Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 23
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Gerðu gæða- og verðsamanburð FINNDU MUNINN Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00 *3,5% lántökugjald ÝMIR rúm 153x203 aðeins kr. 124.900 ÝMIR, SAGA, FREYJA, ÞÓR OG ÓÐINN Hágæða svæðisskiptar heilsudýnur Valhöll heilsudýna 5 svæðaskipt gormakerfi 153x203 aðeins kr. 89.900 Tilboðsverð 12 mánaðavaxtalausargreiðslur* Guði sé lof fyrir hávaðarok sem hristir af fólki seigfljótandiskammdegisslen. Ekkert nema gott að láta vindinn um aðhreinsa af beinunum þann bévítans bölmóð sem á það til að leggjast á mannskepnurnar eins og versta mara á þessum árstíma. Heldur betur meira fútt í því að mæta fjúkandi fólki en niðurlútum lurkum sem draga lappirnar. Djöfull sem það er hressandi og kynörvandi að lenda í sviptivindum. Finna náttúruna rífa svo kröftuglega í skrokkinn að hann tekst nánast á loft. Svaðalega frelsandi að láta Kára taka af sér völdin og snara stjórnlausum út- limum milli staura. Augun glennast upp í nettum ótta, ópið sleppur út um munninn og húfur og treflar fjúka út í buskann. Hláturinn losnar úr læðingi og rokið í hárinu hleypir heldur betur lífi í villiblóðið, þetta sem svaf þarna fyrir innan höfuðskelina og vissi varla að það væri lengur til. Við lendum bara alltof sjaldan í fanginu á frum- kröftum sem rífa af okkur grímuna og spýta adrenalíni út í blóðið. Það er óhjákvæmilegt annað en að upp hafi sprottið einhver ástar- sambönd millum þeirra sem skullu saman þegar þeir fuku um fold hér á dögunum. Stormurinn hefur vafalítið leitt saman einhverja þeirra ótal gesta sem hingað komu til að njóta Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Ég sé fyrir mér pör sem sitja í rökkurró eftir nokkra áratugi og rifja upp daginn sem þau lentu í krumlum Kára: „Hvar værum við ef örlaga- rokið hefði ekki feykt okkur í fang hvort annars þarna um árið á Ís- landi?,“ og svo flissa þau í flókaskóm og minnast köldu læranna sem gott var að nudda saman þegar komið var uppí rúm. Og saltir voru koss- arnir eftir sjóinn sem hafði frussað yfir þau við Sæbrautina. Ég get ekki sleppt því að leyfa Hannesi Hafstein að eiga lokaorðin þar sem hann yrkir um storminn: Og þegar þú sigrandı́ um foldina fer, þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér. Ég elska þig, kraftur, sem öldurnar reisir, ég elska þig, máttur, sem þokuna leysir. Ég elska þig, elska þig, eilífa stríð, með ólgandi blóði þér söng minn ég býð. Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður; hugur minn fylgir þér, djarfur og glaður. ÓLMAST Í MÉR ÓVEÐRIÐ Stigið í vænginn KRISTÍN HEIÐA A lmennt ef við tökum fisk þá eru það fitu- miklar fisktegundir eins og lax og silungur sem innihalda mikið af omega-fitusýrum. Það dugar ekki að borða ýsu eða þorsk sem eru tegundir sem innihalda allt of lítið af fitu. Maður verður að borða frekar fitumikinn fisk,“ segir dr. Alfons Ramel, fræðimaður við mat- væla- og næringarfræðideild Háskóla Ís- lands, spurður að því hvaða fisktegundir séu bestar til að uppfylla þörf líkamans á omega-3 fitusýrum. Omega-fitusýrur eru lífsnauðsynlegar og hafa meðal annars jákvæð áhrif á starfsemi sjónhimnu og skipta máli fyrir nýrnahettur og tauga- kerfi mannslíkamans. Þar sem manns- líkaminn framleiðir ekki omega- fitusýrur er hann háður þeim úr fæðunni. Þar spilar fiskneysla stórt hlutverk en það er ekki sama hvaða fiskur er. „Bæði villilax og eldislax innihalda mikið af omega-3 fitusýr- um,“ sagði Alfons. Sunnudagsblaðið leitaði til Ólafs Reykdal, sérfræðings hjá Matís, og spurði hann út í meðal annars muninn á eldislaxi og villtum laxi út frá magni á omega-fitusýrum. Meira í eldislaxi en þorski „Það má segja að fitusýrur í eldislaxi ráðist af fitusýrum í fóðrinu. En fóðrið er nú yfirleitt þannig að fitusýrurnar verða kannski ekki mjög frábrugðnar því sem er í villtum laxi en það getur verið ein- hver munur,“ sagði Ólafur og bætti við: „Við höfum gert mælingar á eldisfiskinum. Fjölómettaðar fitusýrur alls eru 26% og undir þeim eru omega-3 fitusýrurnar og við höfum mælt þær sem 17% af öllum fitusýrunum sem er mjög hátt. Þetta kemur mjög svipað út fyrir eld- isbleikju.“ Ólafur segir að í þorski sé innan við 1% fita og hann sé því mjög hita- einingasnauður en omega-3 fitusýrurnar séu um 50% af öllum fitusýrum. „En þá kemur á móti að það er svo lítil fita í þorskflökunum að við fáum í raun og veru miklu meira af omega-3 fitusýrum í eldislaxi og eldisbleikju ef við reiknum þetta í grömmum og það er í raun og veru það sem skiptir máli,“ sagði Ólafur. Það skiptir máli að gæta að hlutföllum í neyslu omega-3 og omega-6 fitusýra. Alf- ons segir þó að það sé mjög óalgengt að það gæti skorts á neyslu fitusýra hérlendis. Hann segir að miðað við 100% orkuneyslu og -þörf eigi um 25% af orku að koma úr fitu sem hlutfall af heildarork- uneyslu. „En almennt þurfa fjölómett- aðar fitusýrur [omega-3 og omega-6] að vera að minnsta kosti 10% og þar af að minnsta kosti 3% omega-3.“ Talið hafa forvarnagildi Omega-6 fitusýrur er helst að finna í korni og jurtaolíum eins og sólblómaolíu sem og í jurtasmjöri og smjörlíki. Mikil umræða hefur verið um neyslu á omega-fitusýrum og ýms- ar kenningar eru uppi um að skortur á þeim geti valdið ofvirkni og eins að þær hafi ýmiss konar forvarnagildi gagnvart hjarta- og æða- sjúkdómum, sykursýki og einhverjum tegundum krabbameins, svo dæmi séu tekin. Við Íslendingar neytum um fjórfalt meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 en Bandaríkjamenn neyta fimm- tán sinnum meira af omega-6. Alfons segir því nauðsynlegt að horfa til þessa atriðis þegar dregnar eru ályktanir út frá nið- urstöðum vestan hafs þar sem hlutföllin séu allt önnur en hér. Lífsnauðsynlegar fyrir líkamann OMEGA-FITUSÝRUÞÖRF MANNSLÍKAMANS OKKUR ÖLLUM ER NEYSLA Á OMEGA-FITUSÝRUM NAUÐSYNLEG TIL EÐLILEGRAR LÍKAMSSTARFSEMI. SUNNUDAGSBLAÐIÐ VELTIR FYRIR SÉR HVAÐA FISKUR HENTI BEST FYRIR UPPTÖKU Á OMEGA-FITUSÝRUM.. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is * Við fáum íraun miklumeira af omega-3 fitusýrum í eldislaxi og eldisbleikju en úr þorski.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.