Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ | 35 Meira í leiðinniWWW.DEKK.IS HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1: Fellsmúli 440 1322 | Ægisíða 440 1320 | Bíldshöfði 440 1318 Réttarháls 440 1326 | Dalbraut Akranesi 440 1394 Langatangi Mosfellsbæ 440 1378 | Reykjavíkurvegur Hafnarfirði 440 1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440 1372 Tryggvabraut Akureyri 440 1438 RÉTTA DEKKIÐ BREYTIR ÖLLU MICHELIN GÆÐAVOTTUN HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI N1 ERU ÞAU FYRSTU Á ÍSLANDI TIL AÐ HLJÓTA GÆÐAVOTTUN MICHELIN Hjólbarðaverkstæði N1 hafa hlotið vottun samkvæmt gæðakerfi Michelin, en þá vottun fá eingöngu þau hjólbarðaverkstæði sem uppfylla ströngustu gæðakröfur Michelin. Vottunin tryggir að sölustaður uppfyllir ströngustu gæðakröfur sem Michelin gerir um meðhöndlun, þjónustu og samskipti við sölu og meðferð á vöru sinni. Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Boddýhlutir A ð taka rafmagnsbíl í flotann er tilraun af okkar hálfu. Við rennum blint í sjóinn með þetta. Ég geri mér væntingar um að við verðum kannski komnir með 10-20 bíla eftir tvö til þrjú ár, en sú tala er nánast skot út í loftið,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar. Fyr- irtækið fékk á dögunum í flota sinn rafmagnsbíl af gerðinni Mit- subishi i-Miev. Þetta er lítill nett- ur bíll sem fer í útleigu innan tíð- ar. Þar er miðað við innanbæjarleigu, til dæmis frá flugvöllunum á Akureyri og Reykjavík þar sem fólk á ferðinni getur gripið í bíl fyrir bæj- arsnattið Miða við 100 km Af hálfu framleiðanda Mitsubishi, er drægni i-Miev sögð allt að 150 km en hjá Heklu, umboðsfyrirtæki Mitsubishi á Íslandi og Bílaleigu Akureyrar vilja menn þó hafa vað- ið fyrir neðan sig. Miðað við fyrst um sinn að drægni hverrar hleðslu sé 80-100 km. „Í innanbæjarumferð er fólk kannski að aka 50 til 70 km á dag og þá dugar næturhleðslan. Svo þegar komið er í áfangastað er bílinn settur í samband og raf- hlaðinn yfir nóttina. Nei, við sjáum ekki fyrir okkur að þessir bílar henti t.d. fyrir erlenda ferða- menn sem fara um landið. Í fyrsta lagið er farangursrými bílsins of lítið og drægni bílsins of stutt,“ segir Steingrímur og heldur áfram: „Jú, og svo gætu þessir bílar verið góður kostur í fyrirtækja- þjónustu okkar. Við leigjum fjölda fyrirtækja smábíla sem notaðir eru til ýmissa skemmri ferða starfsfólks. Uppsetning á hleðslu- staurum fyrir slíka bíla við vinnu- staði ætti að vera auðleyst mál,“ segir Steingrímur sem segir kaup á rafbílnum í samræmi við þá um- hverfisstefnu sem mótuð hefur verið hjá Bílaleigu Akureyrar. Einir umhverfisvottaðir Yfir sumartímann er fyrirtækið með um það bil 2.500 bíla í útgerð og metnaður er fyrir því að í heild sé starfsemin umhverfisvæn enda fyrirtækið eina bílaleiga landsins með ISO 14001-umhverfisvottun. „Sömuleiðis eru talsverðir hags- munir undir. Tækni við rafbíla fleygir hratt fram og rekstr- arkostnaður þeirra er umtalsvert minni en annarra bíla. Rafmagn sem dugar til 100 km aksturs á Mitsubishi i-Miev kostar ekki nema um 170 krónur. Í slíku felst mikill sparnaður borið saman við hefðbundna orkugjafa,“ segir Steingrímur. Til Hollywood Í samtali við bæjarblaðið Vikudag á Akureyri segir Steingrímur starfsemi Hölds-Bílaleigu Ak- ureyrar ganga vel. Líðandi ár sé með þeim betri í sögu fyrirtæk- isins og veitti ekki af eftir hrunið. Ferðamannatímabilið hafi verið lengra en áður og tjón á bílum í lágmarki. Það skipti miklu fyrir afkomuna. Þá má geta þess að töluvert hefur borið á Hollywood- stjörnum á landinu. Þannig var Tom Cruise norður í landi í sumar vegna gerðar myndarinnar Obli- vion sem aftur skilaði Höldi verk- efnum sem munaði um. sbs@mbl.is Höldur reynir rafmagnsbíl Akureyringar velja Mitzubishi i-Miev. Drægnin er 100 km. Hentar vel í bæjarumferðina. Sparneytinn og grænn. Fyrirtækið er með 2.500 bíla í útgerð. Ljósm/Vikudagur Straumur Steingrímur Birgisson og hans menn hjá Bílaleigu Akureyrar eru komn- ir með rafmagnsbíl. Tilraun segir framkvæmdastjórinn. Rafmagn sem dugar til 100 km aksturs á Mitsubishi i- Miev kostar ekki nema um 170 krónur. Í slíku felst mikill sparnaður borið saman við hefðbundna orkugjafa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.