Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 42
A
lgengt er að kíló lamba-
kjöts af nýslátruðu kosti
um 1.100 krónur, ef
keyptur er heill eða hálf-
ur skrokkur. Kílóverð er í sumum
tilfellum enn lægra og þá jafnvel vel
innan við þúsund kr., en að sögn
kjötiðnaðarmanns sem Morg-
unblaðið ræddi við er hætta á að þá
fái kaupandinn ekki bestu bitana af
frampartinum.
Mögulegt er að kaupa heilan
skrokk beint af sumum kjöt-
vinnslum og fá sagaðan að eigin
ósk, t.d. hjá Fjallalambi og Kjarna-
fæði; sumir vilja bæði lærin heil,
aðrir annað sagað í sneiðar og þar
fram eftir götunum.
Sagaðir skrokkar í pokum eru víða
seldir í verslunum og sums staðar
vinsælir. Þá er hægt að kaupa heilan
skrokk eða hálfan í sumum versl-
unum og láta saga á staðnum að eig-
in ósk, til dæmis í Fjarðarkaupum.
Björn Víkingur Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Fjallalambs, segir að
síðubitar fylgi ekki með skrokkum
frá fyrirtækinu en þess í stað fái fólk
kæfudósir og aðrir hafa svipaða sögu
að segja. „Þá er fólk ekki að henda
neinu heldur getur nýtt allt sem það
kaupir,“ segir Björn Víkingur.
Sums staðar hefur mjög dregið
úr þeirri hefð að kaupa skrokk að
hausti. „Fólk vill miklu frekar velja
sér súpukjötsbita eða læri úti í
búð,“ segir Sigurður Bjarni Rafns-
son, framleiðslustjóri hjá KS á
Sauðarkróki, um þróunina þar.
Framkvæmdastjóri Fjallalambs
segir að þegar fólk kaupi hálfan
skrokk eða heilan sé oftast nær
ekkert í plat, eins og hann tekur til
orða. „Bestu bitarnir eru yfirleitt
ekki teknir úr. Ég hef þó séð þann-
ig vöru til sölu; þegar verðinu er
þrýst sem lengst niður eykst sala á
lambakjöti eins og öðru en ég er
ekki viss um að fólk geri sér alltaf
grein fyrir því hvað það fær. Ég
myndi heldur vilja borga þúsundkall
fyrir góðan frampart, svo ég nefni
dæmi, en 700 krónur fyrir kílóið af
framparti þegar búið er að taka
bestu súpukjötsbitana úr en aðrir
síðri valdir í staðinn.“
Einn viðmælenda blaðsins tók svo
til orða að verðið segi ekki alltaf alla
söguna. En þegar að er gáð er stað-
reyndin kannski einmitt sú að verð-
ið segi alla söguna! „Þú færð vöru í
samræmi við það sem borgað er,“
sagði hann. Ákveði fólk að kaupa
sér skrokk, ætti það að hafa í huga
hvort allt nýtist. Óalgengt er að
yngra fólk noti slög, þótt eldri kyn-
slóðir búi e.t.v. til rúllupylsu. Ef fólk
hendi hluta af skrokknum séu þau
kaup því ekki endilega hagstæðari
en önnur.
INNKAUPAVENJUR AÐ HAUSTI
Verð og gæði
fara saman
ÁÐUR FYRR KEYPTU MARGIR HEILAN LAMBSSKROKK AÐ
HAUSTI. ÞAÐ ER EKKI JAFN ALGENGT OG VAR, EN MARGIR
HALDA ÞÓ Í ÞANN SIÐ, ENDA OFT HAGKVÆMT.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Flestir sem kaupa heilan skrokk óska
eftir því að fá hann svona:
* 1 heilt læri (u.þ.b. 2,5 kg)
* 1 læri sagað í sneiðar
* 1 hryggur (2,0 kg)
* Frampartur í súpukjöt (5 kg)
* Kæfa í stað slaga (1 kg)
Gera má ráð fyrir að heill skrokkur
kosti u.þ.b. 14-16.000 krónur út úr
búð.
