Morgunblaðið - 05.10.2012, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Ástandsskoðun
arctictrucks.is
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
fyrir jeppa og fólksbíla
Ertu að kaupa eða selja notaðan bíl?
Eða viltu bara vera viss um að bíllinn þinn sé í
fullkomnu lagi?
ArcticTrucks býður:
- fullkomna skoðunarstöð fyrir jeppa og fólksbíla
- skoðanir framkvæmdar af fagfólki
- nákvæm skoðunarskýrsla fylgir öllum skoðunum
Verð:
- Fólksbílar og jepplingar kr. 9.700,-
- Jeppar kr. 10.500,-
- Breyttir jeppar (38” og yfir) kr. 11.500,-
Nánari upplýsingar á www.arctictrucks.is
Tímapantanir í síma 540 4900 Bíldshöfði 10
Sími 587 8888
HONDA ACCORD EXECUTIVE
Árgerð 2010. Ekinn 33 þ.km. 2/2010.
Ekkert áhvílandi. BENSÍN.
SJÁLFSKIPTUR.
4 sumardekk 4 vetrardekk.
Verð kr. 4.400.000.
V
ið tökum á móti öllum far-
artækjum frá vespum og
upp í jeppa á 46 tomma
dekkjum,“ segir Vil-
hjálmur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Splass. „Mér telst til
að við séum aukinheldur þeir einu
sem geta tekið á móti svo stórum bíl-
um,“ bætir hann við. „Þá erum við
ennfremur eina stöðin sem tekur við
bílum með tengdamömmuboxi á þak-
inu. Þannig að við getum þrifið nokk-
urn veginn alla fólksbíla og jeppa
sem hingað koma.“
Tökum minnst hálftíma í bílinn
Aðspurður hve langan tíma það taki
að þrífa hefðbundinn fólksbíl svarar
Vilhjálmur því til að stysti mögulegi
tíminn sé líkast til um þrjátíu mín-
útur. Lengst getur afgreiðslutíminn
svo farið í um eina klukkustund. Fer
þá lengd tímans eftir því hversu skít-
ugur bíllinn er þegar komið er með
hann. Bílarnir fara fyrst gegnum
færiband þar sem þeir eru þvegnir að
utan, sem tekur um tíu mínútur, og
svo í bílastæði þar sem þeir eru
þvegnir hátt og lágt að innan.“ Vil-
hjálmur bætir því við að það gengi
seint að ætla að bóka á fasta tíma í
tiltekna lengd: „það væri varla hægt
þar sem Íslendingar eiga oft og tíð-
um bágt með að mæta á réttum
tíma,“ bætir hann við og hlær. „En
svo er bara misjafnt hversu óhreinir
bílarnir eru. Þó að einn taki um hálf-
tíma er ógerningur að leggja út frá
því að allir taki sama tíma. Sumir
þurfa einfaldlega 45 mínútur til að
verða nógu fínir til að við sendum þá
frá okkur. Staðlaður afgreiðslutími
gengur því ekki.“
Beðið eftir bílnum í Smáralind
Á meðan Vilhjálmur og félagar fara
fimum höndum um bílinn má bíða á
biðstofu, fá sér kaffi og kíkja í nýj-
ustu blöðin. „Við erum með frítt wi-fi
í öllu húsinu svo það er leikur einn að
kíkja á netið, svara nokkrum tölvu-
póstum eða stússast annað í tölvunni
meðan beðið er, og skiptir þá engu
hvort þú ert á biðstofunni eða dokar
við í bílnum meðan hann er þrifinn,“
útskýrir Vilhjálmur. „Þegar við erum
með bílinn í inniþrifum er mjög vin-
sælt hjá fólki að bregða sér nokkur
skref yfir í Smáralindina og kíkja í
búðir. Við sendum svo SMS-skilaboð
þegar bíllinn er tilbúinn og fólk kem-
ur svo þegar því hentar og vitjar bíls-
ins þar sem hann bíður hreinn og
strokinn. Viðskiptavinirnir hafa verið
mjög ánægðir með þessa þjónustu,
og þá ekki síður þeir hjá Smáralind,“
segir Vilhjálmur og hlær við.
