Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ Þ inn hagur í bílavarahlutum. Það er okkur kjörorð,“ segir Loftur Guðni Matthíasson verslunarstjóri hjá AB- varahlutum. Fyrirtækið var stofnað árið 1996 og hafa stjórnendur þess, að eigin sögn, ávallt leitast við að bjóða upp á gæðavottaðar vörur og varahluti í bíla á viðráðanlegu verði. Mikið er lagt upp úr faglegri þjónustu og starfsmenn fyrirtækisins eru reyndir á sínu sviði og allir miklir bíladellumenn. Jón S. Pálsson, forstjóri og eigandi AB-varahluta, setti starfsemina á laggirnar fyrir sextán árum. Fyr- irtækið var upphaflega á Bíldshöfða en í desember á sl. ári var starfsemin flutt á Funahöfða 9. Einnig er fyr- irtækið með starfsemi í Reykjanesbæ og á Akureyri. Þurfum stærra húsnæði „Ég hef lifað og hrærst í bílageir- anum í áratugi. Byrjaði hjá Toyota árið 1972 en árið 1996 stofnaði ég AB- varahluti. Fljótt þróaðist starfsemin út í innflutning á varahlutum en fyrir tveimur árum varð ljóst að koma þyrfti starfseminni í rúmbetra hús- næði og gengu fyrirætlanir um það eftir á síðasta ári. Allt þetta gerist sakir þess að við höfum í tímans rás átt góða og trausta viðskiptavinir og við erum þeim þakklátir,“ sagði Jón. Verlunarstjórinn Loftur Guðni segir mikilvægt að úrvalið í versl- uninni sé fjölbreytt, svo mæta megi þörfum og óskum viðskiptavina. „Okkar aðalsmerki er að eiga hlut- ina til á lager. Í þeim tilfellum sem svo er ekki þá tekur aðeins fáeina daga að útvega þá enda eru allir okk- ar birgjar í Evrópu. Eðlilega er mest spurt um þá varahluti sem talist geta slitfletir; eins og bremsur, kúplingar, hjólabúnaður, fjöðrun og fleira slíkt,“ segir Loftur. Lækkuðum álagningu Bílarnir hafa breyst og verða sífellt tæknivæddari. Viðgerðir eru því ekki eins á færi fjöldans og var. „Breyting- arnar á síðustu árum eru afar miklar, bílar eru flóknari en var og flest í vél- búnaði þeirra er tölvutengt í dag,“ sagði Loftur. Þrátt fyrir hræringar í efnahagslíf- inu á síðustu árum hefur stjórn- endum AB-varahluta tekist að halda varahlutaverði niðri. „Þetta byrjaði á árunum 2008 og 2009 þegar gengi krónunnar gagnvart erlendum gjald- miðlum hafði hrunið um 30-40% á skömmum tíma. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði þetta verið sett út í verðlagið. Við völdum hins vegar að lækka álagningu jafnframt því sem erlendir birgjar léttu undir,“ segir Jón og heldur áfram: Hefur létt undir „Svona tókst að halda verði því sem næst óbreyttu. Þetta hefur svo sann- arlega létt undir með fólki sem ekki hefur haft tök á endurnýjun bíla sinna eftir hrunið. Í ríkari mæli en áð- ur er gert við bílana og virðing fólks fyrir verðmætum er tvímælalaust meiri en áður.“ sbs@mbl.is Varahlutir séu á viðráðanlegu verði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílamenn Loftur Guðni Matthíasson og Jón S. Pálsson standa vaktina hjá AB-varahlutum ásamt fleiri þaulvönum bíladellu- körlum sem kunna skil á flestum um bíla. Fólk vill líka afdráttarlaust slíka þjónustu. Í ríkari mæli en áður er gert við bílana og virðing fólks fyrir verðmætum er tví- mælalaust meiri en áður. Eiga hlutina á lager. Vottaðir AB-varahlutir koma frá birgjum í Evrópu. Lækkuðu álagningu. Virðing fyrir verðmætum er meiri en var. Bíladellukarlar afgreiða. Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Vökvakerfislausnir Kia seldi fleiri bíla í Bandaríkjunum í september en nokkru sinni fyrr, eða 48.105 bíla. Það er í frásögur færandi, að þetta var 25. mánuðurinn í röð sem Kia bætir sölumet sitt þar í landi. Mest seldist af Kia Optima, rúmlega 14 þús. eintök, Sorento rúmlega 10 þús. Og Kia Soul 9 þús. Salan í ár er 18,4% meiri en í fyrra. Kia vex hraðast allra bíla- framleiðenda í sölu í Bandaríkjunum. Met 25. mánuðinn í röð Morgunblaðið/Ómar KIA Cee’d selst vel á öllum mörkuðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.