Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Page 16
T
empelhof-garðurinn í Berlín er alveg einstakur staður. Þarna var áður alþjóða-
flugvöllur en honum var lokað árið 2008. Þegar ég kom fyrst til Berlínar árið
2006 lenti ég einmitt á þessum flugvelli. Þá tók ég helst eftir glæsilegu bygging-
unum en í annarri heimsókn fyrr á þessu ári var annað uppi á teningunum.
Byggingarnar eru vissulega á sínum stað en í stað flugvélanna fara nú um flugbrautirnar
annars konar farartæki. Fólk notar sér víðáttuna til að þeysa um á hjólum, línuskautum
og seglbrettum á hjólum, sem er sérstaklega áhrifamikil sjón. Flugvellinum var lokað án
þess að fyrir lægi hvað ætti að gera við svæðið og þess vegna eru flugbrautirnar allar
ennþá til staðar. Honum var lokað án þess að ákveðið gróðasjónarmið væri fyrir hendi
með byggingu nýrra húsa heldur er svæðið til afnota fyrir fólkið í borginni, sem hefur
tekið því með opnum örmum.
Garðurinn er vinsæll til margs konar útivistar og þjónar vel hverfunum í kring. Til
dæmis er stórt svæði lagt undir ræktun grænmetis, til hagsbóta og skemmtunar fyrir
íbúa í nágrenninu. Þarna er líka hægt að slappa af og leika sér. Á staðnum eru bjórgarð-
ar sem selja mat og drykk og líka er vinsælt að grilla á sérmerktum svæðum. Eitt sér-
staklega áhugavert svæði í garðinum er lagt undir listrænt mínígolf. Brautirnar eru
nokkrar og stendur þekktur listamaður á bak við hverja og eina.
Garðurinn heitir á þýsku „Tempelhofer Freiheit“ og er aðeins um fimm kílómetra frá
Brandenburgarhliðinu og er á stærð við Central Park í New York. Þetta er sumsé mjög
stór garður og ekki laust við að maður fyllist víðáttubrjálæði þegar þangað er komið. Í
uppbyggingu garðsins hefur fólkið fengið að ráða, mörg samfélagsleg verkefni eru í
gangi þar. Hann var formlega opnaður í maí 2010 en hafði verið notaður í ýmsum til-
gangi fyrir almenning á undan því. Ennfremur er mikil uppbygging áætluð á svæðinu til
ársins 2017 en þá verður IGA-alþjóðlega garðasýningin haldin þarna. Þemað verður
„borg morgundagsins“ og á sýningin að stuðla að alþjóðlegri umræðu um hvernig borg
framtíðarinnar eigi að vera. Vonandi eitthvað í líkingu við þetta.
Morgunblaðið/Inga Rún
FLUGVÖLLURINN SEM VARÐ GARÐUR
Fyrir fólkið
TEMPELHOF-GARÐURINN Í BERLÍN ER EINSTAKUR STAÐUR EN
Í STAÐ FLUGVÉLA FERÐAST NÚ FÓLK UM FLUGBRAUTIRNAR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Balí er lítil hindúísk eyja, sem tilheyrir fjölmennasta múslimaríki í
heimi, Indónesíu. Eyjan er ekki nema 1/20 af stærð Íslands en þar
búa rúmlega 3 milljónir manna. Á Balí eru fleiri vespur en bílar. Það
sem er einstakt við Balí er hversu trúræknir íbúar hennar eru. Hér
má sjá fallega útbúnar fórnir víðar en bara á altörum og er mild
reykelsislykt í loftinu. Þrátt fyrir að vera vinsæl ferðamannaparadís
er eyjan nánast ósnortin. Sjálf dvaldi ég í 10 daga í þorpinu Ubud
sem er þekkt fyrir grósku í listum og menningu og áherslu á heilbrigt
líferni. Núna er ég í Tulamben en þar má finna eina fallegustu köf-
unaraðstæður í heimi. Í morgun kafaði ég inn í og í kringum skipið
USAT Liberty, sem hefur verið á hafsbotni síðan í janúar 1942.
Diljá Ámundadóttir, heimshornaflakkari Kafað í kringum skipið USAT Liberty. Það eru fleiri bílar en vespur á Balí.
Trúrækið fólk á vespum
PÓSTKORT F
RÁ BALÍ
*Ferðalög og flakkFerðalög á framandi slóðir eru ær og kýr þeirra Sigríðar og Gústafs úr Hveragerði »18