Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ Í slenskir neytendur eru mjög áhugasamir um umhverfisvæna bíla. Brynjar Elefsen Ósk- arsson er vörustjóri hjá Heklu og segir hann græna og spar- neytna bíla skipa æ stærri hluta af heildarsölu bílaumboðsins. Þróunin er hröð, verðsamanburðurinn hag- stæður og ekki von á öðru en að grænu bílarnir muni halda áfram að sækja á. „Við áætlum að árið 2016 verði um 50% af þeim bílum sem við seljum grænir bílar, þ.e. eitthvað annað en hefðbundnir bensín- og dísilbílar,“ segir Brynjar. Hekla selur bíla frá Volkswagen, Audi, Mitsubishi og Skoda. Fram- leiðendurnir hafa lagt áherslu á ólík afbrigði grænna bíla og hafa við- skiptavinirnir úr mörgum mögu- leikum að velja: Kuldi, hæðir og mótvindur „Síðastliðin ár hefur Mitsubishi lagt ofuráherslu á þróun rafmagnsbíla. Þróunarvinnan hefur m.a. borið ávöxt í bílnum i-MiEV, fjögurra sæta smábíl sem gengur fyrir raf- magni eingöngu. Það sem af er árinu höfum við selt sjö i-MiEV bíla, bæði til einstaklinga, fyrirtækja og stofn- ana,“ segir Brynjar. Rafmagnsbíllinn kostar 3.890 þús. og er sambærilegur í stærð við VW Polo. Til samanburðar kostar bens- ín-útgafan af Polo um 2,8 milljónir. „Reiknað hefur verið út að á u.þ.b. 4-5 árum greiði eldsneytissparn- aðurinn upp þennan mun. Ef miðað er við 15.000 km akstur á ári er ekki fjarri lagi að eldsneytið á bensínbíl kosti um 200.000 kr. Þá bætist við að reikna má með ódýrara viðhaldi á rafmagnsbílnum því vél og drifbún- aður eru gerð úr færri einingum.“ Árið 2010 voru gerðar ítarlegar prófanir á i-MiEV hér á landi. Segir Brynjar að prófanirnar hafi leitt örfáa vankanta í ljós sem Mitsubishi brást við með því að gera ýmsar betrumbætur. „Það kom t.d. í ljós að þegar vindmótstaða var mikil, ekið um nokkuð hæðótt borgarandslag, og bíllinn notaður í miklum kulda var drægi einnar hleðslu ekki 160 km eins og reiknað hafði verið með, heldur á bilinu 70-80 km. Þetta var hægt að laga að stórum hluta með því að tengja miðstöðina við fjarstýr- ingu. Þannig er hægt að hita bílinn áður en lagt er af stað, á meðan hann er enn í sambandi, og spara með því móti mikið af hleðslunni.“ Má koma rafhlöðunni í verð? Í umræðunni um rafmagnsbila hafa skotið upp kollinum áhyggjuraddir um endingu rafhlöðunnar. Þeir sem nota fartölvur kannast við að raf- hlöður hafa sína endingu og kosta líka sitt. „Ætla má að um helmingur af verði bílsins sé vegna rafhlöð- unnar,“ segir Brynjar en bætir við að reikna megi með að rafhlaðan endist jafnlengi og bíllinn. „Á raf- hlöðu i-MiEV er 5 ára ábyrgð og gera prófanir ráð fyrir því að eftir 8- 10 ára notkun haldi rafhlaðan um 80% af fullri hleðslu. Reikna má með að í framtíðinni verið svo hægt að selja notaðar rafbíla-rafhlöður, kannski fyrir 30% af upphaflegu verði, en menn hafa séð not fyrir slíkar rafhlöður til að jafna álagið á rafmagnskerfið þar sem þörf er á.“ Volkswagen hefur einbeitt sér að metanvélum og segir Brynjar met- anbíla mjög vinsæla hérlendis. „Við höfum selt yfir 200 metanbíla frá ársbyrjun 2010 og er ekkert lát á,“ segir hann. Áhuginn ætti ekki að koma á óvart enda sameinar met- anbíllinn góða drægni og lítinn elds- neytiskostnað. „Það kostar um 40% minna að aka á metanbil en á bens- ínbíl, og um 25% minna en að nota dísil.