Þá bætir Vilhjálmur því við að sé
rigningarlegt um að litast utandyra
geti viðskiptavinir fengið lánaða
regnhlíf fyrir labbið yfir í Smáralind.
Farið gegnum ferilinn
„Við byrjum á að tjöruhreinsa bílinn
með tjöruhreinsi frá Mjöll Frigg,“
segir Vilhjálmur þegar forvitnast er
um ferilinn sem bíllinn fer gegnum
þegar hann er tekinn í gegn. „Því-
næst er hann háþrýstiþveginn, og
svo mæta strákarnir með svampana
til að sápa bílinn. Hjá okkur fara eng-
ir burstar um bílana þegar strákarnir
fara yfir hann,“ bætir Vilhjálmur við.
Þegar hann er inntur eftir því hvort
engin stelpa sé í hópnum segir hann
svo ekki vera. „Það hefur engin
stelpa sótt um hjá okkur ennþá.“
Dömur, er þetta ekki eitthvað til
að kanna við tækifæri?
„Við setjum þá felgusýru á allar
felgur til að gera þær hreinar, og það
er innifalið í verðinu á meðan aðrir
rukka sérstaklega fyrir þá þjónustu.
Svo er sett Sonax-bón á bílinn og í
framhaldi af því fer blásari yfir hann.
Að endingu er bíllinn svo handþurrk-
aður hátt og lágt, líka í hurðafölsum
og skottlokinu.“
Skolað með eimuðu vatni
Þegar bíllinn er skolaður fyrir þurrk-
un hjá Splass er það gert með eimuðu
vatni. Blaðamaður stenst ekki að
spyrja hvers vegna það sé gert.
„Vatnið er eimað svo engin steinefni
séu í því, en það auðveldar alla þurrk-
un til muna,“ útskýrir Vilhjálmur.
„Sem dæmi um muninn þá voru
menn hér áður alltaf með sköfur þeg-
ar gluggar á háhýsum voru þrifnir að
utan. Núorðið nota menn bara eimað
vatn.“
Þegar bíllinn er svo þveginn að
innan er hann ryksugaður, gluggar
þrifnir að innan og strokið yfir mæla-
borð og sæti. Fyrir innan- og ut-
anþvott eins og hér var lýst borgar
viðskiptavinurinn 4.990 kr. fyrir
fólksbíl og 5.990 kr. fyrir jepplinga og
stærri bíla. „Vilji fólk fá bílinn bón-
aðan í framhaldinu kostar það svo
2.500 fyrir fólksbíla og 3.500 fyrir
jeppa. Allan heila pakkann kapp-
kostum við svo að afgreiða á ekki
meira en einni klukkustund.“
Og klukkustund er jú skotfljót að
líða meðan maður spókar sig í
Smáralindinni.
jonagnar@mbl.is
Engin venjuleg bílaþvottastöð!
Bílaþvottastöðin Splass
var opnuð rétt fyrir
páska í vor, við túnfót
Smáralindar í Haga-
smáranum. Þar á bæ
nota menn hendur
vopnaðar svömpum við
bílaþvottinn, ásamt því
að eimað vatn kemur
þar einnig við sögu.
Morgunblaðið/RAX
Vandvirkni Vilhjálmur og strákarnir taka sinn tíma við þvottinn og sjá til þess að hver og einn rúlli þaðan skínandi hreinn. „Við tökum á móti öllum farartækjum frá
vespum og upp í jeppa á 46 tomma dekkjum,“ segir Vilhjálmur Einarsson, framkvæmdastjóri bílaþvottastöðvarinnar Splass við Hagasmára.
Þrif Algengt er að viðskiptavinirnir bregði sér yfir í Smáralindina á meðan.
Mottur Gólfmotturnar fá sín þrif í þar-
tilgerðri vél eins og annað í bílnum.
Innandyra Hægt er að fá bílinn þrifinn og strokinn að innan sem utan.