Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ T ekið er af skarið með hækk- un bílprófsaldurs í frum- varpi til breytinga á um- ferðarlögum sem nú liggur fyrir Alþingi. Í áratugi hefur sú regla gilt að hver sá sem ökupróf stenst fái réttindin sautján ára. Nái frumvarp innanríkisráðherra hins vegar fram að ganga miðast bíl- prófið í fyllingu tímans við átján ár. Skrefin í þá átt verða tekin í áföng- um. Á næsta ári verður fyr- irkomulagið óbreytt. Árið 2014 fær fólk prófið sautján ára og þriggja mánaða, árið 2015 er bílprófið í höfn þegar ökumaður er sautján og hálfs árs. Þrír mánuðir bætast svo við 2015 og sami tími árið 2016. Átján ára markinu verður náð árið 2017. Mikil forræðishyggja Hugsanleg hækkun bílprófsaldurs hefur verið til umræðu í áraraðir. Sjónarmiðin í málinu eru mörg. Margir hafa nefnt að eðlilegt sé að bílprófs- og lögræðisaldur haldist í hendur. Einnig hefur verið nefnt að ungmenni séu að öðru jöfnu með meiri og betri þroska átján en sautján ára. Að því leytinu til sé þetta einskonar forvarnamál. Önnur sjónarmið hafa þó heyrst. Þegar samgöngunefnd Alþingis, sem þá hét svo, óskaði á sl. ári eftir umsögnum var leitað til sveit- arstjórna úti um land. Hreppsnefnd Hrunamannahrepps lét þá í sér heyra. Í umsögn, sem þá barst úr uppsveitum Árnessýslu, voru gerð- ar „alvarlegar athugasemdir við breytingar,“ eins og það var orðað. Hækkun bílprófsaldurs í átján ár fæli í sér óþægindi fyrir heimilin sem ekki væri á bætandi. Kostn- aður sveitaheimila ykist en „en þau treysta á að heimilisfólk geti hjálp- ast að við verkin og auðveldað al- mennt atvinnuþátttöku. Bent er á að eldra fyrirkomulag hafi ekki verið til vandræða og um sé að ræða vísi að mikilli forræð- ishyggju“, sagði hreppsnefnd Hrunamanna. Nýjar aðferðir skilað árangri Ökunám í dag er 25 bóklegir tímar og sautján verklegir, að lágmarki. „Nýjar aðferðir í ökukennslu sem við höfum innleitt á undanförnum árum hafa skilað góðum árangri. Kennslan er markvissari en áður. Nú er inntakið að búa nemendur fyrir langan og farsælan ökuferil, en ekki bara að komast í gegnum prófið. Þetta er að minni hyggju stór þáttur í því að slys þar sem ungir ökumenn eiga í hlut eru færri en var. Tölur Umferðarstofu stað- festa þetta. Í hópi yngstu öku- manna hefur slysum þar sem þeir eiga í hlut raunar fækkað um nærri helmingi á fáum árum,“ segir Guð- brandur Bogason, formaður Öku- kennarafélags Íslands. Að tilstuðlan ökukennara og fleiri hefur bóklegur þáttur öku- náms verið efldur, meðal annars með svonefndum Ökuskóla 3. Þar fá ökunemar þjálfun á sérstökum akstursbrautum, eins og komið hef- ur verið upp t.d. á Kirkjusandi í Reykjavík. Er kennslubílunum þá komið fyrir á sérstökum vögnum en með þeim má framkalla mismun- andi akursskilyrði, til dæmis eins og ekið sé í hálku. Einnig er farið í gegnum ýmis atriði er snúa að slysavörnum. „Með þessu er markmið okkar að nemendur öðlist skilning á umferð- inni og hvernig hún virkar í raun. Hvernig ökumenn þurfa alltaf að taka tillit hver til annars og vera vel vakandi úti á vegum,“ segir Guðbrandur. Góður millivegur „Í sjálfu sér geri ég ekki neinar at- hugasemdir við að bílprófsaldurinn verði hækkaður. Auðvitað orkar tvímælis að ungmenni sem ekki eru orðin sjálfráða hafi réttindi á afl- mikinn bíl og geti farið hvert sem þeim sýnist,“ segir Guðbrandur og bætir við að tillagan um að bílprófið miðist við átján árin sannarlega ekki frá ökukennurum komin. Hins vegar séu ákvæði í frumvarpi inn- anríkisráðherra, um að hækkun prófaldurs verði