Morgunblaðið - 05.10.2012, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
54
51
2
Ergo vill aðstoða þig við að eignast farartæki
Áfram bjóðum við græn bílalán án lántökugjalda. Við bjóðum einnig
50% afslátt af lántökugjöldum á bílalánum og bílasamningum í október.
Reiknaðu með okkur á ergo.is.
Afsláttur af lántökugjöldum
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
M
eð þessu litla tæki er bíll-
inn heitur og notalegur
þegar þú ferð af stað út í
umferðina. Í flestum til-
fellum er nóg að hafa hitarann í
gangi í hálftíma áður en haldið er af
stað og þá ertu í góðum málum,“
segir framkvæmdastjóri Páll Leifs-
son, framkvæmdastjóri Bílasmiðsins
við Bíldshöfða í Reykjavík.
Bílasmiðurinn hefur sett á mark-
að Webasto-bílahitara sem valdir
hafa verið hinir bestu undanfarin ár
af lesendum virtra erlendra bíla-
blaða. Tækin hafa fengið fjölda við-
urkenninga fyrir gæði, áreiðanleika
og skilvirkni svo eitthvað sé nefnt.
Helstu bílaumboð hér á landi bjóða
Webasto-hitara sem keyptir eru hjá
Bílasmiðnum. Ísetning tækisins er
dagsverk en panta þarf tíma með
nokkurra daga fyrirvara.
Ending ætti að aukast
Hitararnir góðu verma bílinn að inn-
an og vélina um leið. Tækið er sjálf-
stætt og þarf ekki straum úr 230
volta tengli.
„Óháð vél bílsins tekur tækið, sem
fyrr segir, kælivatn vélarinnar og
dælir að miðstöð bílsins,“ segir Páll
„Og þegar vatnið er komið í um
fimmtíu gráður setur hún miðstöðv-
arblásara bílsins í gang og hitar
þannig bílinn upp að innan, um leið
hitnar vél bílsins. Niðurstaðan er
þægilegur hiti inni í bílnum, hrím-
lausar og móðufríar rúður. Auk þess
sem ending vélarinnar ætti að
aukast, eldsneytiseyðslan að minnka
og mengun að minnka.“
Forvörn gegn slysum
Páll getur þess að bílahitarann megi
setja í gang með forstilltri klukku,
fjarstýringu eða skilaboðum í síma.
„Forhituð bílvélin slitnar ekki eins
og þegar köld vél er ræst. Menn
telja að um 80% af sliti í vél sé vegna
kaldræsingar. Með forhitun þarf
bíllinn minna eldsneyti og framleiðir
ríflega 60% minna af skaðlegum loft-
tegundum. Hrím á rúðum og móða
að innan eru ekki bara hvimleiðir
fylgifiskar haust- og vetrarmánaða
heldur líka hættulegir. Flest um-
ferðarslys verða á fyrstu mínútum
ferðar. Orsökin er gjarnan slæmt
skyggni og hæg viðbrögð. Með for-
hituðum bíl ætti hins vegar að vera,
svo langt sem það nær, hægt að
tryggja útsýni úr bílnum sem skerp-
ir á viðbragðsflýti ökumannsins.
Þetta finnst mér góður kostur,“ seg-
ir Páll Leifsson að síðustu.
sbs@mbl.is
Ylur í bílinn með
einföldu tæki
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heitur Páll Leifsson með bílahitarann sem má setja í gang með til dæmis for-
stilltri klukku, fjarstýringu eða jafnvel skilaboðum í síma.
Bílahitarar bæta lífsgæði. Þægilegur hiti og
hrímlausar rúður. Eyðsla og mengun minnka.
Skyggnið er meira og slysahættan minni.
Breikkun þjóðvega er næsta mál á
dagskrá. Svo má ætla að verði ef
fylgt verður niðurstöðum könnunar
sem gerð var fyrir Vegagerðina. Um
helmingur vill breiðari vegi og 30%
vilja auka við bundið slitlag.
Svipaður fjöldi og áður telur þjóð-
vegi á Íslandi góða eða 43%. Nokkuð
fleiri en undanfarið telja kantstikur
fullnægjandi eða 54%. Ríflega þriðj-
ungur er hlutlaus í málinu. Sömu
sögu er að segja um yfirborðsmerk-
ingar, heldur fleiri en hitt telja þær
fullnægjandi eða 45%.
Vegagerðin hefur lagt sig eftir að
bæta merkingar við framkvæmdir,
að því er fram kemur í Fram-
kvæmdafréttum. Segir að því séu
vonbrigði að þeim fækki sem telja
merkingar fullnægjandi en þeim
hafði fjölgað frá 2010. Þá var átaks-
verkefni í merkingum hleypt af
stokkunum. Nú segja 57% merking-
ar í lagi en í síðustu könnun um 65%.
Flestir vilja breiðari vegi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Framkvæmt Víða um landsins breiðu
byggðir er unnið að vegagerð.
Nýskráningar bíla í Þýskalandi féllu
í september, eða um 10,4% miðað við
sama mánuð í fyrra. Þetta er þriðji
mánuðurinn í röð sem sala dregst
saman en það þykir til marks um að
skuldakreppan á evrusvæðinu sé að
bitna á kaupgetu Þjóðverja. Alls
250.082 nýir bílar voru skráðir í
september. Hafa þá um 2,4 milljónir
bíla verið nýskráðar á árinu, 43.000
færri en á sama tímabili í fyrra.
Dýrari sport- og lúxusbílar seld-
ust hlutfallslega betur en minni bílar
fyrstu níu mánuðina. Til september-
loka jókst t.a.m. sala á Porsche um
13,6% og sala á Audi um 8,4%. Til
samanburðar dróst sala Opel saman
um 13,2% miðað við sama tímabil í
fyrra og nýskráningar Ford voru
8,8% færri en í fyrra.
Hlutfallslega var ástandið skárra í
Þýskalandi en öðrum bílafram-
leiðsluríkjum Evrópu. Í nýliðnum
september dróst bílasala saman um
18% í Frakklandi, um 37% á Spáni
og 25,7% á Ítalíu. Skýringin á hruni
á Spáni er sögð skattahækkanir.
Fyrstu níu mánuðina er samdrátt-
urinn 14% í Frakklandi, 20,5% á
Ítalíu og 11% á Spáni.
Peugeot naut góðrar viðtöku hins
nýja 208-bíls sem hefur rokselst. Því
drógust nýskráningar aðeins saman
um 1% í september miðað við sama
mánuð í fyrra. agas@mbl.is
Varanleg niðursveifla í Þýskalandi
Skuldakreppan bítur.
Dýrari sport- og lúx-
usbílar seljast hlutfalls-
lega betur en minni bílar
Gæðabílar Audi A8 skáka minni og
ódýrari bílum á Þýskalandsmarkði.