Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar Þ að er þó aðeins ein nýj- ungin af mörgum, eins og Ágúst Hallvarðsson, ráð- gjafi sölusviðs Volvo hjá Brimborg, útskýrir. Tæknin er kynnt til sögunnar í hin- um nýja Volvo V40 og nefnist Pe- destrian Airbag Technology. Eins og Ágúst útskýrir er um að ræða loftpúða sem skýst undan húddinu neðan við framrúðuna. Verði öku- maður bílsins fyrir því að aka á gangandi vegfaranda hlífir púðinn þannig viðkomandi vegfaranda við höfuðmeiðslum sem annars verða þegar líkaminn lendir á húddinu og höfuðið á framrúðunni. Upp rifjast í þessu sambandi að það var einmitt Volvo sem kynnti á sínum tíma til sögunnar þriggja punkta örygg- isbelti, nokkuð sem fyrir löngu er orðinn staðalbúnaður í hvaða bifreið sem vera skal. Ef til vill er þess ekki langt að bíða að búnaður á borð við framangreindan loftpúða verði stað- albúnaður hið sama? „Ég hugsa að það sé ekkert mjög langt í það,“ svarar Ágúst. „Eins er með fjögurra punkta belti. Ég gæti trúað að það sé ekkert mjög langt í þau heldur,“ bætir hann við. Bíllinn bregst við – ef ökumaður gerir það ekki Volvo V40 er splunkuný gerð sem tekur við af S40 og V50 gerðunum, og í reynd sömuleiðis af C30 bílnum sem hætt verður að framleiða í byrj- un næsta árs. Við blasir því að V40 er ætlað talsvert hlutverk innan framleiðslulínu Volvo. „V40 bíllinn býr líka yfir nokkrum virkilega áhugaverðum nýjungum,“ segir Ágúst. „Til að byrja með má nefna það sem við köllum „Borgaröryggi“ eða City Safety. Sú tækni liggur í radar sem er staðsettur fyrir fram- an baksýnisspegilinn, efst í fram- rúðunni, sem skynjar stöðugt veg- inn framundan, og ef ökumaður bregst ekki við hindrun framundan, ef annar bíll stoppar, til dæmis, þá bremsar bíllinn – ef fyrirséð er að ökumaðurinn mun ekki bregðast við,“ segir Ágúst. „Þetta kerfi virkar á undir 50 km/klst hraða og er stað- albúnaður í öllum nýjum Volvo- bifreiðum í dag og hefur verið síðan tæknin var kynnt í XC60 bílnum seinnipart 2008,“ útskýrir Ágúst. „XC90 er reyndar undanskilinn en í næsta módeli af honum verður tæknin komin.“ Gætt að umhverfinu og umferðinni Ágúst víkur aftur að loftpúðanum undir húddinu sem minnst var á hér að framan. „Það eru skynjarar í framstuðaranum sem skima svæðið fyrir framan bílinn og verði þar ákeyrsla blæs loftpúðinn út og hylur á augabragði um 90% framrúð- unnar. Um leið verður til ákveðin eftirgjöf í húddinu sem gerir það að verkum að höggið þar á verður ekki jafn harkalegt.“ Þessi búnaður og annar miðar allur að langtímamark- miði Volvo: að árið 2020 og þaðan í frá látist enginn í Volvo-bíl eða slas- ist alvarlega. Eru ýmsar fleiri nýj- ungar í hönnun og þróun hjá Volvo svo ná megi markmiðinu, að sögn Ágústs. „Það er alltaf farið lengra og lengra, og í rauninni er sá örygg- isbúnaður sem hægt er að setja í svona bíl þesslegur að þú getur nán- ast látið bílinn taka mið af umhverf- inu – látið hann „teika“ umferðina – að því marki að ökumaður þarf ekki að gera neitt sérstaklega mikið sjálfur nema halda um stýrið. Dri- ver Support-útfærslan tjaldar til að mynda öllu því til sem Volvo býður upp á í dag.