Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 34
Jóhannes I. Kolbeinsson segir fisvélar hentugar í leit þar sem þær eru þeim kosti búnar að geta flogið hægt yfir leitarsvæðin og eins eru þær ódýrar í rekstri. ▼ Contour-myndavél Flugbjörgunarsveitin hefur nú prófað að festa myndavélar á vængi flugvél- anna. Þá er notast við myndavélar sem þola sæmilegt veður og taka GPS-hnit eins og Contour og GoPro. Leitarmaðurinn er þá bæði að leita og að taka leitina upp. Þá er mögu- leiki fyrir þá björgunarsveitarmenn sem ekki komast í flug að fínleita á upptökunni að fluginu loknu. Þetta getur nýst vel ef leitað er til dæmis á sprungusvæðum eða í hrauni því að þá er hægt að fletta ramma fyrir ramma. *Græjur og tækniEkki eru nema örfá ár síðan skipt var úr GSM yfir í 3G. Nú er 4G handan við hornið »36 Jóhannes I. Kolbeinsson er virkur meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og starfar semframkvæmdastjóri hjá Kortaþjónustunni. Nýverið hóf Flugbjörgunarsveitin að leita úr lofti álitlum fisvélum í samstarfi við Fisfélagið. Þess konar leit hentar vel ef það þarf að hraðleita á stórum svæðum. Eins er eldsneytiskostnaður svipaður og í fólksbíl eða jeppa og því ljóst að þetta er mun hagkvæmari leitaraðferð en að nota þyrlur. „Þetta er samt ekki sambærilegt við þyrluleit, það er bara allt önnur hugmyndafræði á bak við þetta,“ segir Jóhannes „Þyrlurnar geta að sjálf- sögðu flogið í myrkri en þær eru ekki alltaf tiltækar og kosta auðvitað miklu meira.“ Fyrsta leitin á fisvélum var á Sólheimajökli þegar leitað var að Svía sem hafði villst af leið. „Þetta byrjaði sem til- raun síðasta vetur en það er búið að staðfesta að vélarnar eru mjög öflug leitartæki og við erum að koma þessu inn í skipulagið hjá okkur. Þetta er eitt af fáum verkefnum sem byrja sem tilraun hjá okkur en reynast síðan algjört „breakthrough“ fyrir okkur,“ segir Jóhannes. Hægt er að keyra með eldsneytisbirgðir víða um land svo hægt sé að lenda nálægt leitarstað til að fylla á tankinn í löngum leitarverkefnum. Jóhannes segir að björgunarsveitirnar ættu að geta staðið undir þeim kostnaði sem fylgir fisvélunum og telur hann að það sé aðeins tímaspursmál hvenær þær verði staðalbúnaður. „Við vitum að þessi fisleit mun bjarga mannslífum, það er bara spurning hversu langt er í það,“ segir Jóhannes. Jóhannes er sjálfur mikill adrenalínfíkill en hann er mikið í mótorkrossi og var um tíma í fallhlífarhópnum en sá hópur getur farið á fjarlæga staði í flugvél og ef lendingarskil- yrði eru erfið getur skipt sköpum að senda mann og búnað úr vélinni til að veita fyrstu hjálp. „Ég er með mikla græjudellu í sambandi við myndavélar og gps-tæki sem nýtast bæði í fluginu og mótorkrossinu,“ segir Jóhannes. ▲ GPS í flugvélum Leitarmenn í flugvélunum eru með GPS- tæki og inni á þeim er leitarskipulagið. Þessi tæki eru yfirleitt í eigu björg- unarsveitarmannanna sjálfra og væri það draumastaða ef félögin ættu nægilegt fjármagn til að koma sér upp þessum staðalbúnaði. Eftir hvert flug skilar leit- armaður af sér gps-punktum úr fluginu til svæðisstjórnar og þá er hægt að af- marka leitina betur. GPS-punktarnir gefa ekki bara upp svæðið sem leitað var á heldur er líka hægt að sjá á þessum hnitum í hvaða hæð punkturinn var tek- inn og á hvaða hraða. Ef farið var of hratt yfir getur þurft að fara aftur á staðinn til að leita aftur. ▲ Færanlegur vindsokkur Flugbjörgunarsveitin og Fisfélagið vinna nú í því að fá færanlegan vind- sokk svo flugmenn eigi hægara með að reikna út vindinn þegar verið er að finna hentugt lendingarsvæði. NÝ LEITARTÆKNI Mun bjarga mannslífum „VIÐ VITUM EKKI TIL ÞESS AÐ ÞETTA SÉ GERT ANNARS STAÐAR Í HEIMINUM, EN ÞAÐ GETUR SAMT VEL VERIÐ,“ SEGIR JÓHANNES I. KOLBEINSSON UM NÝJA LEITARAÐFERÐ FLUGBJÖRGUNARSVEITARINNAR Í REYKJAVÍK Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári ▲ TETRA-talstöð Björgunarsveitarmenn notast við TETRA- talstöðvar í samskiptum við leitarstjórn en flugmennirnir notast við flugradíótal- stöðvar í samskiptum sín á milli og við flugturn. Flugbjörgunarsveitin hefur verið að prófa að tengja TETRA-stöðvarnar í intercom-kerfi flugvélanna þannig að flug- mennirnir heyra TETRA-samskiptin og leit- armennirnir heyra flugsamskiptin. Þetta skiptir miklu máli upp á að samræma að- gerðir í leitarskipulaginu. ▼ Fisvél Fisvélar nýtast vel í leit þar sem þær geta flogið mun hægar en aðrar flugvélar. Vélarnar eru bundnar þyngdartakmörkunum og mega eins manns vélar vera að hámarki 300 kg og tveggja manna vélar 450 kg. Þyngd manna getur því skipt máli, sérstaklega ef einhver búnaður er um borð í vélunum. Ljósmynd/Helga Björnsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.