Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012
1979 Fyrsta plata HLH-flokksins kemur
út og flokkurinn fær 1,3 milljónir króna
fyrir að koma fram á Hallærisplaninu.
1986 Icy-
flokkurinn fer
til að Bergen
til að sigra
Evróvisjón.
Landsmönnum
til mikillar furðu
gengur það
ekki eftir.
1987 Alþjóðleg sigurför
Sykurmolanna hefst með útkomu
lagsins Birthday. Í London er Björk
elt á röndum. (Mynd: Dr. Gunni)
1963 Æpandi heróp berst frá Liverpool. Hljómar frá Keflavík koma í fyrsta
skipti fram og taka fljótlega afgerandi forystu sem aðal hljómsveit Bítlatímans.
(Mynd: Sigurgeir Sigurjónsson)
1992 Björk
gefur út Debut
og verður fyrsta
alþjóðlega stór-
stjarna Íslendinga.
Allar gáttir ljúkast
upp og „bransinn“
veit hvar Ísland er
á landakortinu. Í
Q Magazine var
henni spyrt saman
viðTori Amos og
PJ Harvey.
Í
slands þúsund ár, eða nánar
tiltekið síðustu tvær aldirnar
eru teknar fyrir í nýrri bók
Dr. Gunna, Stuð vors lands,
saga dægurtónlistar á Ís-
landi. Útgefandi er Sögur ehf. og
er öll umgjörð bókarinnar sérlega
glæsileg, kápuhönnun og umbrot
gera gripinn sérlega eigulegan.
„Í raun er þetta búið að taka síð-
an 1980 að gera þessa bók því ég
er búinn að vera gegnsýrður af
áhuga á þessu fyrirbæri síðan þá
eða jafnvel fyrr,“ segir doktorinn
en markviss skrif í bókina hafa
staðið síðustu tvö ár auk myndaöfl-
unar, en bókin er vel myndskreytt.
Sjálfur hefur hann líka skrifað um
tónlist frá árinu 1990 þannig að
hann gat líka flett upp í sjálfum sér
í heimildavinnunni. „Það er ekki
lagt upp með að búa til fræðirit
heldur skemmtirit. Það er tæpt á
öllu því helsta og mörgu því ekki
helsta,“ segir hann gamansamur en
bókin er skrifuð í léttum og
skemmtilegum stíl.
Heimsókn til plötusafnarans Sig-
urjóns Samúelssonar, bónda á
Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp,
víkkaði hugmyndina á bak við bók-
ina. Hann á mesta safn 78-snúninga
platna á landinu. „Ég bankaði uppá,
hann bauð mér til stofu og fór að
spila. Hann spilaði líka fyrir mig af
vaxhólki, sem ég hafði aldrei séð
áður,“ segir dr. Gunni en eftir
þessa heimsókn var tímaramminn á
bókinni stækkaður „eins langt aftur
og stuð var fyrir hendi“. Bókin
byrjar því í upphafi 19. aldar en
erfitt var að finna heimildir um
þennan tíma og engar plötur voru
til. „Svona alþýðuskemmtun þótti
ekki merkilegt fyrirbæri á þessum
tíma.“
Ertu mikill sagnfræðingur í þér?
„Já, varðandi það sem ég hef
áhuga á. Ég hef engan áhuga á Ís-
lendingasögunum og fornköpp-
unum. Þeir voru ekki í neinu stuði,
þeir voru bara að drepa hver ann-
an,“ segir hann og hlær.
Áhrif erlendra heimsókna
Eitt af því sem dr. Gunni komst að
við gerð bókarinnar var hvað er-
lendar heimsóknir hafa kveikt mik-
ið í íslenskum poppurum. „Allar er-
lendar heimsóknir eru með í
bókinni því þær hafa haft mikil
áhrif og eru hluti af íslenskri tón-
listarsögu.“
Áhrifin hafa alltaf verið mikil er-
lendis frá. „Við höfum aldrei fundið
upp eitthvað frá grunni og höfum
alltaf fengið áhrif erlendis frá. Það
kom líka á óvart hvað við vorum
snögg að tileinka okkur erlenda
strauma, fyrsta djassplatan kemur
út 1918, farið að kenna djassdans á
Íslandi 1920 og menn farnir að
spila djass nokkrum árum síðar.
Rokkið kemur síðan bara sama ár
og það var fundið upp.“
Talið berst að tímanum þegar
Gunni var sjálfur að byrja í tónlist,
þegar pönkið réð ríkjum, líka að
óbilandi trú Íslendinga á velgengni
í Evróvisjón og að því að gömlu
dansarnir hétu bara dansarnir einu
sinni. „Þetta er sama sagan aftur
og aftur, um fólk sem vill vera í
stuði og vill fá músík sem það
kemst í stuð við.“
SAGA DÆGURTÓNLISTAR Á ÍSLANDI
Lands vors stuð
EILÍFÐAR STUÐBLÓMIÐ GUNNAR LÁRUS HJÁLMARSSON, BETUR ÞEKKTUR SEM DR. GUNNI,
VAR AÐ SENDA FRÁ SÉR GLÆSILEGA BÓK UM POPPSÖGU ÍSLANDS
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Grafík: Elín Ester Magnúsdóttir ee@mbl.is
Dr. Gunni er
svo sannarlega
í stuði.
Morgunblaðið/Golli
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
30
55
KULDANN
KLÆDDU
AF ÞÉR
frá toppi til táar.
VIKING POLAR THERMO STÍGVÉL
Stærðir 21–41. Svört og fjólublá.
5.990 KR.
FULLT VERÐ 7.990 KR.
SKOGSTAD MILLE DÚNÚLPA
Stærðir 80–116.
Bleikar og brúnar.
12.990 KR.
FULLT VERÐ 16.990 KR.
ANIK PEAK GÖNGUSKÓR OMNI-HEAT
Stærðir 41–48. Herraskó.
Svartir.
18.990 KR.
FULLT VERÐ 24.990 KR.