Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 13
23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Spilagleði er óháð aldri, þótt ólík spil geti hentað eftir því á hvaða æviskeiði spilarar eru. Myndin sýnir eldri borgara að spila bridds í nóvember árið 1979. Engin jól eru fullkomnuð án þess að taka eitt Trival Pursuit. Hægt er að fá sérstök spjöld fyrir yngstu kyn- slóðina þannig að allir geta verið með. Það er einhver óút- skýranlegur sjarmi við það að sjá hvernig keppnisskapið brýst fram í ólíklegasta fólki í þessu einfalda en skemmti- lega spurningaspili sem stendur alltaf fyrir sínu. Fimbulfamb er klassísk og einfaldlega frábærlega vel heppnað spil sem búið var til af Íslendingum fyrir um 15 ár- um. Loksins fá bullukollarnir uppreisn æru í þessu spili sem reynir á sköpun og klókindi í senn. Og jú kannski er betra að hafa góð tök á íslensku máli. Pictionary – Hvað er fyndnara en að sjá mann- eskjur reyna að teikna hund sem kunna það ekki. Sennilega margt en það er engu að síður mjög snið- ugt. Sumir virðast hafa einhvers konar sjötta skilning- arvit í þessum teiknileik og eru fljótir að giska á það sem samherjinn er að teikna. Aðrir eru eingöngu í leiknum til þess að láta gera grín að teiknihæfileikum sínum. Þeir geta að vísu verið góðir að giska. Ekki má þó gleyma því að aðalmálið er ekki vera góður að teikna, held- ur fljótur að teikna og fljótur að giska. Matador er eins og Framsóknarflokkurinn. Þú veist að hverju þú gengur. Kynslóð eftir kynslóð kýs að spila Matador jafnvel þó að búið sé að gera mörg spil sem nokkurn veginn ganga út á það sama. Tening- urinn hefur ægivald yfir spilurum sem eru á milli von- ar og ótta í hvert skipti sem honum er kastað. Skyldi ég lenda á Austurstræti? Úff, það verður dýrt. Teningur, hvað hef ég gert þér til þess að verðskulda slík örlög! Stafaspilið Scrabble er afar gott að spila með vinum sem þú þekkir vel og þarft ekkert að vera að blaðra við í tíma og ótíma. Enda fer mestur tími í það að hugsa um það sem þú ætlar að gjöra næst með stöfum þeim sem standa þér til boða. Gott getur verið að reyna að- eins á sellurnar eftir að hafa hugsanalaust vaðið í jóla- steikina án þess að hugsa um afleiðingarnar. Svo brennir líkaminn víst töluverðu þegar hann hugsar svona mikið og lengi. Já, og þú átt að reyna að mynda orð sem þú færð stig fyrir. Ekki gleyma gömlu góðu Ticket to ride hefur hvarvetna fengið mjög góða dóma. Keppendur reyna að leggja lestarbraut um Bandaríkin og Kanada. Spilatíminn er einungis klukkutími eða minna. Leikmenn fá það markmið að tengja lestarsamgöngur tveggja eða fleiri borga en samhliða reyna þeir að leggja stein í götu hinna leik- mannanna. Einkar gaman þegar margir spila saman. Sequence er einfalt og skemmtilegt borð- spil fyrir 2 til 12, mjög gott tveggja mannaspil og enn skemmtilegra þegar margir spila saman. Tilgangur spilsins er að vera fyrsti leikmaðurinn eða liðið sem leggur niður fimm spilapeninga í röð í sama lit – upp og niður eða á ská. Sequnce brúar kynslóðaspil og hentar mjög vel í fjölskylduboðum og í sum- arbústað. Catan er margverðlaunað spil og hentar þeim sem geta setið lengi við. Catan sam- anstendur af 19 landsvæðum umkringdum sjó. Ykkar verkefni er að nema land á eyjunni. Til að ná í stig þarf að byggja bæi, leggja vegi og breyta bæjum í borgir. Til þess að geta byggt þarf hins vegar hrá- efni. Það ákvarðast með teningakasti. Til þess að geta unnið þarf að versla við hina landnemana. Boðin eru skipti á hráefnum og á móti koma gagntilboð. Heilaspuni sló í gegn þegar það kom út. Spilið er byggt á íslenskri, tungu, þjóðlífi, menningu og sögu. Leikmenn reyna að vera eins skapandi og þeir mega. Alls eru 2.500 spurningar í spilinu í fimm flokkum: Orð, slangur, atburðir, bækur og heilahrist- ingur. Leikmenn semja líkleg svör við ýmsum spurningum í þeim tilgangi að plata meðspilara sína og fá þá til að giska á að svör þeirra séu þau réttu. Önnur stórgóð spil Það runnu sannarlega á mig tvær grímur þegar ég frétti að ég ætti að keppa í borðspili sem hefur þann eina tilgang að vera fyndinn, enda er al- þekkt hve erfitt er að vera sniðugur eða fyndinn undir pressu. Í afar stuttu máli gengur spilið út á það að þátttakendur skrifa mynda- texta við skrípómyndir sem eru svo lesnir upp af dómara. Að því loknu útnefnir dómarinn fyndnasta myndatextann og reynir að geta upp á því hver höfundur textans er. Eftir nokkrar umferðir tókst keppendum að hrista af sér „sviðsskrekk- inn“ og fóru keppendur þá að láta hvers kyns fimmaura- og aulabrandara flakka. Þar með hófst fjörið. Spilið er kjörið fyrir þéttan vinahóp eða fjöl- skyldu enda fátt skemmtilegra en að hlæja með sínum nánustu. Nauðsyn- legt er að þátttakendur séu að minnsta kosti fjórir en undirritaður telur heppilegt að þátttak- endur séu jafnvel ívið fleiri. Því fleiri sem hlæja, því skemmtilegra. Eins ber að taka fram að teiknuðu myndirnar eru afar vel heppnaðar og gerðu það að verkum að okkur sem spiluðum fannst við afskaplega fyndin. Ég er ekki frá því að við höfum öll bætt nokkrum húmorstigum á okkur eftir spilun Skrípó. SKRÍPÓ Einar Lövdahl Gunnlaugsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.