Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ Bílskúrshurðir fyrir íslenskar aðstæður Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is Héðinshurðir eru glæsilegar og endingar- góðar bílskúrshurðir sem hafa sannað sig í rysjóttu íslensku veðurfari. Gerðar úr galvanhúðuðu stáli með þykkri einang- run, þola mikið vindálag og kulda. Fyrsta flokks viðhalds- og varahlutaþjónusta. Ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu fylgja. Í dag föstudag bætist nýtt fyrirtæki við slaginn á dekkjamarkaðinum. Dekkja- húsið er til húsa þar sem Toyota var áður í Auð- brekku 17, Kópavogi, Dalbrekk- umegin. Einir Logi Eiðsson segir fyr- irtækið ætla að kynna til sög- unnar ýmsar spennandi nýj- ungar. „Við erum að fá dekkin frá stórum birgjum í Evrópu og í gegnum þá getum við útvegað dekk frá miklum fjölda framleið- enda. Við þurfum ekki að af- marka okkur við eitt eða tvö merki heldur getum boðið upp á bæði dekk sem íslenskir neyt- endur þekkja sem og gæðadekk frá framleiðendum sem ekki hafa verið áberandi hér á landi til þessa.“ Fundu gat Einir er hæstánægður með hús- næðið sem Dekkjahúsið hefur komið sér fyrir í. „Aðstaðan er alveg frábær, mjög gott aðgengi að húsinu og stórt og mikið plan sem rúmar fjölda bíla ef því er að skipta.“ Hann segir hæglega pláss fyrir fleiri seljendur á dekkjamarkaði. „Okkur sem að fyrirtækinu stöndum þótti vera ákveðið gat á markaðinum fyrir verslun af þessu tagi. Við reikn- um líka með því að markaðurinn verði sterkur á næstu misserum.“ Að sögn Einis verður Dekkja- húsið með hagstætt verð, þó að hann vilji ekki ganga svo langt að tala um verðstríð. „Við leitum leiða til að hagræða í innkaupum og geymslukostnaði og gerum það t.d. með því að bjóða við- skiptavinum upp á að sérpanta dekk frá Evrópu með 2-3 vikna biðtíma,“ útskýrir hann. „Meðal þeirra merkja sem við ætlum að kynna fyrir íslenska markaðinum eru Novax og Blackstone, bæði framleidd í Asíu undir ströngu gæðaeftirliti. Á meginlandi Evr- ópu eiga þessi merki nokkuð sterkan markað.“ Gæðin leynast víða Einir bendir á að merkið sé ekki allt þegar kemur að bíldekkjum. „Auðvitað eru ákveðin vörumerki ávísun á gæði, en það má heldur ekki gleyma að merkið kostar. Það er líka hægt að finna mjög vönduð en ódýr dekk með því að leita til annarra framleiðenda en þeirra allra stærstu og allra þekktustu. Hjólbarðarnir eru einhver mik- ilvægasti hluti bílsins. Einir minnir á mikilvægi þess að bæði fylgjast vel með ástandi dekkjana og aka ekki um á dekkjum sem eru mikið slitin. „Dekkið er ör- yggisbúnaður og hefur ekki nema ákveðna endingu. Algengt er að dekkin dugi í 20.000-25.000 km og fer endingartíminn m.a. eftir gæðum dekkjanna og aksturs- máta ökumannsins.“ agas@mbl.is Kynna til leiks ný merki á íslenska markaðinum Dekkjahúsið er stór og ný dekkjaverslun sem verður opnuð í gamla Toyota-húsinu. Bjóða upp á sérpantanir og hagræða í innkaupum. Morgunblaðið/Golli Úrval Einir segir oft góð kaup í minna þekktum merkjum. „Auðvitað eru ákveðin vörumerki ávísun á gæði, en það má ekki gleyma að merkið kostar. Það er líka hægt að finna mjög vönduð en ódýr dekk með því að leita til annarra framleiðenda.“ Sumar stærðir dekkja eru dýrari en aðrar og getur munað miklu fyrir rekstrar- og viðhalds- kostnað bílsins hvort þarf að kaupa á hann t.d. umgang af þunnum sportdekkjum eða um- gang af venjulegum dekkjum í al- gengri stærð. „Þetta er eitthvað sem bílaeigendur eru farnir að líta til í auknum mæli,“ segir Ein- ir. Hann segir gott sparnaðarráð að nota heilsársdekk frekar en skipta tvisvar á ári milli vetrar- og sumardekkja. „Undanfarið hefur verið mildara vetrarveður á höfuðborgarsvæðinu. Nagladekk- in geta komið sér vel ef reglu- lega þarf að aka út fyrir bæinn en flestir eiga að geta komist ferða sinna greitt og örugglega innanbæjar á dekkjum með grófu heilsársmynstri.“ Munar um hvern umgang Má spara með heils- ársdekkjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.