Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 27
Bjarmaland 13 var teiknað af Kjartani Sveinssyni, allar innréttingar eru eftir Gunnar og voru smíðaðar af Reyni Pálssyni. Palisander er
gegnumgangandi efni. Í eldhúsinu var granít sett í stað plastefna á borð og í stað parketts á gólf, og málmklæðning í loft.
Eldhúsinnréttingar Gunnars voru oftast gerðar úr einni viðarteg-
und sem er notuð með lituðu plastefni á borðum og hluta inn-
réttingarinnar. Veggir milli borða og skápa eru flísalagðir.
Ljósmyndir úr bókinni/Vigfús Birgisson
verkum sínum og var þekktur fyrir nákvæmni í vinnubrögð-
um og góða samvinnu,“ skrifar Harpa.
Hugarfarið er að breytast
Ásdís Ólafsdóttir segir Gunnar frumkvöðul í nútímahönnun
hér á landi.
„Hann lærði fyrst húsgagnasmíði hér á landi og hélt síðan
til náms í Kaupmannahöfn,“ segir hún. „Þar gekk honum
mjög vel. Hann tók þátt í árlegri sýningu danskra hús-
gagnasmiða og þegar hann flutti heim var verið að framleiða
þó nokkuð af húsgögnum hans í Danmörku. Hér var haldið
áfram að framleiða sum þeirra. Það sem Gunnar gerði var
ólíkt því sem flestir húsgagnahönnuðir voru þá að fást við
en hann var alltaf með geómetrísk form, nokkuð klippt og
skorin.“
Ásdís segir Gunnar einnig hafa teiknað töluvert af innrétt-
ingum eftir heimkomuna og þar var vinna hans fyrir Hótel
Holt áberandi. „Þar teiknaði hann fyrst móttökuna, barinn
og borðsalinn og notaði í það vengi, fallegan harðvið. Þessar
innréttingar eru enn í anddyrinu, afar stílhrein hönnun. Síð-
ar teiknaði hann Þingholtshlutann og bókaherbergið sem
tengir móttökuna og Þingholt.“
Gunnar teiknaði mörg húsgögn sem fóru í framleiðslu og
bera formhugsun hans gott vitni. Hann hannaði einnig til að
mynda skákborðið sem notað var í heimsmeistaraeinvíginu
árið 1972.
„Í bókinni eru sýnd húsgögn Gunnars frá sjöunda og átt-
unda áratugnum og innréttingar. Til að mynda innrétting-
arnar úr húsinu að Bjarmalandi 13 en þær eru fallega heild-
stæðar,“ segir Ásdís. Hún segir húseigendur hafa boðið sig
velkomna, þegar hún vildi kynna sér hönnun Gunnars á
heimilum þeirra en sumir þekki ekki hvað þeir eru með í
höndunum. „Á tímabili var öllum innréttingum hent úr hús-
um en hugarfarið er að breytast,“ segir hún. „Fyrir tilstilli
svona bókar verður fólk kannski meðvitaðra um hvað það á
og hvers virði það er, húsgögn og innréttingar. Gunnar er
völundarsmiður og vinnur ætíð með iðnaðarmönnunum, enda
eru innréttingar hans afar vel gerðar. “
Ekki með væntingar um afreksverk
Gunnar segir spennandi að sjá bókina koma út og vonast til
að það sem hann hafi verið að fást við skili sér.
„Það sem ég var að gera í Danmörku var í andstöðu við
margt það sem þá var í tísku en ég fékk samt mikinn
hljómgrunn, hjá fjölmiðlum og fagmönnum. Það var eig-
inlega ógnvekjandi á tímabili! En fólki fannst þetta vera nýr
tónn. Það var skrýtið að komast strax í innsta hring hjá
frægustu fyrirtækjum Danmerkur á þessu sviði,“ segir hann.
„Ég var ekki með væntingar um nein afreksverk þegar ég
fór út í þetta. Mig langaði bara til að gera eitthvað sem ég
taldi liggja vel fyrir mér og ég hafði ánægju af að gera.“
„Inka“ hægindastóll
frá 1962, skákborðið
frá 1972 og „T-línan“
frá 1973 – hillur „fyrir
ungu kynslóðina“.
23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880
er í the pier
Jólagjöfin
ný sending
af kertum3 fyrir 2
-400/0
búsáhöld