Morgunblaðið - 05.10.2012, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Í
slenskir neytendur eru mjög
áhugasamir um umhverfisvæna
bíla. Brynjar Elefsen Ósk-
arsson er vörustjóri hjá Heklu
og segir hann græna og spar-
neytna bíla skipa æ stærri hluta af
heildarsölu bílaumboðsins. Þróunin
er hröð, verðsamanburðurinn hag-
stæður og ekki von á öðru en að
grænu bílarnir muni halda áfram að
sækja á.
„Við áætlum að árið 2016 verði um
50% af þeim bílum sem við seljum
grænir bílar, þ.e. eitthvað annað en
hefðbundnir bensín- og dísilbílar,“
segir Brynjar.
Hekla selur bíla frá Volkswagen,
Audi, Mitsubishi og Skoda. Fram-
leiðendurnir hafa lagt áherslu á ólík
afbrigði grænna bíla og hafa við-
skiptavinirnir úr mörgum mögu-
leikum að velja:
Kuldi, hæðir og mótvindur
„Síðastliðin ár hefur Mitsubishi lagt
ofuráherslu á þróun rafmagnsbíla.
Þróunarvinnan hefur m.a. borið
ávöxt í bílnum i-MiEV, fjögurra
sæta smábíl sem gengur fyrir raf-
magni eingöngu. Það sem af er árinu
höfum við selt sjö i-MiEV bíla, bæði
til einstaklinga, fyrirtækja og stofn-
ana,“ segir Brynjar.
Rafmagnsbíllinn kostar 3.890 þús.
og er sambærilegur í stærð við VW
Polo. Til samanburðar kostar bens-
ín-útgafan af Polo um 2,8 milljónir.
„Reiknað hefur verið út að á u.þ.b.
4-5 árum greiði eldsneytissparn-
aðurinn upp þennan mun. Ef miðað
er við 15.000 km akstur á ári er ekki
fjarri lagi að eldsneytið á bensínbíl
kosti um 200.000 kr. Þá bætist við að
reikna má með ódýrara viðhaldi á
rafmagnsbílnum því vél og drifbún-
aður eru gerð úr færri einingum.“
Árið 2010 voru gerðar ítarlegar
prófanir á i-MiEV hér á landi. Segir
Brynjar að prófanirnar hafi leitt
örfáa vankanta í ljós sem Mitsubishi
brást við með því að gera ýmsar
betrumbætur. „Það kom t.d. í ljós að
þegar vindmótstaða var mikil, ekið
um nokkuð hæðótt borgarandslag,
og bíllinn notaður í miklum kulda
var drægi einnar hleðslu ekki 160
km eins og reiknað hafði verið með,
heldur á bilinu 70-80 km. Þetta var
hægt að laga að stórum hluta með
því að tengja miðstöðina við fjarstýr-
ingu. Þannig er hægt að hita bílinn
áður en lagt er af stað, á meðan hann
er enn í sambandi, og spara með því
móti mikið af hleðslunni.“
Má koma rafhlöðunni í verð?
Í umræðunni um rafmagnsbila hafa
skotið upp kollinum áhyggjuraddir
um endingu rafhlöðunnar. Þeir sem
nota fartölvur kannast við að raf-
hlöður hafa sína endingu og kosta
líka sitt. „Ætla má að um helmingur
af verði bílsins sé vegna rafhlöð-
unnar,“ segir Brynjar en bætir við
að reikna megi með að rafhlaðan
endist jafnlengi og bíllinn. „Á raf-
hlöðu i-MiEV er 5 ára ábyrgð og
gera prófanir ráð fyrir því að eftir 8-
10 ára notkun haldi rafhlaðan um
80% af fullri hleðslu. Reikna má með
að í framtíðinni verið svo hægt að
selja notaðar rafbíla-rafhlöður,
kannski fyrir 30% af upphaflegu
verði, en menn hafa séð not fyrir
slíkar rafhlöður til að jafna álagið á
rafmagnskerfið þar sem þörf er á.“
Volkswagen hefur einbeitt sér að
metanvélum og segir Brynjar met-
anbíla mjög vinsæla hérlendis. „Við
höfum selt yfir 200 metanbíla frá
ársbyrjun 2010 og er ekkert lát á,“
segir hann. Áhuginn ætti ekki að
koma á óvart enda sameinar met-
anbíllinn góða drægni og lítinn elds-
neytiskostnað. „Það kostar um 40%
minna að aka á metanbil en á bens-
