Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 20
á hagstæ›u ver›i.
armarekkar
Sölumaður Þetta er fallegur bíll, segir Kjartan Baldursson hjá Öskju.
N
ýr Kia Carens var frum-
sýndur í Evrópu á bíla-
sýningunni í París en
hann er væntanlegur til
Íslands um mitt næsta
ár, að sögn Kjartans Baldurssonar
sölumanns hjá bílaumboðinu Öskju.
Bíllinn bætist í hóp snoturra og að-
laðandi afurða kóreska bílasmiðs-
ins.
Upphaf þriðju kynslóðar
„Þetta er skemmtileg viðbót við
Kia-fjölskylduna og mun fást bæði
fimm og sjö manna. Hann verður í
boði með sparneytinni 1700 rúm-
sentimetra dísilvél, þeirri sömu og
er í Kia Optima,“ segir Kjartan.
Bíllinn markar upphaf þriðju
kynslóðar Carens og er töluvert
breyttur í útliti og aðeins stærri en
sá fyrri, bæði lengri og örlítið
breiðari. Hjólahafið er meira og
stórar felgur og krómuð yfirbygg-
ing gerir hann líflegri. Undirvagn-
inn er meira og minna sá sami og á
nýjum Cee’d. Nýi Carens er
spengilegri og fellur betur inn í
Kia-línuna en forverinn, enda mun
ætlun kóreska framleiðandans að
sækja stíft fram á honum í flokki
stærri fjölskyldubíla.
Sá nýi lofar góðu
Á Íslandi hefur Kia notið mikilla
vinsælda. Framleiðsla þessara bíla
á sér í sögulegum samanburði ekki
langa sögu en eigi að síður er stað-
an býsna góð. Þannig hafa alls 611
nýir bílar verið skráðir nýir hér á
landi á árinu og nálgast það 10%
markaðshlutdeild. Af öðrum teg-
undum eru aðeins Toyota og
Volksvagen með sterkari stöðu.
Nýr Carens er svipaður útlits og
Kia-línan er og hönnunin er snotur.
„Þetta verður fallegri bíll er ég
sannfærður um en sá gamli, enda
hefði hann sosum engin fegurð-
arverðlaun hlotið. En sá nýi lofar
góðu,“ segir Kjartan
„Hann hefur gengið alveg ágæt-
lega á Íslandi. Fyrirrennarinn var
mest að flytja hann inn 2006 til
2008. Bíllinn gekk bæði vel í ein-
staklinga og svo voru leigubíl-
stjórar að taka hann líka. Það var
auka sætaröð aftur í sem laðaði þá
að honum. Það var gott að um-
gangast þennan bíl, menn settust
hátt inn í hann. Ég geri ráð fyrir
að nýja kynslóðin höfði einnig til
leigubílstjóra og svo stærri fjöl-
skyldna,“ segir Kjartan.
Á þessu stigi liggur ekkert verð
fyrir á Carens-bílnum en Kjartan
sagðist hafa það á tilfinningunni að
skjóta mætti á að það yrði á bilinu
5,5 til sex milljónir - og í sam-
anburði við aðra bíla er slíkt býsna
sanngjarnt.
agas@mbl.is
Margt í gerjun hjá
Carens. Í ætt við
Optima. Hjólahafið er
meira og stórar felgur
og krómuð yfirbygging
gera bílinn líflegri en
fyrirrennarann.
Glæsilegur Króm í yfirbyggingu og stærri hjól gera stórbreyttan Kia Carens líflegri en áður. Bíllinn kemur á Íslandsmarkað á næsta ári ef fer fram sem horfir.
Skemmtileg viðbót við fjölskylduna
Það var gott að umgangast þennan bíl, menn settust
hátt inn í hann. Ég geri ráð fyrir að nýja kynslóðin höfði
einnig til leigubílstjóra og svo stærri fjölskyldna
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Borgarstjórinn í París hefur krafist þess
af ríkisstjórninni að leyfilegur hámarks-
hraði á hringveginum um frönsku höf-
uðborgina verði minnkaður í 70 km/klst.
Í stjórnartíð Nicolas Sarkozy forseta
var ítrekuðum beiðnum af þessu tagi
hafnað, en borgarstjórinn og núverandi
forsætisráðherra eru flokksbræður og
því meiri líkur á að mál þetta nái fram að
ganga nú.
Núverandi hámarkshraði er 80 km og
var minnkaður úr 90 km árið 1993. Til-
gangurinn er að draga úr ryk- og hljóð-
mengun í nágrenni hringvegarins um
París. Einnig er því haldið fram að um-
ferðarflæðið verði jafnara með minni
hraða, en andstæðingar ráðstafananna
segja þær muni valda enn frekari um-
ferðartöfum í borginni en við hefur verið
að glíma á annatímum. agas@mbl.is
AFP
Frakkland Eiffelturninn er tákn Par-
ísar. Mikil umferð er jafnan við turninn.
Frakkar hægi ferðina
Volkswagen hyggur á sömu mið og
keppinautarnir og mun að líkindum
framleiða mjög ódýran bíl innan
tveggja ára til að selja í þróunarríkjum.
Frá þessu skýrir þýska viðskiptablaðið
Handelsblatt. Þar er haft eftir stjórn-
arformanninum Bernd Osterloh að í
smíðishóp VW vanti bíl sem kosta muni
á bilinu 5-10 þúsund evrur, 800 til
1.600 þúsund krónur, til að selja á vax-
andi mörkuðum í Asíu, Afríku, Evrópu
austanverðri og Suður-Ameríku.
„Við þurfum ekki að finna upp hjólið í
þessu sambandi,“ segir Osterloh og
vísar til þess að nota megi í fábrotinn
bílinn íhluti sem þegar eru notaðir í 12
bílamerkjum Volkswagen-samsteyp-
unnar.
Blaðið vitnar til þess að nú þegar
bjóði suðurkóreski bílsmiðurinn Hy-
undai ódýra útgáfu af Eon fyrir sem
svarar 4.000 evrur í Indlandi og Dacia,
dótturfélag frönsku samsteypunnar
Renault-Nissan, sé vel á veg komið með
smíði ódýrra bíla með Logan-bílnum
sem kosti innan við 7.000 evrur, eða 1,1
milljón kr.
agas@mbl.is
VW boðar ódýran bíl