“ Ágúst nefnir þar meðal annars aðlögunarhæfa hraðastillinn, eða Adaptive Cruise Control, þar sem ökumaður stillir einfaldlega vegalengdina sem hann vill hafa í næsta bíl. „Bíllinn viðheldur þaðan í frá alltaf sömu vegalengdinni. Einu gildir þó næsti bíll fyrir framan hægi á sér, Volvoinn gerir það þá í kjölfarið sömuleiðis til að halda skil- greindri lágmarksvegalengd milli bílanna.“ Viðbót á viðbragð ökumanns Þá er V40-bíllinn með árekstr- arvarnarkerfi sem tekur við af borg- arörygginu og virkar alveg upp í 200 km/klst hraða, að sögn Ágústs. „Ef bíllinn skynjar einhverja hættu framundan, með dágóðum fyrirvara, þá setur hann viðvörunarljós úr mælaborðinu upp á framrúðuna, og ef ekkert er að gert af hálfu öku- manns þá fylgir hljóðmerki með, þegar hættan er orðin yfirvofandi. Ef fyrirséð er að ökumaður ætlar ekki að bregðast við því heldur þá nauðhemlar bíllinn sjálfkrafa. En það gerir hann ekki fyrr en á elleftu stundu.“ Ágúst bendir á að þessi tækni komi ekki endilega í veg fyrir höggið sem orðið gæti við árekstur, en hún dragi verulega úr því. Af sama meiði er viðvörunarkerfi gagn- vart gangandi vegfarendum; það skimar stöðugt gangandi vegfar- endur og er alltaf til taks, jafnvel þó vegfarandi stökkvi skyndilega fyrir bílinn. Bíllinn bregst við með það sama og bremsar, útskýrir Ágúst. „Bíllinn tekur þannig viðbragðið af ökumanninum, sem er eins gott því bíllinn mun alltaf bregðast við hrað- ar en ökumaðurinn. Á því er enginn vafi.“ Sama radarkerfið skynjar veglínurnar og vaktar afstöðu bíls- ins gagnvart þeim. „Ef bíllinn tekur að rása á veginum, sem dæmi um óreglulegt aksturslag, sem gæti ver- ið til marks um að ökumaðurinn sé jafnvel farinn að dotta þá setur bíll- inn viðvörun í gang, og sýnir mynd af kaffibolla um leið og gefið er til kynna að tími sé kominn á pásu. Farirðu hreinlega út fyrir línuna þá lætur bíllinn vita með hljóðmerki og gefur sömuleiðis smá titring í stýrið svo athygli ökumanns sé örugglega náð.“ Kunnugir hugsa hér eflaust til tilfinningarinnar sem fæst þegar bílaleikir eru spilaðir á PlayStation leikjatölvur; þá vantar ekki hristing- inn þegar bílinn lendir utan vega. Ágúst samsinnir því um leið og hann brosir út í annað. Loks nefnir hann aðlögun á háu ljósunum. Láist öku- manni að slaka á þeim þegar hann mætir öðrum bíl á þjóðvegum úti þá sér Volvo V40 um að lækka þau meðan bílarnir mætast og hækkar þau svo upp aftur þegar vegurinn framundan er auður. Sama kerfi hreinlega les umferðarskilti sem til- greina hámarkshraða. Kerfið les skiltið og sendir skilaboð í mæla- borðið með ábendingu um breyttan hámarkshraða, til að minna öku- mann á að auka hraðann eða draga úr honum. „Sama gildir um stopp- merki – bíllinn skimar þau með fyr- irvara til að tryggja rétt viðbrögð ökumanns þegar þar að kemur.“ Meteinkunn í öryggisprófum Ágúst bendir á að sumir hvái við ámóta upptalningu og spyrji gjarn- an hvernig í veröldinni þeir eigi að fara að því að fylgjast með öllum þessum búnaði. Það sé þó óþarfi, því hann sé vitaskuld sjálfvirkur – þetta bara gerist. „Vonandi kemur svo aldrei til þess að fólk verði vart við neitt af þessu, því það þýðir jú að engin hætta hafi steðjað að. En það er óneitanlega betra að vita af þess- um búnaði ef á skyldi þurfa að halda.