Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21
Nám í Ökuskóla 3 getur bjargað mannslífum
Ökuskóli 3 í boði alla daga
Mikilvægur fyrir öruggan akstur
www.okuskoli3.is
sími 445-3000
Á
tján tóku þátt í Íslandsmeistarakeppn-
inni í Ökuleikni sem haldin var á dög-
unum. Keppt var í karla- og kvenna-
flokkum og varð niðurstaðan sú að
Íslandsmeistarar eru Ævar Sigmar
Hjartarson í karlariðli og Ragna Óskarsdóttir í
kvennariðli. Lítið bar þó á milli efstu manna í
riðlum og var Ævar, sem ók samtals á 379 sek-
úndum aðeins níu sekúndum á undan næsta
manni, Sighvati Jónssyni, sem ók á 388 sek-
úndum. Í kvennariðli var munurinn enn minni
en Ragna ók á 742 sekúndum, aðeins þremur
sekúndum á undan Íslandsmeistaranum frá
2011, Guðnýju Guðmundsdóttur sem ók á 745
sekúndum. Í hópi keppenda í dag voru nokkrir
fyrrverandi Íslandsmeistarar og var keppnin því
nokkuð spennandi.
Vekja til umhugsunar
Keppnin er haldin af Brautinni – bindindisfélagi
ökumanna en samstarfsaðili er Ökukenn-
arafélag Íslands sem lánaði aðstöðu til keppn-
ishaldsins á kennslusvæði sínu á Kirkjusandi. Þá
lánaði Hekla VW Golf bifreiðar til keppni, N1
gaf sigurvegurum eldsneytisinneign, Sjóvá gaf
verðlaun og svo mætti áfram telja.
„Tilgangur Ökuleikni er að vekja ökumenn til
umhugsunar um hve mikilvægt er að vanda sig
við akstur og að vandvirkni skiptir meira máli en
hraði,“ segir í fréttatilkynningu frá Brautinni.
Ævar og
Ragna
sigruðu
Átján í ökuleikni. Öruggir sig-
urvegarar. Litlu munaði á
keppendum. Vandvirkni um-
fram hraða.
Leikni Nákvæmnin ræður í keppninni og ekkert má bregðast. Vissulega er
kúnst að keyra niður kókflösku með jafn snyrtilegri aðferð og hér sést.
Ökumenn Þátttakan var með ágætum en í tímans rás hefur keppnin Ökuleikni notið vinsælda, enda alltaf gaman að spreyta sig á erfiðum viðfangsefnum.
Beygt Ökumenn þurftu að fara fetið
og smjúga milli allskonar hindrana
sem komið hafði verið fyrir.