyna hvort brandarinn komist til
skila.
x x x
Veturinn læðist að. Í gærmorgunvar héla á bílrúðum og þurfti að
draga fram sköfuna. Er hann nálg-
ast svo mildilega, með björtu veðri
og heiðum himni, er þó ástæðulaust
að kvarta. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þá greindi hann mér svo frá: Þetta er
orð Drottins til Serúbabels: Ekki með
valdi né krafti heldur fyrir anda
minn, segir Drottinn allsherjar.
(Sakaría 4:6)
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is
Ormur Ólafsson, fyrrverandiformaður kvæðamannafélags-
ins Iðunnar, lést þann 22. ágúst sl.
Ormur var fæddur í Kaldrananesi í
Mýrdal 10. apríl 1918. Í fréttabréfi
Iðunnar má finna sýnishorn af
kveðskap hans, þar á meðal þessar
vísur um veður og tíðarfar:
Vanga sína vermir sól
vænkast óðum hagur.
Nú er hlýtt um byggð og ból
bjartur sumardagur.
Ekur gleði, eyðir hryggð
andans stækkar veldi
Eyjafjalla fögur byggð
földuð sólar eldi.
Sumarblíðu sakna hlýt
sölna rósir fríðar
Esjan nærri orðin hvít
ofan í miðjar hlíðar.
Bylgjur rísa á breiðum mar
brýtur á yztu skerjum.
Vetrarhörku veðurfar
versnar með degi hverjum.
Vetrarmugga veldur ugg
vonum stuggar mörgum.
Öldur rugga einum kugg
undir skuggabjörgum.
Vorsins yndi vekur þrótt
vaxa lindir dalsins
blíðu vindar blása hljótt
blána tindar fjallsins.
Eins og vísnavinir vita gengur
Skálda um salinn á kvæðafundum,
en næst kemur Iðunn saman á söng-
æfingu í Gerðubergi 5. nóvember
og hittist á félagsfundi 7. nóv-
ember, þar sem jafnan er efnt til lít-
ils hagyrðingamóts. Fundirnir eru
opnir öllum. Ormar orti á góðri
stund með vinum:
Um ferskeytlunnar fagra svið
farið Skálda getur.
Á sónarhafið sækjum við
sumar jafnt og vetur.
Og hann velti fyrir sér lífsins
göngu:
Annar heimur örugg hlíf
okkur trúin kenndi.
En aðeins þetta eina líf
eigum þó í hendi.
Áfram gerast atvik ný
eigum hönd á stýri.
Lengi endast látum því
lífsins ævintýri.
Lausn við vísnagátunni eftir Pál
Jónasson, Hlíð, sem birtist í Vísna-
horni í gær er: Dekk.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af félaga Ormi, Skáldu og
kvæðafundum Iðunnar