Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 24
Í
slendingar hafa skiljanlega verið í betri aðstöðu til að
kynnast norrænni húsgagnahönnun og getað fylgst
jafnt og þétt með því sem er að gerast í þeim löndum
sem hafa staðið framarlega í hönnunarheiminum. Und-
ir lok 20. aldar varð þó ákveðin vitundarvakning og má
nefna sem dæmi að ítölsk hönnun fór þá að fást víðar í
Reykjavík.
Allra síðustu ár hafa bandarísk húsgögn sem fóru fyrst
í framleiðslu um miðja síðustu öld sést æ oftar á íslensk-
um heimilum. Gaman er að virða fyrir sér nokkur ægifög-
ur húsgögn úr þeim heimi og átta sig á að þau eru mun
kunnuglegri en þau voru ekki alls fyrir löngu.
LJÓSAFRUMKVÖÐULL
Isamu Noguchi var undir miklum jap-
önskum áhrifum enda var hann í aðra
ættina japanskur. Lampar hans og ljós
eru kunnugleg enda mikið framleitt af
lömpum undir þessum áhrifum í dag.
EIFFEL
STÓLARNIR
Ekki þarf að velkjast í
vafa um það af hverju
stóll þessi eftir Eames
hjónin er nefndur
„Eiffel“. Stólfæturnir
minna á þann glæsi-
turn í París en stóllinn
er hannaður árið
1948 og er til í mörg-
um útgáfum.
VÖMBIN
Hægindastóllinn sem
upp á amerísku er
nefndur „womb“.
Hönnuðinn, Eero Saari-
nen, tengja margir við
Finnland en hann var þó
Bandaríkjamaður í aðra
ættina. Knoll er fram-
leiðandinn.
MERK HÖNNUNARSAGA VESTANHAFS
Amerískir
gullmolar
UM MIÐJA SÍÐUSTU ÖLD VAR
HÚSGAGNAHÖNNUN VESTANHAFS EIN
SÚ BLÓMLEGASTA Á HNETTINUM.
Júlía Alexandersdóttir julia@mbl.is
*Heimili og hönnunInnlit í einbýlishúsið Mark í Eyjafirði þar sem gamall markvörður býr ásamt eiginkonu sinni »26
GEIMÖLD
Túlípana stólinn þekkja
margir, ekki síst úr kvik-
myndum. Eero Saarinen
hannaði hann á árunum
1955-56 fyrir Knoll.
Þess má geta að stóllinn
varð afar vinsæll eftir að
hann var notaður í Star
Trek á 7. áratugnum.
KONAN
Florence Knoll er ein fárra kvenna sem
hönnuðu húsgögn um miðja síðustu öld.
Þessi skenkur fór í framleiðslu árið 1950.
LENGI Í ÞRÓUN
Tæknin á bak við þennan stól,
að móta og sveigja viðinn á
þennan hátt, er ansi flókin og
var þróuð af hönnuðunum á
löngum tíma, á árunum í kring-
um síðari heimsstyrjöld. Stóll-
inn er hugarfóstur hjónanna
Charles og Ray Eames.
HREINAR LÍNUR
Árið 1946 kynnti hönnuðurinn
George Nelson til sögunnar nú-
tímalegan bekk sem hönnuðir
dagsins í dag sækja fyrirmynd í.
KÓKOSHNETAN
Árið 1955 kynnti George Nelson
svokallaðan kókoshnetu-stól.
Hann hafði gaman af því að sækja
form sín í mat og gerði hinn fræga
sykurpúðastól um svipað leyti.