Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012
T
æp tvö ár eru frá því Sigurður og Ewa opnuðu
Pylsumeistarann, á horni Hrísateigs og Lauga-
lækjar. Luku þau þar með upp dyrunum að áð-
ur lítt þekktum heimi sælkerapylsna fyrir mörg-
um Íslendingnum og hefur hróður verslunarinnar borist
víða.
„Það gekk mjög vel í sumar og seldist t.d. mikið af
alls kyns grillpylsum,“ segir Ewa létt í bragði.
Fjöldann allan af alls kyns ferskum matarpylsum var
að finna í kjötborði verslunarinnar þegar Morgunblaðið
bar að garði. Eru pylsurnar ýmist forsoðnar og tilbúnar
til hitunar eða steikingar eða ósoðnar, á borð við enskar,
ítalskar eða danskar morgunverðarpylsur, tilbúnar á
pönnuna. Krydd- og áleggspylsur á borð við rúllupylsu,
hunangs-, lúxus- og Baleroskinku njóta einnig mikilla
vinsælda að sögn Ewu auk þess sem beikon verslunarinnar er sérlega vinsælt.
Kjötiðnaðarmeistarinn Sigurður vinnur allar kjötvörur verslunarinnar sjálfur, ýmist eftir
erlendum uppskriftum eða sínum eigin. Notast hann einungis við besta fáanlega hráefni þar
sem aukaefni á borð msg koma hvergi við sögu. Sigurður leggur mikinn metnað í
framleiðsluna og segir hana í senn bæði vinnu sína og áhugamál.
Reglulega bætast áhugaverðar nýjungar við vöruúrvalið en að sögn Sigurðar og Ewu er
það í stöðugri þróun. „Það er einmitt þetta sem er svo skemmtilegt við þetta, pylsurnar og
skinkurnar – hér er íslensk framleiðsla úr íslensku hráefni, eftir uppskriftum frá mismun-
andi löndum,“ segir Sigurður að lokum og hefur greinilega fundið sína hillu.
Það kennir ýmissa grasa í kæliborði Pylsumeistarans. Hér má m.a. sjá matarpylsur úr lambakjöti af ýmsum stærðum og gerðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ýmiskonar kryddpylsur og salami eru fyrirtaks snakk.
Ewa með sýnishorn af framleiðslu manns síns, Sigurðar.
SELJA SÆLKERAVÖRUR VIÐ HRÍSATEIG
Gæðapylsur og álegg gera lukku
Beikonið góða nýtur mikilla vinsælda.
VIÐ HRÍSATEIG STENDUR SÆLKERAVERSLUNIN PYLSUMEISTARINN. ÞAR RÁÐA ÞAU SIGURÐUR HARALDSSON KJÖTMEISTARI OG KONA HANS, EWA
BERNEDETA KROMER, RÍKJUM. ÚTBÚA ÞAU OG SELJA ÞAR LJÚFFENGAR PYLSUR OG ÁLEGG SEM BRAGÐ ER AF.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Nærri má geta að ýmislegt verður í boði
í Pylsumeistaranum í tilefni jólanna að
sögn staðarhaldara.
Líkt og í fyrra mun verslunin bjóða
upp á sérstaklega verkaðan hamborg-
arhrygg auk sænskrar jólaskinku og
paté-a af ýmsum tegundum í ár.
Er þegar farið að taka niður pantanir
fyrir hamborgarhrygginn en sá er minna
saltbættur en almennt gengur og gerist
og því léttari í maga. Ekki þarf heldur að
sjóða hrygginn, sökum takmarkaðs salt-
magns í honum og er hann því svo til
tilbúinn til steikingar beint í ofninn við
afhendingu.
Ýmsar pylsur verða einnig í boði sem
henta vel um hátíðirnar, hvort heldur
sem er um jól eða áramót, sem snakk
eða annað. Nefnir Sigurður þar pylsur á
borð við Cabanos, Slim Jim og svokall-
aða „Ömmulund“ sem er söltuð og
reykt svínalund, en allar hafa þær notið
vinsælda. Þá nefnir hann einnig einiberja-
pylsur og pepperonisnakk, sem vel geta
komið í staðinn fyrir kartöfluflögur og
annað slíkt. Ekki má heldur gleyma því
að pylsur geta komið mjög vel út með
hinum ýmsu ostum og fara vel á slíkum
bökkum.
Sigurður hefur um skeið unnið að því
að þróa hreindýrasalami. Er hins vegar
ekki um auðugan garð að gresja hvað
hráefni í það varðar svona rétt fyrir jólin.
Vill paté-framleiðsla landans ganga fyrir
slíkum nýjungum á þessum tíma árs.
Uppskriftin að slíkri snakkpylsu er
engu að síður tilbúin og vonast kjötiðn-
aðarmeistarinn til að geta boðið upp á
þær þótt síðar verði.
Verður engu að síður úr nægu að velja
við Laugalækinn fyrir þessi jólin og um
að gera fyrir sælkera þess lands að leggja
leið sína þangað rétt eins og á Laugaveg-
inn.
EINIBERJAPYLSUR OG PEPPERONISNAKK TIL HÁTÍÐABRIGÐA
Matur og drykkir