“ Vantar fleiri stöðvar Það sem helst stendur metanbílnum fyrir þrifum er að eldsneytið fæst ekki víða. „Enn sem komið er eru bara tvær metanstöðvar á höf- uðborgarsvæðinu en áætlanir eru uppi um að fjölga afgreiðslu- stöðvum. Sumir hafa áhyggjur af að metanframleiðslunni á Álfsnesi séu takmörk sett, en framleiðslan þar á að geta dugað fyrir 3.500 bíla. Sjálf- ur tel ég ósennilegt að metanskortur verði vandamál og veit m.a. að verið er að athuga möguleika á frekari metanvinnslu. Ef sala á metanbílum tæki mikinn kipp væri markaðurinn fljótur að bregðast við, því það á alls ekki að taka langan tíma að byggja og gangsetja metanverksmiðju.“ ai@mbl.is Metanbílarnir rjúka út Rafmagnsbíllinn i-MiEV fór í gegnum ítarlegar prófanir við íslenskar aðstæður. Eldsneyt- iskostnaður við met- anbíla allt að 40% lægri en sambærilegra bens- ínbíla. Rafmagnsbíll get- ur borgað sig á 4-5 ár- um. Morgunblaðið/Golli Grænir Hjá Heklu er gert ráð fyrir að 2016 - eftir fjögur ár - verði bílar knúnir öðru en jarðefnaeldsneyti, helmingur af sölu, að sögn Brynjars Elefsen Óskarssonar. Ef það er freistandi að kaupa grænan og sparneytinn bíl í dag þá verður freistingin ennþá meiri á næstu árum. Brynjar segir von á miklu úrvali alls kyns umhverfisvænna bíla næstu 2-3 árin og ættu allir að geta fundið bíl sem smellpassar að þeirra þörfum. „Við eigum von á sex nýjum metanbílum á næsta ári, þar á með- al Skoda Octavia og VW Golf auk ýmissa tvinn-bíla sem eiga vafalítið eftir að henta vel aðstæðum á Íslandi, þ.á m. Mitsubishi Outlander.“ Að aka um á grænum bíl er eitthvað sem fólk er enga stund að venjast, að sögn Brynjars. „Það kemst mjög fljótt upp í vana að stinga rafmagnsbílnum í samband þegar heim er komið og ég veit t.d. ekki til þess að nokkur hafi lent í því að stranda á tóm- um rafmagnsbíl í borginni. Að fylla á metantank er ögn öðruvísi en að nota bensíndæluna en handtökin eru ekki flókin og lærast fljótt. Ég var sjálfur orðinn fullfær í þessu þegar ég dældi á met- anbíl í annað sinn.“ Aksturseiginleikarnir eru líka þeir sömu, og jafnvel betri ef eitt- hvað er. „Að aka bíl með metanvél er alveg eins og að aka með bensínvél, nema metanvélin er hljóðlátari. Rafmagnsbilar geta svo verið mjög skemmtilegir í akstri enda viðbragðsfljótir.“ Grænir bílar hrúgast inn á næsta ári Spennandi tímar framundan Þeir sem vilja áfram halda sig við bensínið eða dísilvélar hafa líka úr grænum kostum að velja. Brynjar nefnir t.d. Bluemotion- bílana frá Volkswagen. Þar er ofuráhersla lögð á hagkvæma eldsneytisnotkun og að minnka mengun í útblæstri. Bluemotion- vélin drepur t.d. sjálfkrafa á sér þegar bíll- inn er stöðvaður í stutta stund, til að draga úr eldsneytisnotkun í kyrrstöðu. Notuð eru dekk með minna viðnámi og meira að segja breytingar gerðar á gír- skiptingunni til að ná fram enn meiri hag- kvæmni í akstri. Tæknin virkar greinilega því Bluemo- tion-bíll frá Volswagen sló árið 2010 Guin- nes-heimsmet í sparakstri þegar hann komst tæplega 2.500 km á einum 77,25 lítra tanki. „Þrátt fyrir kosti metans og rafmagns munu bensín- og dísilbílar áfram vera hentugasti valkosturinn fyrir marga.“ Bensínvélin tekur framförum Bensínið nýtt til hins ýtrasta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.