Algengt verð út úr búð:
Heilt læri 1.400 kr kg - (3.500 kr)
Læri sagað í sneiðar 1.650 kr. kg.
Hryggur (2 kg) 1.900 kr. kg (3.800)
Frampartur (5 kg) 800 kr kg. (4.000 kr.)
Þegar allt kemur til alls er því ekki allt
mikill munur, jafnvel nánast enginn, á því
að kaupa skrokk eða ákveðna gæða bita
*Fjármál heimilannaReglan um 72 segir hve lengi fé er að tvöfaldast. Best er ef eignir tvöfaldast hraðar en skuldir
Oft er erfitt að sjá fyrir sér hvernig vextir og vaxtavextir vinna í raun. Nútíma þjóðsaga greinir frá því að AlbertEinstein hafi sagt að vaxtavextir væru „áttunda undur veraldar, sá sem skilur hvernig þeir verka ávinnur sérþá, sá sem ekki skilur það, borgar þá“. Hvort sem Einstein sagði þetta eða ekki þá er undramáttur vaxtavaxta
mikill. Reglan um 72 er mikilvæg en ofureinföld þumalputtaregla til þess að reikna út hvernig peningar vinna.
Tökum dæmi um 100.000 króna höfuðstól sem ber 5% ársvexti. Eftir eitt ár er upphæðin orðin 105.000 krónur, 5.000
krónurnar sem bættust við eru vextirnir af 100.000 krónunum. Árið eftir færðu hins vegar
5.250 krónur í vexti, því nú reiknast vextirnir af 105.000 krónum og svo koll af kolli. Upphæð
sem ber 5% vexti er rúm 14 ár að tvöfaldast, eftir rúm 14 ár er upphæðin því orðin 200.000. Ef
vextirnir eru 10% verður upphæðin orðin 200.000 eftir rúm 7 ár.
Reglan: Til að reikna árafjöldann sem tekur upphæð að tvöfaldast skaltu deila 72
með vaxtaprósentunni: 72/vextir = árafjöldi til tvöföldunar
Dæmi: Yfirdráttarlán bera um 12% vexti: 72/12=6. Upphæð yfirdráttarláns tvöfaldast á 6
árum sé hún ekki greidd niður. Líttu nú á hvað gerist í hvert sinn sem upphæð tvöfaldast:1
kr. ... 2 kr. ... 4 kr. ... 8 kr. ... 16 kr. ... 32 kr. ... 64 kr. ... 128 kr. ... 256 kr.
Þess vegna er svo mikilvægt að peningar sem þú átt tvöfaldist sem oftast og peningar sem
þú skuldar geri það sem sjaldnast. En hversu oft mun upphæð tvöfaldast á tilteknum tíma?
Til að komast að því skaltu deila árafjöldanum með útkomunni í dæminu hér að ofan.
Dæmi: Hversu oft tvöfaldast yfirdráttarlán á 20 ára tímabili? 20/6=3,3. Yfirdráttarlán tvöfaldast rúmlega þrisvar
sinnum á 20 ára tímabili sé það ekki greitt niður. 250.000 króna yfirdráttarlán verður rúmar 2.000.000 króna.
Núna hefurðu lært undirstöðuatriði reglunnar um 72. Nýttu þér hana til að láta sparnað eða fjárfestingu tvöfaldast að-
eins oftar yfir langan tíma og til dæmis gæti eftirlaunasjóðurinn orðið margfalt stærri. Hugsaðu líka um hversu hratt
skuldir sem bera háa vexti vaxa. Það getur skipt sköpum við lántökur og fjárfestingu að gera sér grein fyrir tvöföld-
unartíma fjár.
Aurar og
krónur
REGLAN UM 72 Tvöföldun höfuðstóls eftir vaxtaprósentu
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
Höfuðstóll
100.000 kr.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Ávöxtunartími í árum
Tvöfaldur höfuðstóll
(200.000 kr.)
Yfirdráttarlán
12% vextir
Tvöföldunartími: ~6 ár
Sparnaður
5% vextir
Tvöföldunartími: ~14 ár
BREKI KARLSSON