Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012
G
rikkir samþykktu enn ein lögin
sem þríeykið úr Evrubankanum,
ESB og AGS setti þeim fyrir nú
í vikunni. Forsætisráðherrann
hótaði ekki aðeins „efnahags-
legu öngþveiti“ eins og Jóhanna
fengi hún ekki Icesave. Hann gekk jafnvel lengra. For-
sætisráðherrann gríski sagði efnislega að yrði þessi
skammtur ekki samþykktur þá væru ekki aðeins óg-
urleg eymd og voðalegt volæði hin óhjákvæmlega af-
leiðing þeirrar þrjósku, heldur myndi efnahagslegt
svarthol djöfulsins, eldtungur og eitraðar gufur þess
lykjast endanlega um Grikki. Mótmælendur gerðu það
sem þeir gátu til að hvetja þingmenn til að hætta að
gegna hótunum. Reynslan sýndi að fyrir þeim væru
ekki innstæður. En þeir voru hafðir í hálfs kílómetra
fjarlægð frá þinghúsdyrunum, eins og gert er alls stað-
ar nema á Íslandi, þar sem litið er á það sem hlut í lög-
vörðu tjáningarfrelsi að fá að brjóta rúður þinghússins,
ata það auri og helst að hertaka það með aðstoð innan-
búðarmanna.
Hvers vegna gekk
ráðherra svo langt?
En hvers vegna í ósköpunum lét gríski forsætisráð-
herrann svona? Það er ekki auðvelt að svara því til
fulls. En ástæðan til þess hve langt hann taldi nauðsyn-
legt að ganga er þó augljós. Hótun um eymd og volæði
í verri kantinum hefði ekki hreyft við nokkrum
Grikkja. Þeir eru fyrir löngu komnir þangað. Þeir hafa
misst vinnu, þakið yfir höfðinu fauk í logni og lífeyr-
issparnaðurinn gufaði upp. Atvinnuleysið í landinu er
nú talið vera nærri 26% og atvinnuleysi ungs fólks á
vinnumarkaði er komið yfir 58%! Slíkar tölur sjást
hvergi nema í allra vanþróuðustu löndum veraldar. Og
Grikkland er ekki eina evrulandið sem er svo illa kom-
ið. Eitt af stórríkjum svæðisins, Spánn, býr við al-
mennt atvinnuleysi yfir 25% og atvinnuleysi ungs fólks
á vinnumarkaði er þar einnig komið yfir 50%. Þaðan
berast nú fréttir um að nú hafi kreppan á Spáni staðið
svo lengi að stórir hópar fólks séu að falla út af atvinnu-
leysisskrá og muni ekki lengur eiga rétt á þeim bótum
sem þeirri skráningu fylgja. Næst muni þessi sístækk-
andi hópur verða að leita í félagsleg úrræði, t.d. hjá
sveitarfélögum, sem ramba mörg hver á barmi gjald-
þrots. Þeim sem fái þar „úrlausn“ sé gert að lifa á 400
evrum á mánuði (rúmum 60 þúsund krónum).
Ef þetta er svarið, þá …
Einn af geðfelldustu fyrirrennurum Samfylkingar, Al-
þýðuflokkurinn, auglýsti einhverju sinni í kosningum:
„Alþýðuflokkurinn er svarið.“ „Sé svo, þá er eitthvað
bogið við spurninguna,“ sögðu andstæðingarnir. Al-
þýðusamband Íslands telur ennþá, öndvert við flesta
þá sem borga félagsgjöldin til aðildarfélaganna, að
evra og ESB sé ekki bara svarið, heldur eina svarið.
Það hlýtur að vera orðið mjög langt síðan að samtökin
þau hafa gert svo mikið sem að dusta mesta rykið af
spurningunni haldi þau enn að þetta sé svarið við
henni. Þegar ASÍ vill að tekið sé mark á sér nefnir það
gjarnan til sögunnar þann fjölda sem „standi á bak við
það“, að vísu handan við aðildarfélögin. Nú hefur þorri
þess fólks aldrei verið spurður hvort vilji standi til að
ASÍ-forystan fylgi í blindni sérvitringsstefnu Samfylk-
ingar í þessu mikla máli sem öðrum. Og ástæðan fyrir
því að fólkið, sem stendur undir öllu heila gumsinu, er
ekki spurt er einföld. Forystan veit innst inni hvert
svar þess myndi vera. Hver skoðanakönnunin á fætur
annarri veitir meira en vísbendingar um það. En samt
er látið eins og forystan hafi umboð, hafi einhvern tím-
ann fengið svar við spurningu sem hún þorir ekki fyrir
sitt litla líf að spyrja.
Lærdómur forsetakosninga
Forsetakosningar í sumarbyrjun réðust ekki síst af því
að álitlegur frambjóðandi komst ekki í kringum þá til-
finningu stórs hluta kjósenda að hann vildi ekki gera
hreint fyrir sínum dyrum. Jóhanna Sigurðardóttir og
Samfylkingin gerði óumbeðin frambjóðandann að sín-
um. Það reyndist banvænt faðmlag. Frambjóðandinn
reyndi sjálfur lengi vel að komast frá því að upplýsa
um afstöðu sína til aðildarumsóknar með einfaldri vís-
un til þess að allir flokkar hefðu lofað þjóðaratkvæði
Reykjavíkurbréf 09.11.12
*William Hague, utanríkisráð-herra Bretlands, sér evrusvæðiðekki aðeins fyrir sér hús sem búi við
mikla eldhættu. Hann segir að þetta
hús sé „án útganga“.