Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 12
Úttekt 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012 1999 Fyrstu og einu tónleikarnir fyrsta árið hófust kl. níu að kvöldi og stóðu til eitt eftir miðnætti. Danska sveitin Zoe hóf tónleikana og sló þar með fyrstu tónana í sögu Airwaves. Bandaríska sveitin Soul Coughing tók svo við og Akureyringarnir í Toy Machine stigu næstir á svið. Svo kom íslenska rappsveitin Quarashi, þá Thievery Corporation frá Bandaríkjunum, Ensími og Gus Gus sló botninn í tónleikana. Hópur erlendra boðs- gesta frá fjölmiðlum og útgáfufyrir- tækjum fylgdist með tónleikunum í flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli auk óbreyttra áhorfenda. 2000 Hátíðin stækkaði mikið strax á öðru ári enda voru haldnir stórtónleikar í Laugardalshöll- inni, þar sem breska rokkhljómsveitin Suede lék stærstu rulluna ásamt Flaming Lips frá Banda- ríkjunum. Hápunktur hátíðarinnar að margra mati voru þó tónleikar Sigur Rósar í Fríkirkjunni. Þetta voru fyrstu tónleikar sveitarinnar á Íslandi í langan tíma því hún hafði verið upptekin við að spila með Radiohead um víðan völl. Frétt um Fríkirkjutónleika Sigur Rósar rataði á forsíðu bandaríska stórblaðsins NewYorkTimes og heimsfrægðin var rétt handan við hornið. 2009 Bandaríska útvarpsstöðin KEXP FM 90,9 frá Seattle í Bandaríkjunum sendir út frá Iceland Airwaves í fyrsta skipti. KEXP er stærsta háskólaútvarpsstöðin á norðvestur- strönd Bandaríkjanna og ein af stærstu vefútvarpsstöðvum Norður-Ameríku. Hápunktarnir tveir þetta árið, að mati Arnars EggertsThoroddsen blaðamanns Morgunblaðsins, voru danska sveitin Choir ofYoung Believers og Hjaltalín. Danirnir „verða áberandi í tónlistarblöðum næstu misseri – ef eitthvert réttlæti er eftir í heiminum. Þvílíkt band!“ sagði hann. „Það er hreinsandi að fylgjast með söngvara og gítarleikara sem svo augljóslega gefur allt sitt í tónlistina og reglulega tók sveitin undir sig Sigur Rósar-flug. Tónleikar Hjaltalín í Fríkirkjunni ásamt kammersveit voru þá ekkert minna en guðdómlegir – og eiga ábyggilega eftir að reynast sögulegir þegar frá líður.“ 2010 Yfir eitt þúsund listamenn koma fram og tónleikar eru hátt í 300. Erlendir gestir taldir hafa eytt 313 milljónum króna meðan á dvöl þeirra hér stóð. Þá eru ekki talin með útgjöld vegna flugs til landsins. „Það er eitthvað alveg stórmerkilegt við stemninguna á Airwaves. Hún er mjög frábrugðin hinu hefðbundna bæjarlífi um helgar. Airwaves er ekki þetta hefð- bundna djamm. Á Airwaves kemur fólk á öllum aldri saman, fær sér bjór og hlýðir á tónlist. Það er, á einhvern furðulegan hátt, mjög fallegt. Einhver kærleiksandi svífur yfir vötnunum,“ skrifar Jónas Margeir Ingólfsson blaðamaður Morgunblaðsins. 2011Harpa í fyrsta skipti vettvangur tónleika á Airwaves. Björk Guðmundsdóttir frumflutti þar tónlist af nýjustu plötu sinni, Bio- philia, í Silfurbergi. John Grant og fleiri tróðu upp í Norðurljósasal Hörpu. Tónleikar Sinead O’Connor í Fríkirkjunni gerðu líka stormandi lukku. Yoko Ono og sonur hennar, Sean Lennon, komu fram með ýmis verkefni í Hörpu, þ. á m. Yoko Ono Plastic Ono Band. „Hátíðin Iceland Airwaves fer vaxandi með hverju árinu. Fimm kvöld í röð gefst kostur á að fara á stúfana og sjá og heyra það sem er í deiglunni í tónlist um þessar mundir. Kostur hátíðarinnar er úrvalið af listamönnum, gallinn auðvitað – ef galla skyldi kalla – að útilokað er að komast yfir allt,“ skrifaði Karl Blöndal aðstoðarritstjóri Morgunblaðs- ins í pistli að hátíð lokinni. „Það er undir hælinn lagt hverjir komast í gegnum nálaraugað og öðlast hina eftirsóttu, en viðsjálu heimsfrægð. Kvöldrölt á Airwaves sýndi hins vegar að nægur er efniviðurinn, hvað sem úr verður,“ sagði Karl ennfremur. 2012 Hljómsveitirnar Dirty Projectors og Sigur Rós hápunkt- arnir að mati Davids Frickes, hins kunna blaðamanns tímaritsins Rolling Stone. Hann segir, í grein á vefsíðu tímaritsins, margar ástæður fyrir því að hann haldi áfram að koma á Airwaves. „Menningin og mikilfengleiki náttúrunnar, gæði og dýpt tónlistarinnar … það er sífellt hægt að koma manni á óvart. Ég býst við því sama að ári, og sú verður raunin,“ segir hann. Atburðum utan dagskrár – „off venue“ – hefur fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum. Nú eru þeir alls um 460. Athygli vekur að í ár kaupa útlendingar í fyrsta skipti fleiri miða á Iceland Airwaves en heimamenn. „Íslendingar eru rólegur þjóðflokkur þegar kemur að miðasölu sem þessari,“ segir Grímur Atlason framkvæmdastjóri Iceland Airwaves. Quarashi Sigur Rós Páll Óskar Lára Rúnars Mugison Sigur Rós Íslenskir og erlendir gestir á Iceland Airwaves Íslenskir gestir Erlendir gestir (Tölur eru námundaðar) 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 1.000 144 2.500 1.200 2.900 700 3.500 1.500 3.000 1.500 3.000 1.500 3.500 1.500 3.800 1.200 4.200 1.300 4.300 700 4.300 1.200 3.800 2.000 3.900 2.100 3.500 3.700 Ævintýrið hófst með fjögurra klukkustunda tónleikum í flugskýli 4 áReykjavíkurflugvelli laugardagskvöldið 16. október árið 1999. Umvar að ræða samstarf Flugleiða, Flugfélags Íslands og EMI- útgáfurisans og hugmyndin var að koma á framfæri hæfileikaríkum og efni- legum íslenskum hljómsveitum, auk þess að kveikja áhuga ungs fólks um all- an heim á Íslandi. Óhætt er að segja að hvort tveggja hafi tekist. Uppselt hefur verið á tónlistarhátíðina síðustu sjö árin og gestir í síðustu viku voru 7200. Þeir hafa aldrei verið fleiri. HÁTÍÐ SEM HÆKKAR SÍFELLT FLUGIÐ Á íslenskum öldum ljósvakans í 14 ár ENGAN ÓRAÐI FYRIR ÞVÍ AÐ SÁ LITLI NEISTI, SEM TENDRAÐUR VAR Í OKTÓBER 1999, YRÐI AÐ ÞVÍ BÁLI SEM ICELAND AIRWAVES ER ORÐIÐ. Texti: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Grafík: Elín Esther Magnúsdóttir ee@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.