Morgunblaðið - 05.10.2012, Síða 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Hemlahlutir
Ítalir brutu áratuga hefð í fyrra og
keyptu þá fleiri reiðhjól en bíla. Seld
voru 1,75 milljón reiðhjóla á Ítalíu árið
2011 eða tveimur þúsundum fleiri en
sem nam bílasölu ársins, að sögn
blaðsins La Repubblica.
Umskipti þessi eru afleiðing krepp-
unnar og hækkandi eldsneytisverðs,
að sögn blaðsins, ásamt því að það er
að komast aftur í tísku að fara ferða
sinna og reka erindi sín á reiðhjóli.
Bílasala á Ítalíu hefur hrunið og nem-
ur nú svipuðum eintakafjölda og til
dæmis 1964, fyrir tæplega hálfri öld
síðan.
Hjólahefðin er rík
Þó rík hjólahefð sé á Ítalíu drottna
bílar og skellinöðrur í miðju borga og
bæja. Í vikunni hvatti Giorgio Napolit-
ano forseti til þess að Ítalir tækju sig
á og drægju önnur Evrópuríki uppi í
að búa götur sínar og vegi betur und-
ir umferð reiðhjóla svo þau yrðu
hjólavænni.
agas@mbl.is
Ítalía Aftur í tísku meðal Ítala að fara á reiðhjóli og sú er raunar þróunin víða.
Ítalir kaupa reiðhjól í stað bíla
Óvenjulegur faraldur hefur gosið
upp í dreifbýli í Staffordskíri á
Englandi og varar lögreglan við
því að hann, sem aðrar pestir,
geti breiðst út til annarra
svæða. Sótt þessi lýsir sér í því
að þrjá daga í röð lögðust menn
undir bíla í Staffordskíri og los-
uðu pústgreinar og höfðu með
sér á brott. Fyrst og fremst eru
það hvarfakútar sem þjófarnir
eru á eftir því í sumum tilvikum
höfðu þeir sagað þá út úr púst-
greininni.
Eitt fórnarlambanna lýsir því í
blaðinu Post & Times hvernig
óprúttnir náungar hafi læðst
heim að húsi hennar og undir
Ford Ranger pallbíl hennar og
sagað hvarfakútinn lausan. Ný
pústgrein kostar hana 2.200
pund – rúmar 400 þúsund krón-
ur – en gangverð á hvarfakút
hjá seljendum notaðra varahluta
mun vera 300-400 pund.
agas@mbl.is
Stela púst-
greinum að
næturþeli
Þ
róun bíls sem nær yfir þús-
und mílna hraða, yfir 1600
km/klst, færðist nær veru-
leikanum eftir árangurs-
ríkar tilraunir með eldflaugina sem
knýja mun hann áfram. Bíllinn ber
hið óvenjulega heiti Blóðrakkinn.
Eldflaug á hjólum
Bíllinn líkist meira eldflaug á hjól-
um en nokkuð annað. Hann er
fjögurra metra langur, 45 senti-
metrar á breidd og vegur 450 kíló.
Stærra farartæki af þessu tagi hef-
ur ekki verið smíðað í Evrópu áð-
ur.
Í tilrauninni með flaugarmót-
orinn mældist knýrinn 14.000
punda eða sem samsvarar 30-40
þúsundum hestafla. Hávaðinn í út-
blásturstúðunni mældist 185 desi-
bel sem er margfaldur hávaði Bo-
eing 747 þotu í flugtaki.
Rýfur hljóðmúrinn
Verkfræðingar Blóðrakkaverkefn-
isins liggja nú yfir mæligögnum úr
tilrauninni til að halda áfram þró-
un farartækisins. Miðað er við að
aksturstilraunir verði hafnar á
Hakskeen eyðimerkursléttunni í
Suður-Afríku á næsta ári. Þar er
verið að leggja 500 metra breiða
og 20 kílómetra langa braut en við
verkið hefur þurft að hreinsa úr
henni 6.000 tonn af grjóti.
Mesti hraði sem náðst hefur á
landi er 1228 km/klst, en það tókst
breskum flughersforingja árið
1997. Í tilrauninni rauf hann hljóð-
múrinn og það mun Blóðrakkinn
gera líka því hann er hannaður til
að ná hljóðhraða og 40% betur.
agas@mbl.is
Blóðrakkinn sýnir tennurnar
Bíllinn líkist meira eld-
flaug á hjólum en
nokkru öðru. Nær 1.600
km hraða. Tilraunir
halda áfram.
Geimferja Þannig sér listamaður Blóðrakkann fyrir sér á ferð. Óhætt er að segja þetta er alveg ótrúlegt farartæki.