tekin í þriggja mánaða skrefum á fjórum árum, til- laga þeirra. Ökukennara skipti sannarlega máli að missa ekki út heilan árgang nemenda einu bretti – og í fyrirliggjandi frumvarpi sé farinn góður millivegur að settu marki; það er ökuréttindi fáist þeg- ar fólk verður átján ára. sbs@mbl.is Átján árin í þriggja mánaða skrefum Bílprófsaldurinn verður hækkaður. Í umræðu í ára- raðir. Meiri og betri þroski. Sveitafólk er óánægt. Breytt fyrirkomulag ökukennslu þykir skila árangri. Morgunblaðið/Golli Bílstjóri Nýjar aðferðir í ökukennslu hafa skilað góðum árangri, segir Guðbrandur Bogason formaður Ökukennarafélags Ís- lands. Hann segir sína menn geta að skilyrðum settum sætt sig við hærri bílprófsaldur. „Ábyrgð og skyldur eiga jafnan að haldast í hendur. Í því ljósi meðal ann- ars tel ég skyn- samlegt að bíl- prófið og sjálfræðisaldur haldist í hendur; það er átján ára,“ segir Oddur Árna- son, yfirlög- regluþjónn á Selfossi. Að öðru jöfnu segist hann þó telja að áfram eigi að veita ungmennum sextán ára gömlum, réttindi til æfingaaksturs undir leið- sögn foreldra eða forráðamanna, rétt eins og verið hefur síðustu árin. „Æfingaakstur hefur sannarlega sannað gildi sitt. Eftir nokkra tíma und- ir leiðsögn ökukennara leggja krakk- arnir af stað með góðri leiðsögn fjöl- skyldunnar. Slík samvera hefur í mörgu tilliti mikið uppeldisgildi, ekki bara hvað varðar ökunám. Reynsla lögreglu- manna er líka sú að eftir að æf- ingaakstur komst á komi krakkarnir betur þjálfaðir en áður út í umferðina. Tölur um fækkun slysa þar sem ungt fólk á í hlut staðfesta þetta.“ Æfingaakstur er uppeldismál Oddur Árnason „Já, ég gæti vel séð fyrir mér að samþætta mætti hinn bóklega hluta ökukennslunnar og almennt fram- haldsskólanám. Slíkt er gert er- lendis, til dæmis í Bandaríkjunum og hefur gefið góða raun,“ segir Sig- urborg Matthíasdóttir konrektor Menntaskólans í Hamrahlíð. „Leyfi til æfingaaksturs ætti áfram að miðast við sextán ára aldur. Mér líst hins vegar vel á að bílprófið fengist ári síðar en nú er; miðaðist við átján árin og héldist þannig í hendur við sjálfræðisaldur. Slíku myndi margt fylgja. Sé fyrir mér, öðrum þræði í gamni sagt, að ögn rýmra yrði á bílastæðunum hér við skólann. Mikill fjöldi nemenda kemur á bíl. Þó virðist mér að þeim hafi vissu- lega fækkað eftir hrun. Krakkarnir hafa úr minni peningum að spila, viðhorfin í samfélaginu eru breytt og sífellt fleiri eru á reiðhjóli.“ Samþættist framhaldsskólanum Sigurborg Matthíasdóttir „Best held ég að færi á því að halda sig áfram við sautján árin. Hér úti á landi þar sem vegalengdir eru miklar fylgir því óhagræði ef for- eldrar þurfa að keyra krakkana árinu lengur en nú er. Ef þessi breyt- ing á umferðarlögum, eins og hún er kynnt í frumvarpi, verður að veruleika eru krakkar háðir foreldrum sínum um öll ferðalög lengur en ástæða er til,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði. Besta nálgunin í þessu máli væri sú, að mati Hjalta Þórs, að leggja meiri áherslu en nú er á æfingaakstur. „Æf- ing og reynsla skiptir öllu. Nú má eng- inn hreyfa dráttarvél nema vera orðinn sextán ára. Eins og ég þekki til voru krakkar hér áður byrjaðir að vinna á traktorum vel innan við fermingu, fengu þannig góða þjálfun og voru ágætlega þjálfaðir ökumenn sautján ára. Með öðrum orðum sagt finnst mér vel koma til greina að rýmka reglurnar og hugsa málið út frá annari hlið en lagt er til í áðurnefndu frumvarpi.“ Skoðum rýmkun reglnanna Hjalti Þór Vignisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.