Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Page 19
*Stilltu heima-menn sér glað-lega upp fyrir fram- an myndavélarnar og vildu láta taka af sér myndir. Vildu síðan fá pening um leið og smellt var af. Ákafi fólksins var stundum óþægilega mikill. Sigríður áir og tyllir sér á tröppu. Gústaf glað- beittur meðal heimamanna. 11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Nýr heimshluti opnast ferða- mönnum INDÓKÍNA ER VINSÆLL ÁFANGASTAÐUR. GAMLIR HERMENN FRÁ BANDARÍKJUNUM FLYKKJAST NÚ TIL AÐ SKOÐA SINN GAMLA VÍG- VÖLL, ÞÓ MINNINGARNAR SÉU OFT SÁRAR Víetnam og Kambódía voru áfangastaðir hjónanna Sig-ríðar Kristjánsdóttur og Gústafs Jónassonar vorið2010. Bændaferðir stóðu að ferðinni til þessara landa sem nú eru vinsælir áfangastaðir. Fólk víða að úr veröldinni sækir til Indókína, en aðeins fá ár eru liðin síðan þessi heimshluti opnaðist ferðamönnum. Það eru ekki síst Banda- ríkjamenn sem fara til Víetnams. Þótt stríðsrekstur þeirra í landinu hafi verið langvarandi og árangurslítill eru margir t.d. úr liði fyrrverandi hermanna áfram um að komast aftur á þær slóðir hvar þeir börðust forðum. Á kanó í óshólmum Mekong-fljótsins. Þeir voru einn helsti vígvöllurinn í stríði Bandaríkja- manna og Víetnama í landinu, sem stóð frá því um 1965 og í um heilan áratug þar á eftir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hægt er að lýsa Víetnam sem langri mjórri ræmu sem liggur að sunn- anverðu Suður-Kínahafi. Landið byggja ríflega 80 milljónir manna. Ætlað er að í höfuðborginni Hanoi, sem er nyrst í landinu, búi um þrjár milljónir manna. Í suðurhlutanum er Ho Chi Minh, sem áður var nefnd Saigon, sem höfuðborg. En þótt borgirnar í landinu séu fjölmennar ber þess þó að geta að stærstur hluti þjóðarinnar, eða um 70%, býr í sveitunum. Þar er stund- uð margskonar jarðyrkja, meðal annars hrísgrjónarækt með fornum vinnubrögðum. Ösnum er beitt fyrir plóga og hrísgrjónagrösin eru skorin með sigð. Framkallar þetta í hugum einhverra til dæmis myndir úr Bibl- íusögum barnaskólaáranna. Náttúrufegurð í Víetnam er viðbrugðið. Sigling með djúkunum svo- nefndu við krítarhvítar eyjar Halong-flóa er ævintýraleg og þegar um land- ið er farið liggur í loftinu sérstök græn birta sem stafar frá skógum og ak- urlendi. Má því með sanni segja að landið sé grænt en rautt í aðra röndina, enda er flokkur kommúnista allsráðandi. JARÐYRKJA Í GRÆNU LANDI Víetnamskur hrísgrjónabóndi á akri sínum. Kambódía er mjög framandi land sem á merka sögu að baki. Sérstaka athygli ferðamanna vekja t.d. must- erin miklu í Angkor Wat og Bayon sem byggð voru á tólftu öld. Kam- bódía er velþekkt í vestrænum frétt- um fyrir langvarandi átök. Þekktir eru Rauðu khmerarnir, komm- únistahreyfing Pols Pots sem fyrir um fjörutíu árum hugðist hreinsa landið af erlendum áhrifum og skapa jafnréttisríki sveitamanna. Sú tilraun tókst þó ekki sem skyldi enda þótt fórnað væri hálfri annarri milljón manna í tilraunaskyni. KAMBÓDÍA KHMERANNA Gömul kona við vatnsbrunn í kam- bódísku þorpi. OREGON hornsófi með tungu. B 310 D 240 H 88 cm. (hægt að fá með tungu hægra og vinstra megin). Litur: svart slitsterkt áklæði. Krómlappir. FLOTTUR SÓFI Í BAK OG FYRIR 20% AFSLÁTTUR 239.900 VERÐ: 299.990 0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða 89.000 VERÐ: 129.000 COBRA 3 sæta sófi. B:180 D:87 H:80 cm. Grátt slitsterkt áklæði. HELGAR TILBOÐ! NÚNA 40.000 KR. AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.