“ Fyrir utan hátæknina er bíllinn með um 20% stífari yfirbygg- ingu en forverinn S40, sem eykur sem því nemur á öryggi farþeganna. Í árekstrarsvæðunum að framan og aftan notar Volvo svokallað Boron stál, sem fáir aðrir framleiðendur nota, alltént í þeim mæli sem Volvo gerir, að sögn Ágústs. „Þetta gerir allt það að verkum að bíllinn fær svo svakalega fína einkunn í Euro NCAP prófunum, en þar skoraði hann tölur sem ekki hafa sést áður: 98% öryggi fullorðinna í bílnum, sem er áður óheyrð tala í þessu sambandi, 100% fyrir allan örygg- ispakkann, og svo hátt skor sem hann fékk fyrir öryggi gangandi vegfarenda hefur heldur aldrei áður sést.“ Ræður bíllinn of miklu? Margt af framangreindu hljómar vafalaust framandi fyrir marga öku- menn, ekki síst sá búnaður sem und- ir ákveðnum kringumstæðum tekur frumkvæðið af ökumanni í þágu ör- yggisins. Vel mætti ímynda sér að einhverjir áhugasamir hafi látið í ljós efasemdir um hversu ríkjandi bíllinn er í þessu sambandi – hann ráði akstrinum mestanpartinn nú- orðið? Ágúst kannast við að hafa heyrt slíkar raddir og kímir við. „En slíkar raddir heyrðust nú líka þegar spólvörnin og stöðugleikastýringin kom til sögunnar. Þá sögðu þeir sem þóttust óbrigðulir ökumenn að þeir vildu ekki sjá að bíllinn tæki sjálfur viðbragð við aðstæðunum. Í dag vill enginn nýjan bíl sem ekki er búinn þessum kostum, og Volvo er ein- ungis að hjálpa fólki í aðstæðum þegar það hefur ekki lengur tök á réttum viðbrögðum í tæka tíð. Þetta er leið Volvo til að fækka árekstr- um,“ bætir hann við. „Það eru til tölulegar upplýsingar um árang- urinn svo hann fer ekki milli mála. Við reyndum á þeim grundvelli að fá tryggingafélögin í lið með okkur þegar XC60 bíllinn kom fyrst í sölu, með sama hætti og gert hefur verið erlendis en þar hafa tryggingafélög boðið lægri iðgjöld á grundvelli hins aukna öryggis sem bíllinn skapar. En þau voru ekki tilbúin í slíkt og vildu fá reynslu af bílnum hér heima.“ Næstu skref í þágu öryggisins Ágúst nefnir að endingu að meðal næstu skrefa hjá Volvo sé svokallað SARTRE verkefni (Safe Road Tra- ins for the Environment) þar sem nokkrir bílar tala hreinlega saman og láta þá vita innbyrðis ef eitthvað virðist bjáta á í einum þeirra, svo hinir geti þá tekið mið af aðstæðum og brugðist rétt við. „Með þessari tækni geta bílar hreinlega bæst við í bílalest með fyrirfram skilgreindri ökuleið og þá verður bíllinn einfald- lega sjálfvirkur. Ökumaðurinn hreinlega kíkir í blöðin á meðan leið- in er ekin.“ Lýsingin hljómar að sönnu eins og kafli tekinn úr vís- indaskáldsögu! „Þessi tækni er til nú þegar en mun taka einhvern tíma í innleiðingu,“ segir Ágúst Hall- varðsson hjá Brimborg. jonagnar@mbl.is Öruggasti bíll í heimi? Sænski bílaframleiðandinn Volvo hefur um ára- tugaskeið verið í fararbroddi hvað öryggi farþega varðar. Nú ganga framleiðendur Volvo skrefinu lengra með öryggisráðstöfunum – meðal annars fyrir gangandi vegfarendur. Morgunblaðið/RAX Öryggi „Vonandi kemur svo aldrei til þess að fólk verði vart við neitt af þessu, því það þýðir jú að engin hætta hafi steðjað að. En það er óneitanlega betra að vita af þessum búnaði ef á skyldi þurfa að halda.“ Ágúst Hallvarðsson sölustjóri hjá Brimborg. Tækni Ýmis hátæknibúnaður gerir Volvo V40 öruggari en gengur og gerist. Sjálfvirkni Bíllinn bregst við þegar ökumaðurinn nær ekki að gera það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.