Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Side 28
*Matur og drykkir Matreiðslumeistari ársins 2012 Bjarni Siguróli Jakobsson sýnir réttu handtökin í eldhúsinu »32
S
igrún Óskarsdóttir og Kristín
Þóra Harðardóttir leggja
áherslu á gleðina í veislunum
sínum. Það er við hæfi því ný
uppskriftabók þeirra, Orð, krydd &
krásir, sem gefin er út hjá bókaútgáf-
unni Veröld, innihaldi rétti af slóðum
Biblíunnar. Í bókinni er lögð áhersla á
að nota lítið unnið og náttúrulegt hrá-
efni en líka er lagt mikið upp úr sam-
félaginu við borðið, að félagsskapurinn
sé góður því máltíðin sé ekki bara mat-
ur heldur líka fólkið sem við neytum hennar með. „Glaðar
manneskjur sem kunna að njóta góðrar veislu eru verðugir
boðberar friðar og kærleika,“ stendur í inngangi að „Veislu
gleðinnar“ sem er kaflinn sem meðfylgjandi uppskriftir eru
birtar í. Aðrir kaflar bera nöfn á borð
við „Miðlungur og örverpi velta fyrir sér
kaupum á frumburðarrétti“, „Boðið uppá
fimm brauð og tvo fiska“ og „Krydd og
kærleikur“. Hugmyndin á bak við þessa
uppsetningu er skemmtileg en í hverjum
kafla eru birtar nokkrar uppskriftir sem
hægt er að nota saman í þemaveislu.
Réttirnir í bókinni eru jafnan ætlaðir
fyrir sex manns.
Í Biblíunni er töluvert fjallað um mat.
Í uppskriftabókinni kemur fram að þar
sé ekki að finna nákvæmar uppskriftir en sagt sé frá stór-
kostlegum veislum. „Við vonum að maturinn ýti undir vellíð-
an og enn meiri gleði og fögnuð,“ skrifa þær undir lok gleði-
kaflans og eiga þau lokaorð líka við hér.
Ljósmyndir/Sigurjón Ragnar
NÁTTÚRULEGT HRÁEFNI OG SAMFÉLAGIÐ VIÐ BORÐIÐ
Gleðin í matnum
Í UPPHAFI VAR EKKI BARA ORÐIÐ HELDUR LÍKA MATURINN EINS OG FRAM KEMUR Í
MATREIÐSLUBÓKINNI ORÐ, KRYDD & KRÁSIR, SEM SÆKIR INNBLÁSTUR TIL BIBLÍUNNAR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Höfundar bókarinnar, Sigrún Óskars-
dóttir og Kristín Þóra Harðardóttir.
KRÆSILEGUR
SALVÍUKJÚKLINGUR
1 kjúklingur
1–2 hvítlaukar
knippi af salvíu (50 g)
salt og hvítur pipar
3 msk ólífuolía
safi úr einni appelsínu
1–2 appelsínur í bitum
BANKABYGG
3 dl bankabygg
1 dl ólífuolía
10–20 svartar ólífur
knippi af steinselju (50 g)
Þessi kjúklingur er einkar
bragðgóður og einnig fallegur,
sérstaklega ef bætt er við
ferskum appelsínum og salvíu
þegar hann er borinn fram. Ef
miðað er við að máltíðin sé
fyrir sex manns er ekki víst að
einn fugl dugi, það þarf að
áætla út frá stærð fuglsins og
matarlyst gestanna.
Setjið kjúklinginn í eldfast
mót. Blandið saman smátt
skorinni salvíu, pressuðum
hvítlauk, salti og pipar og
ólífuolíu. Nuddið þessu á
kjúklinginn og kreistið síðan
safann úr appelsínunni í mót-
ið. Skerið hina appelsínuna í
bita og setjið í mótið. Eldið í
180°C heitum ofni í rúma
klukkustund. Það er fallegt að
saxa svolítið af salvíu yfir áður
en fuglinn er borinn fram og
jafnvel að bæta við nýjum
appelsínubitum til að daðra
aðeins við liti og bragð.
Með kjúklingnum er gott
að hafa íslenskt bankabygg.
Byggið má setja í pott með
vatni um leið og kjúklingurinn
fer í ofninn, láta suðuna koma
upp og slökkva svo undir
pottinum og láta standa með
loki þar til kjúklingurinn er til.
Bætið góðri ólífuolíu saman
við byggið og stráið smátt
skornum ólífum og smátt
skorinni fjallasteinselju yfir.
OSTAFYLLTAR
DÖÐLUR
Jógúrtostur (sjá uppskrift
hér að neðan)
2 msk smátt skorinn
blaðlaukur
börkur af hálfri appelsínu
salt og pipar
24 ferskar döðlur
Þessi eftirréttur er í einu
orði sagt ómótstæðilegur.
Sætt bragðið af döðlunum
passar fullkomlega með af-
gerandi bragðinu af appels-
ínuberkinum og blaðlaukn-
um. Það er erfitt að segja til
um magn af þessum rétti, þar
sem döðlurnar virðast hverfa
sem dögg fyrir sólu óháð
magni. Þær eru einnig góðar
sem smáréttur.
Útbúið jógúrtost. Blandið
saman við ostinn smátt
skornum blaðlauknum.
Saltið og piprið eftir
smekk og rífið börk af hálfri
appelsínu saman við. Það er
best að nota mjúkar döðlur í
þennan rétt. Þá þarf að taka
steininn úr þeim og síðan eru
döðlurnar fylltar með 1–2
tsk af ostinum. Fallegt er að
rífa svolítið af appelsínuberki
yfir áður en rétturinn borinn
er fram. Osturinn dugar í
u.þ.b. 24 döðlur.
JÓGÚRTOSTUR
2 dósir lífræn jógúrt
(360 g)
Ostinn þarf að undirbúa dag-
inn áður. Lífrænni jógúrt er
hellt í þétta grisju eða kaffi-
poka og sett í sigti. Úr tveim-
ur dósum fást um 150 g af
osti. Látið leka úr jógúrtinni í
12-24 tíma, takið hana síðan
úr grisjunni.
Einfalt er að bragðbæta
ostinn með ýmsum hætti og
er osturinn líka góður ofan á
brauð og með ýmsu með-
læti.