Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Qupperneq 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Qupperneq 46
Viðtal 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012 L iðið fær allt að því óskipta at- hygli landsmanna þegar mest liggur við og Aron verður því með þjóðina nánast á herðunum í starfinu sem framundan er. Morgunblaðið settist niður með Aroni og ræddi við hann um þá ákvörðun að taka að sér að stýra „Strákunum okkar“ eins og þeir eru kallaðir á tyllidögum. Aron stendur á fertugu og er á meðal ís- lenskra íþróttaáhugamanna þekktastur fyrir að vera í Haukum, fyrst sem öflugur leik- maður og síðar einkar sigursæll þjálfari. Aron er þó ekki innmúraður Hafnfirðingur eins og margur kann að halda, heldur kem- ur hann úr körfuboltabænum Stykkishólmi og á fjölda skyldmenna á Snæfellsnesi. „Ég fæddist í Reykjavík en bjó þá í Stykkishólmi og gerði til ellefu ára aldurs. Þá fluttist ég ásamt foreldrum mínum í Hafnarfjörðinn. Ég á ennþá nokkra vini í Hólminum og einhverjir þar muna eftir mér. Þar ólst ég upp í frjálsum, fótboltanum og körfuboltanum. Fram að ellefu ára aldri man ég einu sinni eftir því að hafa spilað handbolta í leikfimi,“ segir Aron og brosir að tilhugsuninni. Myndin sem fólk kann að hafa dregið upp af honum tekur einnig á sig aðra mynd þegar í ljós kemur að Aron spil- aði fótbolta með FH í yngri flokkum. Aron gekk í Flensborgarskóla og kom einnig við í Fjölbraut í Garðabæ. Að stúd- entsprófinu loknu aflaði hann sér kenn- aramenntunar. Hann tók eitt ár hér heima í Kennaraháskólanum en kláraði í fjarnámi frá Danmörku þegar hann lék þar með Skjern á Jótlandi. Síðar tók hann hæsta al- þjóðlega stigið sem hægt er að taka sem handboltaþjálfari: Master coach. Giftist systur herbergisfélagans Eiginkona Arons, Hulda Bjarnadóttir frá Selfossi, er einnig kennari. Þau eiga ým- islegt sameiginlegt því hún var einnig í handbolta og spilaði um tíma með Haukum. „Við kynntumst fyrst á þjóðhátíð,“ segir Ar- on og hlær. „Síðar lágu leiðir þeirra saman í Haukum fyrir tæpum tuttugu árum. Bræður Huldu, Gústaf og Sigurjón, voru kunnir handboltamenn á tíunda áratugnum og í byrjun þessarar aldar. „Við byrjuðum saman þegar hún kom í Haukana árið 1995. Gústaf var góður vinur minn á þeim tíma. Við spiluðum saman í Haukunum og vorum herbergisfélagar í landsliðinu. Hann var mjög hissa þegar við bönkuðum upp á hjá honum á sínum tíma og tilkynntum honum um sambandið,“ segir Aron og glottir. Því má svo einnig bæta við að Sigurjón er í dag formaður handknatt- leiksdeildar Hauka þó hann hafi ekki spilað fyrir félagið á sínum ferli. Aron heldur því fram fullum fetum að í boðum hjá tengda- fjölskyldunni sé rætt um fleira en handbolta. Góðar minningar frá Danmörku Aron og Hulda eiga þrjá stráka, þá Darra 13 ára, Jakob 10 ára og Frey 4 ára. Þau hafa hreiðrað um sig í Hafnarfirði en Aron hefur ágætan samanburð af því að búa er- lendis. Þau voru í sjö ár í Danmörku og eitt ár í útjaðri Hannover í Þýskalandi. „Á Íslandi er gott að hafa fjölskylduna nálægt sér. Einnig er hugarfar Íslendinga mjög gott. Hér eru hlutirnir oft á tíðum ein- faldir og hægt að leysa málin fljótt. Á marg- an hátt var einnig mjög gott að búa í Dan- mörku enda mjög fjölskylduvænt. Við vorum lengst af í litlu bæjarfélagi, Skjern, og það er okkar annað heimili. Þaðan eigum við margar hlýjar og góðar minningar og eigum þar marga góða vini. Okkur líkaði lífið vel og Hulda kenndi þar. Í Skjern var þægilegt að vera með fjölskyldu og hraðinn er ein- hvern veginn minni en hérna heima. Í Þýskalandi vorum í eitt ár og það hentaði fjölskyldunni ekki nægilega vel. Það var mun erfiðari pakki.“ Aron fór svolítið óvenjulega leið inn í meistaraflokksþjálfun því hann hóf þann fer- il erlendis. Auk þess var hann einungis 32 ára og hafði skömmu áður nánast neyðst til þess að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Sjaldgæft er að svo ungum mönn- um sé treyst fyrir sterkum atvinnu- mannaliðum eins og Skjern var í tilfelli Ar- ons. „Læknar sögðu mér að það væru 50% lík- ur á því að ég gæti spilað aftur en myndi ekki geta æft jafn mikið. Þá stóð ég frammi fyrir þeim valkostum að eiga 50% möguleika á því að snúa aftur sem leikmaður eða taka að mér að þjálfa Skjern, eitt af toppliðunum í Danmörku,“ útskýrði Aron og hann ætlaði sér að verða þjálfari. Hann sagði það einnig hafa hjálpað til að tími hans sem leikmaður hjá Skjern var afar góður. Hann var í mikl- um metum hjá félaginu og þar var Anders Dahl-Nielsen, fyrrverandi þjálfari KR, í stjórnunarstöðu. „Ég byrjaði 18 ára að þjálfa yngri flokka og þann tíma sem ég spilaði hér heima þjálfaði ég bæði stráka og stelpur. Ég var því kominn með fína reynslu af yngri flokk- astarfi og starfi handboltaskóla. Sem leik- maður hjá Skjern var ég á miðjunni bæði í vörn og sókn. Danirnir voru ánægðir með mitt framlag og við áttum frábæran tíma. Við urðum strax danskir meistarar árið 1999 sem nýliðar í efstu deild og bikarmeistarar árið eftir. Þetta var svolítið öskubusku- ævintýri. Þegar ég meiddist þá var staðan orðin þannig í Skjern að Anders Dahl- Nielsen var orðinn íþróttastjóri og þjálf- ARON KRISTJÁNSSON TÓK Í SUMAR AÐ SÉR EITTHVERT MEST KREFJANDI STARF SEM FYRIRFINNST HÉRNA Á EYJUNNI. ARON MUN NÆSTU ÞRJÚ ÁRIN STÝRA KARLALANDSLIÐINU Í HANDKNATTLEIK EN VARLA ER Á NEINN HALLAÐ ÞÓ ÞAÐ SÉ KALLAÐ ÁSTSÆLASTA ÍÞRÓTTALIÐ LANDSINS. Kristján Jónsson kris@mbl.is „Vonaðist að sjálfsögðu eftir því að til mín yrði leitað aftur“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.