ínbíl, og um 25% minna en að nota
dísil.“
Vantar fleiri stöðvar
Það sem helst stendur metanbílnum
fyrir þrifum er að eldsneytið fæst
ekki víða. „Enn sem komið er eru
bara tvær metanstöðvar á höf-
uðborgarsvæðinu en áætlanir eru
uppi um að fjölga afgreiðslu-
stöðvum. Sumir hafa áhyggjur af að
metanframleiðslunni á Álfsnesi séu
takmörk sett, en framleiðslan þar á
að geta dugað fyrir 3.500 bíla. Sjálf-
ur tel ég ósennilegt að metanskortur
verði vandamál og veit m.a. að verið
er að athuga möguleika á frekari
metanvinnslu. Ef sala á metanbílum
tæki mikinn kipp væri markaðurinn
fljótur að bregðast við, því það á alls
ekki að taka langan tíma að byggja
og gangsetja metanverksmiðju.“
ai@mbl.is
Metanbílarnir rjúka út
Rafmagnsbíllinn i-MiEV
fór í gegnum ítarlegar
prófanir við íslenskar
aðstæður. Eldsneyt-
iskostnaður við met-
anbíla allt að 40% lægri
en sambærilegra bens-
ínbíla. Rafmagnsbíll get-
ur borgað sig á 4-5 ár-
um.
Morgunblaðið/Golli
Grænir Hjá Heklu er gert ráð fyrir að 2016 - eftir fjögur ár - verði bílar knúnir öðru en jarðefnaeldsneyti, helmingur af sölu, að sögn Brynjars Elefsen Óskarssonar.
Ef það er freistandi að kaupa grænan og sparneytinn bíl í dag þá
verður freistingin ennþá meiri á næstu árum. Brynjar segir von á
miklu úrvali alls kyns umhverfisvænna bíla næstu 2-3 árin og
ættu allir að geta fundið bíl sem smellpassar að þeirra þörfum.
„Við eigum von á sex nýjum metanbílum á næsta ári, þar á með-
al Skoda Octavia og VW Golf auk ýmissa tvinn-bíla sem eiga
vafalítið eftir að henta vel aðstæðum á Íslandi, þ.á m. Mitsubishi
Outlander.“
Að aka um á grænum bíl er eitthvað sem fólk er enga stund
að venjast, að sögn Brynjars. „Það kemst mjög fljótt upp í vana
að stinga rafmagnsbílnum í samband þegar heim er komið og ég
veit t.d. ekki til þess að nokkur hafi lent í því að stranda á tóm-
um rafmagnsbíl í borginni. Að fylla á metantank er ögn öðruvísi
en að nota bensíndæluna en handtökin eru ekki flókin og lærast
fljótt. Ég var sjálfur orðinn fullfær í þessu þegar ég dældi á met-
anbíl í annað sinn.“
Aksturseiginleikarnir eru líka þeir sömu, og jafnvel betri ef eitt-
hvað er. „Að aka bíl með metanvél er alveg eins og að aka með
bensínvél, nema metanvélin er hljóðlátari. Rafmagnsbilar geta svo
verið mjög skemmtilegir í akstri enda viðbragðsfljótir.“
Grænir bílar hrúgast inn á næsta ári
Spennandi
tímar framundan
Þeir sem vilja áfram halda sig við bensínið
eða dísilvélar hafa líka úr grænum kostum
að velja. Brynjar nefnir t.d. Bluemotion-
bílana frá Volkswagen. Þar er ofuráhersla
lögð á hagkvæma eldsneytisnotkun og að
minnka mengun í útblæstri. Bluemotion-
vélin drepur t.d. sjálfkrafa á sér þegar bíll-
inn er stöðvaður í stutta stund, til að
draga úr eldsneytisnotkun í kyrrstöðu.
Notuð eru dekk með minna viðnámi og
meira að segja breytingar gerðar á gír-
skiptingunni til að ná fram enn meiri hag-
kvæmni í akstri.
Tæknin virkar greinilega því Bluemo-
tion-bíll frá Volswagen sló árið 2010 Guin-
nes-heimsmet í sparakstri þegar hann
komst tæplega 2.500 km á einum 77,25
lítra tanki. „Þrátt fyrir kosti metans og
rafmagns munu bensín- og dísilbílar áfram
vera hentugasti valkosturinn fyrir marga.“
Bensínvélin tekur framförum
Bensínið nýtt til
hins ýtrasta