Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 36
Eftirminnilegustu James Bond bílarnir 36 | MORGUNBLAÐIÐ V art er til meira spennandi vettvangur fyrir bíla en í myndunum um James Bond, því hlutverk þeirra þar er vanalega stórt. Þeir eru settir í það dásam- lega hlutverk að vera verkfæri færasta spæjara kvikmyndasög- unnar sem notar þá til að koma sér úr ótrúlegustu vandræðum. Ekki eru til mikið stærri tækifæri bílaframleiðenda til að sveipa bíla sína dýrðarljóma og eilífðarfrægð, sem þeir sannarlega hafa gert. Bílar breskra framleiðenda hafa eðlilega verið mjög áberandi í myndunum, en þýskir bílar hafa einnig haft nokkurt hlutverk og þá helst frá BMW sem fluttu njósn- arann milli staða í þremur af fjór- um Bondmyndum leikarans Pierce Brosnan. Blaðamaður Daily News í Bret- landi setti niður á blað lista þeirra 10 bíla úr James Bond myndunum sem hann vildi helst eiga og er listi hans birtur hér. Sá sem endaði í 10. sætinu var ekki beinlínis bíll heldur feneyskur gondóll sem breyttist í hraðbát og síðan í loftpúðafarartæki sem ferðast gat á landi. Báturinn sást í myndinni Moonraker frá 1979. Í 9. sæti er goðsagnakenndur bíll, Lo- tus Esprit Turbo úr myndinni For Your Eyes Only frá 1981. Á hon- um voru skíðafestingar og var hann mest notaður í atriðum í austurrísku ölpunum. Áttunda sætið fyllir Aston Martin DBS sem bæði sást í myndunum Casino Royale frá 2006 og Quantum of Solace. Í báðum myndunum er ansi illa farið með bílinn og hann mikið skemmdur af Daniel Craig sem fór þá með hlutverk Bond. Í því sjöunda er BMW Z3 blæjubíll sem ekið var af Pierce Brosnan í Goldeneye árið 1995. Þessi smái BMW var ekki mjög áberandi í myndinni, hann sást að- eins tvisvar sinnum. Sjötta sætið vermir annar BMW af Z8 gerð og hann er einnig blæjubíll og frekar smávaxinn. Honum var ekið af Pierce Brosnan í myndinni The World Is Not Enough árið 1999. Loks kemur aftur Aston Martin bíll í 5. sætinu og það af V8 Van- tage-gerð, en hann var fyrsti bíll- inn sem Timothy Dalton ók í hlut- verki James Bond. Þetta var í myndinni The Living Daylights frá 1987. Bíllinn sást bæði sem blæju- bíll og með harðan topp. Stað- reyndin var reyndar sú að um tvo ólíka bíla var að ræða. Þriðji BMW bíllinn vermir svo 4. sætið og það einn af stærri gerðinni, BMW 750iL sem Pierce Brosnan stjórnaði svo eftirminnilega með símanum sínum í bílastæðahúsi í myndinni Tomorrow Never Dies frá 1997. Einn Aston Martin bíllinn enn er í 3. sætinu, sem telst kannski ekki svo skrítið því þeir hafa verið einkar áberandi í myndum James Bond og vel við hæfi að njósnarinn breski aki ekta breskum öflugum lúxusbílum. Þessi bíll er af DB5- Sean Connery og kagginn voru eins og bræður. BMW Z3 Roadster er að sönnu snaggaralegur en km lítt við sögu í Goldeneye. Það er ekki úr vegi að rifja upp nokkra af athyglisverðum bílum sem spæjari hennar hátignar, James Bond hefur notað á 50 ára ferli sínum nú þegar allar James Bond myndirnar eru sýndar á Skjá einum. Eftir þriggja mynda akstur á BMW fékk Pierce Brosnan eina mynd á Aston Martin — Íslandsævintýrið Die Another Day, sem seint telst til betri Bondmynda. Sígildur Aston Martin DB5 sást fyrst í Gold- finger og svo mætti aftur til leiks í með- förum Daniel Craig í Casino Royale.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.